Körfubolti

Fréttamynd

Logi til skoðunar í Þýskalandi

Logi Gunnarsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er þessa dagana til skoðunar hjá þýska liðinu Bayeruth sem leikur í 2. deild í Þýskalandi. Magnús Gunnarsson, sem leikur með Keflavík, hefur hafnað tilboði frá Lausanne í Sviss en stefnir á atvinnumennsku á næstu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Shaq aðstoðaði við handtöku

Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat hefur löngum sagt að hann ætlaði sér að fara út í löggæslu þegar hann lýkur keppni í NBA deildinni, en um helgina tók hann lögin í sínar hendur þegar hann varð vitni að því að ráðist var á tvo homma í Miami.

Sport
Fréttamynd

Höttur fær til sín nýja menn

Hattarmenn hafa fengið nýjan bandarískan þjálfara til að stjórna liðinu í frumraun sinni í úrvalsdeild karla í körfubolta. Með honum kemur nýr leikmaður sem meðal annars reyndi fyrir sér í NBA-deildinni í sumar.

Sport
Fréttamynd

Ilgauskas semur við Cleveland

Litháinn stóri, Zydrunas Ilgauskas hjá Cleveland Cavaliers, hefur undirritað nýjan fimm ára samning við liðið sem færir honum rúmar 50 milljónir dollara í laun. Ilgauskas var með mikla heimþrá þegar hann hóf að leika með liðinu á sínum tíma, en segist nú hvergi annarsstaðar vilja vera ein í Cleveland.

Sport
Fréttamynd

Stórleikur í Njarðvík í kvöld

Það verður stórleikur í Reykjanesmótinu í körfubolta í kvöld þegar Njarðvíkingar taka á móti nágrönnum sínum í Keflavík. Bæði lið vonast til að geta teflt fullskipuðum liðum í leiknum en erlendu leikmenn liðanna eru mættir á klakann og þá hafa landsliðsmenn snúið aftur úr verkefnum tengdum Evrópukeppninni.

Sport
Fréttamynd

Logi til Bayeruth

Logi Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í körfuknattleik, hefur undanfarna daga verið til reynslu hjá þýska 1.deildar liðinu Bayreuth og vonast hann til þess að ganga frá samningum við liðið á næstu dögum.

Sport
Fréttamynd

Betri laun í Keflavík

Í dag kemur til landsins Bandaríkjamaðurinn Jason Kalsow en hann er búinn að semja við Íslandsmeistaralið Keflavík í körfubolta. Kalsow var eftirsóttur leikmaður og Keflavík hafði betur í baráttunni við lið frá Þýskalandi og Danmörku um þjónustu hans.

Sport
Fréttamynd

Þjálfari Jordan á leið til Íslands

Þann 17-18. september næstkomandi mun körfuboltaþjálfarinn Bill Guthridge koma hingað til lands og halda námskeið í húsakynnum körfuboltaakademíunnar í Reykjanesbæ. Guthridge var um árabil þjálfari eins virtasta háskóla Bandaríkjanna, Norður-Karólínu, þar sem hann þjálfaði m.a. sjálfan Michael Jordan á sínum tíma.

Sport
Fréttamynd

Rúlluðu upp Íslandsmeisturunum

Kvennalið Grindavíkur lofar vissulega góðu fyrir veturinn en liðið hefur fengið til sín tvo mjög sterka leikmenn, endurheimt tvær uppaldar stelpur og æft gríðarlega vel undir stjórn nýja þjálfara síns Unndórs Sigurðssonar. Nú síðast vann Grindavík Íslandsmeistaralið Keflavíkur með 24 stiga mun, 70-46, í æfingaleik í Grindavík.

Sport
Fréttamynd

Shaq lét hnefana tala

Shaquille O´Neal, leikmaður Miami Heat, lét hnefana tala um helgina þegar hann var staddur í veislu í New York ef marka má fréttir úr New York Post í gær. Ölvaður maður er sagður hafa stjakað við konu hans í veislunni, með þeim afleiðingum að hann fékk íturvaxinn hnefa tröllsins í andlitið og stóð skiljanlega ekki upp aftur eftir það.

Sport
Fréttamynd

Milljónir söfnuðust í Houston

Í gær var haldinn sérstakur fjáröflunarleikur í Toyota-Center í Houston, þar sem margar af helstu stjörnum NBA deildarinnar komu saman og söfnuðu fé fyrir fórnarlömb náttúruhamfaranna í Suðurríkjunum um daginn.

Sport
Fréttamynd

Auerbach sagður á batavegi

Red Auerbach, forseti Boston Celtics er sagður á batavegi eftir að hann var fluttur þungt haldinn á sjúkrahús fyrir helgina. Fregnir herma að hann hafi verið í dái og verið mjög illa á sig kominn, en nú segir talsmaður Boston að sá gamli sé að ná sér hægt og bítandi.

Sport
Fréttamynd

Geta ekki leikið í New Orleans

George Shinn, eigandi NBA liðs New Orleans Hornets, segir að þó allir myndu helst vilja að liðið léki áfram í borginni, sé það einfaldlega ekki fræðilegur möguleiki. Fjöldi borga í Bandaríkjunum hefur boðið fram aðstoð sína og fljótlega mun liggja fyrir hvar liðið leikur heimaleiki sína í vetur.

Sport
Fréttamynd

Ísland vann Rúmeníu í körfunni

Íslenska landsliðið í körfuknattleik sigraði Rúmena með 80 stigum gegn 72 í Rúmeníu í gær. Magnús Gunnarsson var stigahæstur, skoraði 22 stig þar af 15 í síðari hálfleik. Logi Gunnarsson kom næstur með 13 stig. Íslendingar urðu í öðru sæti í riðlinum á eftir Dönum.

