Handbolti
282 283 284 285 286 287 288 289 290 … 293 ›
Úkraína og Noregur keppa um forsetabikarinn Það verða Úkraína og Noregur sem mætast í úrslitum Forsetabikarsins svokallaða, en það er keppnin sem liðin sem lentu í þriðja sæti undanriðlanna átta á HM fóru í. Norðmenn tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með því að leggja Suður-Kóreu af velli í gær, 34-32, en Úkraína, sem einmitt lagði Íslendinga af velli í riðlakeppninni, vann Argentínu naumlega, 23-22. Handbolti 28.1.2007 16:35
Allar líkur á að Ísland mæti Dönum í 8-liða úrslitum Króatar lögðu Spánverja af velli í hreinum úrslitaleik liðanna um toppsætið í milliriðli 2 á HM í Þýskalandi í dag, 29-28. Úrslitin þýða að ef Danir vinna Tékka í kvöld munu þeir fara upp fyrir Spánverja og ná 2. sæti í riðlinum. Ef sú yrði raunin mætast Íslendingar og Danir í 8-liða úrslitum. Handbolti 28.1.2007 16:52
Christiansen vill ekki mæta Þjóðverjum Lars Christiansen, hornarmaður danska landsliðsins í handbolta, vill með engu móti mæta gestgjöfum Þjóðverja í 8-liða úrslitum HM. Eftir sigur Þjóðverja á Íslendingum í milliriðli 1 dag er líklegast að þeir muni mæta liðinu sem hafnar í þriðja sæti í milliriðli 2. Ef Danir vinna Tékka í dag og Spánn tapar fyrir Króatíu verður Christiansen að ósk sinni. Handbolti 28.1.2007 16:33
Ísland tapaði fyrir Þýskalandi Íslendingar töpuðu síðasta leik sínum í milliriðli HM í handbolta gegn gestgjöfum Þjóðverja, 33-28. Þjóðverjar höfðu talsverða yfirburði í leiknum og leikur íslenska liðsins bar þess keim að liðið væri þegar búið að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit. Nokkuð ljóst er að Ísland hafnar í 3. sæti milliriðilsins. Handbolti 28.1.2007 15:51
Þjóðverjar bæta við forskotið Þjóðverjar hafa yfir, 26-17, þegar rétt rúmur stundarfjórðungur er eftir af leiknum við Íslendinga sem nú stendur yfir. Þjóðverjar hafa smá saman aukið við forskot sitt þrátt fyrir að Íslendingar hafi að mestu stillt upp sínu sterkasta liði í síðari hálfleik. Handbolti 28.1.2007 15:32
Erfið staða Íslands - sex mörkum undir í hálfleik Íslendingar eru sex mörkum undir í hálfleik í viðureign sinni gegn Þjóðverjum á HM í Þýskalandi. Staðan er 17-11 en íslenska liðið hefur ekki verið upp á sitt besta, en þess ber að geta að margir lykilmanna liðsins hafa verið hvíldir í fyrri hálfleiknum. Handbolti 28.1.2007 15:02
Íslendingar undir gegn Þjóðverjum Gestgjafar Þjóðverja hafa undirtökin í viðureign sinni gegn Íslendingum á HM í handbolta sem nú stendur yfir. Þegar 15 mínútur eru liðnar af leiknum er staðan 9-4, Þjóðverjum í vil. Íslendingar stilla upp mikið breyttu liði frá því í gær og lykilmenn eru hvíldir. Markús Máni Michaelsson hefur skorað þrjú af mörkum Íslands. Handbolti 28.1.2007 14:43
Hreiðar kemur inn í hópinn fyrir Roland Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari gerir eina breytingu á leikmannahópi íslenska landsliðsins í handbolta fyrir leikinn gegn Þjóðverjum á HM í dag. Markvörðurinn Hreiðar Guðmundsson kemur inn í hópinn í stað Roland Vals Eradze, sem hvílir að þessu sinni. Búist er við því að Alfreð geri talsverðar breytingar á byrjunarliði sínu. Handbolti 28.1.2007 13:26
Grænlenska bomban slær í gegn Það könnuðust fáir við handboltamanninn Angutimmarik Kreutzmann frá Grænlandi áður en HM í handbolta hófst í vikunni. Nú er hin 18 ára gamla skytta, sem gengur undir gælunafninu “grænlenska bomban” í Þýskalandi, á allra manna vörum og undir smásjánni hjá mörgum stórum liðum. Kreutzmann er næst markahæstur það sem af er HM með 43 mörk . Handbolti 27.1.2007 22:56
