

Frönsk og þýsk stjórnvöld vilja nú herða eftirlit á landamærum Evrópusambandsins í kjölfar hrinu hryðjuverka undanfarinn mánuð. Þau leggja til umbætur á Schengen-samstarfinu sem Ísland á aðild að.
Stjórnvöld í Austurríki munu fyrirskipa að moskum öfgafullra islamista í Austurríki verði lokað. Þetta er gert eftir hryðjuverkaárásina í höfuðborginni Vín á mánudag þar sem fjórir létu lífið og um tuttugu særðust.
Innanríkisráðherra Austurríkis segir að manninum sem stóð fyrir árásinni í Vín á mánudag, hafi tekist að leika á kerfið með því að fá fulltrúa austurrískra yfirvalda til að halda að hann hafi horfið frá hugmyndum um róttækni eftir að hann hafði áður gert tilraun til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin ISIS.
Hryðjuverkasamtökin birtu mynd af árásarmanninum, Kujtim Fejzulai, undir dulnefninu Abu Dujana al-Albani og segja hann hafa verið „hermann kalífadæmisins“.
Hjón, sem búsett eru í Vínarborg, eru harmi slegin vegna hryðjuverkanna í gærkvöldi. Þau hafi ávallt upplifað sig örugg í borginni.
Árásarmaðurinn í Vínarborg sem lögregla skaut til bana í gærkvöldi hét Kujtim Fejzulai. Hann var tvítugur og bæði ríkisborgari í Austurríki og Norður-Makedóníu.
Mikael Torfason og Elma Stefanía búa steinsnar frá vettvangi hörmunganna í Vínarborg.
Að minnsta kosti fjórir almennir borgarar, tveir karlmenn og tvær konur, eru látnir eftir hryðjuverkaárás í Vínarborg í Austurríki í gærkvöldi.
Skotárásir áttu sér stað á að minnsta kosti sex stöðum í Vínarborg í Austurríki í kvöld og er að minnsta kosti einn látinn.
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur Íslendinga í borginni til að láta vita af sér vegna árásanna þar í borg í kvöld.
Skotárás varð í Vínarborg í kvöld og hafa umfangsmiklar lögregluaðgerðir staðið yfir á að minnsta kosti sex stöðum í borginni.
Lögreglan í borginni Vín í Austurríki greinir frá því að lögregluaðgerð standi nú yfir eftir skotárás við bænahús í borginni.