Sport
Fréttamynd

Ísland yfir í hálfleik í Rúmeníu

Íslenska landsliðið í körfuknattleik var yfir 36-35 gegn Rúmeníu ytra, í lokaleik liðsins í Evrópukeppni landsliða. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 7 stig, en þeir Jón Arnór Stefánsson og Gunnar Einarsson eru ekki með vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Ísland lagði Rúmeníu

Íslenska landsliðið í körfuknattleik gerði góða ferð til Rúmeníu í dag og lagði sterkt lið heimamanna, 80-72. Það var Magnús Gunnarsson sem var stigahæstur í íslenska liðinu með 22 stig, þar af 18 í síðari hálfleik.

Sport
Fréttamynd

NBA leikmenn styðja hjálparstarf

Nokkrar af helstu stjörnum NBA deildarinnar í körfubolta hafa ákveðið að spila góðgerðaleik um helgina að frumkvæði fyrrum leikmannsins og sjónvarpsmannsins Kenny Smith, en allt fé sem safnast mun renna óskipt til fórnarlamba náttúruhamfaranna í suðurríkjunum á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Red Auerbach á sjúkrahúsi

Körfuboltagoðsögnin Red Auerbach hefur verið fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús, en ekki hefur verið gefið upp hvað amar að honum. Auerbach er 87 ára gamall og hefur unnið fleiri NBA titla en nokkur annar þjálfari í sögu deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Ming launahæstur í Kína

Kínverski risinn Yao Ming, sem leikur með Houston Rockets í NBA deildinni í körfubolta, er launahæstur fræga fólksins í Kína samkvæmt Forbes blaðinu þar í landi.

Sport
Fréttamynd

Danir í umspil þrátt fyrir tap

Danska körfuknattleikslandsliðið er öruggt í umspil um laust sæti í A deild, þrátt fyrir tveggja stiga tap fyrir Rúmenum á heimavelli sínum í gærkvöld. Íslendingar leika við Rúmena ytra á laugardaginn og leggur af stað út í dag án tveggja manna sem eru meiddir.

Sport
Fréttamynd

Damon Jones til Cleveland

Leikstjórnandinn Damon Jones hjá Miami Heat í NBA deildinni er við það að ganga í raðir Cleveland Cavaliers, ef marka má fréttir frá ESPN í Bandaríkjunum. Staðarblöð í Cleveland fullyrða að Jones sé við það að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.

Sport
Fréttamynd

Keflvíkingar semja við Kana

Keflvíkingar sömdu í gær við Jason Kalsow frá Bandaríkjunum en kappinn er rétt rúmir tveir metrar á hæð. Kalsow er annar erlendi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Íslandsmeistara Keflavíkur í körfuboltanum í sumar.

Sport
Fréttamynd

Fjölnismenn komnir með nýjan kana

Fjölnismenn eru búnir að ná sér í bandarískan leikmann fyrir komandi leiktíð í úrvalsdeildinni en sá heitir Jason Clark og spilaði með Virginia-háskólanum í 1. deild bandaríska háskólaboltans.

Sport
Fréttamynd

17 stiga tap fyrir Dönum

Danmörk sigraði Ísland, 77-60 í sveiflukenndum leik í Keflavík nú síðdegis í Evrópukeppni landsliða í körfubolta. Danir hafa þar með tryggt sér efsta sæti riðilsins en vonir Íslendinga um sæti í A-deild er nú úr sögunni. Ísland þurfti að vinna 11 stiga sigur í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Ísland yfir gegn Dönum

Ísland var 1 stigi yfir gegn Danmörku í Evrópukeppninni í körfubolta, 50-49 þegar tæpar 8 mínútur voru eftir að leik liðanna. Staðan var 48-47 fyrir Ísland að loknum 3. leikhluta en leikið er í Keflavík. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni.

Sport
Fréttamynd

Ísland-Danmörk að hefjast

Ísland og Danmörk mætast í Evrópukeppni landsliða í Keflavík nú kl. 14:00. Leikurinn er síðari leikur þjóðanna, en í fyrri leiknum í Árósum í fyrra voru það Danir sem sigruðu með 10 stiga mun. Ísland þarf því að vinna 11 stiga sigur í leiknum..

Sport
Fréttamynd

Aldrei æft eins vel saman

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í íslenska körfuboltalandsliðinu mæta Dönum í Keflavík í dag klukkan 14.00 í mikilvægasta leik síðari ára en hann getur haft úrslitaáhrif um hvaða lið vinnur riðilinn og fær í kjölfarið möguleika á að vinna sér sæti meðal A-þjóða.

Sport
Fréttamynd

Michael Finley valdi Spurs

Eftirsóttasti leikmaður NBA deildarinnar með lausa samninga, Michael Finley, gaf það út í gærkvöldi að hann myndi ganga til liðs við NBA meistara San Antonio Spurs á næstu dögum, en mörg lið voru búin að gera hosur sínar grænar fyrir honum síðustu daga.

Sport
Fréttamynd

Yao Ming semur við Houston

Kínverski risinn Yao Ming hefur gert langtímasamning við Houston Rockets í NBA deildinni og verður því á mála hjá félaginu til loka tímabilsins 2010-11. Ekki hefur verið gefið upp hve hár samningurinn er, en þó er talið að fyrsta ár hans muni færa Yao Ming um 12,5 milljónir í árslaun, en fari svo ört hækkandi eftir því sem líður á hann.

Sport
Fréttamynd

Rútuferð á landsleikinn

Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Dönum á laugardag. Leikurinn fer fram í Keflavík og fyrir þá sem búa í bænum verður rútuferð á leikinn frá Íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi klukkan 12:30 en leikurinn hefst klukkan 14. 

Sport