Ísland lendir aldrei neðar en í 3. sæti milliriðilsins Nú þegar aðeins ein umferð er eftir af keppni í milliriðlum HM í handbolta liggur nokkuð ljóst fyrir hvaða lið fara í 8-liða úrslit. Lokastaða riðlanna ræðst hins vegar alfarið af leikjum morgundagsins. Þó er ljóst að Ísland verður ávallt fyrir ofan Frakkland, sama hvernig leikir morgundagsins fara, og þar með getur liðið ekki endað neðar en í 3. sæti milliriðilsins. Handbolti 27.1.2007 21:13
Vinstri öxlin nánast lömuð “Ég er að drepast í öxlinni og í raun alveg einhentur. Ég get lítið notað vinstri öxlina, bara rétt til þess að styðja við boltann," sagði Logi Geirsson, einn besti leikmaður íslenska liðsins gegn Slóvenum í dag, eftir leikinn. Handbolti 27.1.2007 20:51
Danir höfðu betur gegn Rússum Danir stigu stórt skref í átt að 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi eftir 26-24 sigur á Rússum í spennuþrungnum leik í Mannheim í kvöld. Pólverjar unnu níu marka sigur á Túnis, 40-21, og eru komnir á toppinn í milliriðli 1, en fyrr í kvöld höfðu Spánverjar betur gegn Ungverjum, 33-31, í milliriðli 2. Handbolti 27.1.2007 20:40
Íslendingar sigruðu Slóvena og eru öruggir í 8-liða úrslit Íslendingar báru sigurorð af Slóvenum, 32-31, í viðureign liðanna á HM sem var að ljúka rétt í þessu og tryggðu sér þar með öruggt sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Íslenska liðið er nú komið með sex stig í milliriðli 1 og er í öðru sæti riðilsins þegar aðeins einn leikur er eftir. Handbolti 27.1.2007 18:23
Íslendingar halda frumkvæðinu Íslendingar halda frumkvæðinu í viðureign sinni gegn Slóveníu og hafa fjögurra marka forystu, 26-22, þegar 15 mínútur eru til leiksloka. Birkir Ívar Guðmundsson hefur staðið sig gríðarlega vel í síðari hálfleik og varið í nokkrum dauðafærum Slóvena. Handbolti 27.1.2007 18:00
Ísland með tveggja marka forystu Íslendingar leiða með tveimur mörkum, 17-15, í hálfleik gegn Slóvenum. Íslendingar hafa verið með yfirhöndina nánast allan leikinn og náðu mest fimm marka forystu í hálfleiknum. Liðið gaf hins vegar nokkuð eftir undir lok hálfleiksins og hleypti Slóvenum aftur inn í leikinn. Logi Geirsson og Snorri Steinn Guðjónsson hafa skorað mest það sem af er, eða fimm mörk hvor. Handbolti 27.1.2007 17:30
Íslendingar byrja vel Íslendingar hafa yfir, 9-6, þegar stundarfjórðungur er liðinn af leik liðsins við Slóvena á HM í Þýskalandi. Eftir brösuga byrjun þar sem Slóvenar skoruðu fyrstu tvö mörkin hefur íslenska liðið náð sér mjög vel á strik. Logi Geirsson hefur farið á kostum og hefur skorað fjögur mörk. Handbolti 27.1.2007 17:15
Þjóðverjar lögðu Frakka Þjóðverjar unnu frækinn en verðskuldaðan sigur á Evrópumeisturum Frakka á HM í handbolta í dag, 29-26, eftir að hafa verið með forystu frá fyrstu mínútu. Með sigrinum hirðir þýska liðið toppsætið af því franska í milliriðli 1. Handbolti 27.1.2007 17:11
Enn einn sigur Króata Króatar hafa tryggt sér annað af tveimur efstu sætunum í milliriðli 2 á HM í handbolta með 31-29 sigri á Tékkum í dag. Króatía er með átta stig, fullt hús stiga, eftir fjóra leiki og mæta Spánverjum í lokaleik sínum á morgun. Þegar síðari hálfleikur er tæplega hálfnaður í viðureign Þjóðverja og Frakka er staðan 21-15, Þjóðverjum í vil. Handbolti 27.1.2007 16:39
Þjóðverjar yfir gegn Frökkum í hálfleik Gestgjafar Þjóðverja hafa 14-9 forystu í leik sínum gegn Frökkum á HM í handbolta sem nú stendur yfir. Þjóðverjar mættu gríðarlega ákveðnir til leiks og komu leikmönnum Frakka í opna skjöldu með mikilli baráttu - ekki ólíkt því sem fengu að kynnast í leiknum gegn Íslendingum í riðlakeppninni. Handbolti 27.1.2007 16:15
Alfreð: Ísland er ekki í hópi 6-8 bestu liðanna Landsliðsþjálfarinn Alfreð Gíslason sagði við þýska fjölmiðla í gær að hann teldi lið sitt ekki vera í hópi þeirra 6-8 bestu í heimi. Alfreð lét þessi ummæli falla eftir tapið gegn Pólverjum í fyrradag. Logi Geirsson og Guðjón Valur Sigurðsson hafa verið úrskurðaðir leikfærir fyrir leikinn gegn Slóvenum í dag. Handbolti 27.1.2007 16:01
Danir ætla sér sigur gegn Rússum Danir taka á móti Rússum á HM í handbolta í kvöld í leik sem mun koma til með að ráðu miklu um hvort liðanna kemst í 8-liða úrslit keppninnar. Óvæntur sigur Dana gegn Spánverjum hefur komið liðinu í góða stöðu og mun sigur í kvöld líklega tryggja liðinu eitt af fjórum efstu sætunum í milliriðli tvö. Handbolti 27.1.2007 15:31
Logi fagnar gagnrýninni Það vakti athygli í lok landsleiksins við Tékka á sunnudaginn að Ólafur Stefánsson sást þá fara í gegnum ákveðna hluti með Loga Geirssyni sem hafði leikið mjög vel í seinni hálfleiknum og skorað sex mörk. Handbolti 15.1.2007 19:33
Logi kveikti líf í vinstri vængnum Skyttur íslenska liðsins skoruðu tólf færri langskotsmörk en Tékkar í leikjum helgarinnar. Logi Geirsson átti flotta innkomu í seinni hálfleik seinni leiksins og hefur engar áhyggjur af skyttum íslenska liðsins. Handbolti 15.1.2007 19:32
Getum gert góða hluti ef við sleppum við frekari meiðsli Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handbolta, valdi í gær 17 manna leikmannahóp sem fer á HM í Þýskalandi. Alfreð segir að íslenska liðið geti vel gert góða hluti á mótinu en minnir á að liðið má vart við frekari skakkaföllum. Handbolti 15.1.2007 19:32
Vildi helst vera á tveimur stöðum í einu Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari í handbolta kynnti í gær hópinn sem fer til Þýskalands og spilar á heimsmeistaramótinu sem hefst þar á föstudag. Meðal þeirra er leikstjórnandinn Ragnar Óskarsson sem hefur að mörgu öðru að huga en handbolta þessa dagana. Handbolti 15.1.2007 19:32
Svíar flengdu Norðmenn Svíar unnu 13 marka sigur á Norðmönnum, 22-35, í Haukelandshallen í Bergen, í lokaleik norska liðsins fyrir HM í handbolta. Norska liðið hefur verið á mikilli siglingu í síðustu leikjum og vann meðal annars 12 marka sigur á Íslandi. Handbolti 15.1.2007 19:32
Alfreð tilkynnir landsliðshópinn Enginn leikmaður datt úr landsliðshóp Alfreðs Gíslasonar sem fer til Þýskalands og tekur þátt í Heimsmeistaramótinu í handbolta. Alfreð kaus að fara með 17 leikmenn á mótið en aðeins 16 þeirra mega taka þátt í undanriðlinum. Handbolti 15.1.2007 19:25
Ragnar semur við Nimes í Frakklandi Landsliðsmaðurinn Ragnar Óskarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við franska 1. deildarliðið Nimes og gengur í raðir liðsins frá Ivry þar í landi. Ragnar er 28 ára gamall og hefur leikið erlendis sem atvinnumaður frá því um aldamótin. Handbolti 3.1.2007 17:25
Guðjón Valur með sjö mörk Handknattleiksmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson, nýkjörinn íþróttamaður ársins, skoraði sjö mörk - ekkert þeirra úr vítaköstum - fyrir lið sitt Gummersbach í útisigri á Hildesheim í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Aðrir Íslendingar í Gummersbach komust ekki á blað í leiknum. Handbolti 30.12.2006 18:31
Alexander Petterson með átta mörk Íslenski landsliðsmaðurinn Alexander Petterson átti stórleik fyrir lið sitt Grosswallstadt gegn meisturum Kiel í þýska handboltanum í dag. Petterson skoraði átta mörk í leiknum sem voru þó til lítils þar sem Kiel hafði betur, 30-25. Handbolti 30.12.2006 17:15