Stj.mál

Fréttamynd

Vill afnema synjunarvald forseta

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur óhjákvæmilegt að ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta verði numið úr gildi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var að fundinum í dag. Þá telur fundurinn að huga verði að almennri heimild í stjórnarskrá til þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál.

Innlent
Fréttamynd

Þorgerður fékk 62,3% atkvæða

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var rétt í þessu kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún fékk 728 atkvæði eða 62,3% greiddra atkvæða en mótframbjóðandi hennar, Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hlaut 424 atkvæði eða 36,3% greiddra atkvæða. Tíu aðrir sjálfstæðismenn fengu samtals 16 atkvæði.

Innlent
Fréttamynd

Býst við að taka ákvörðun

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist ekki sjá neitt annað í spilunum en að hann taki ákvörðun um nýjan saksóknara sem taka á við þeim 32 ákæruatriðum í Baugsmálinu sem Bogi Nilsson ríkissaksóknari sagði sig frá fyrir helgi. Þetta sagði ráðherrann í Silfri Egils á Stöð 2 fyrr í dag.

Innlent
Fréttamynd

Frumvarp kosti 650 milljónir

Gróft mat frá Fjársýslu ríkisins segir að eftirlaunafrumvarpið umdeilda kosti 650 milljónir króna, eða 50 prósentum meira en haldið var fram á þingi.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæði fjölmiðla verði tryggt

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skorar á Alþingi að setja lög sem tryggja sjálfstæði íslenskra fjölmiðla með hagsmuni samfélagsins af heiðarlegri og vandaðri fjölmiðlun að leiðarljósi. Þetta kemur fram í ályktun nefndar um menningarmál sem samþykkt var á fundinum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Geir vill selja Landsvirkjun

Geir H. Haarde, verðandi formaður Sjálfstæðisflokksins, segir tímabært að selja Landsvirkjun eftir nokkur ár. Hann segir einkavæðingu ríkisfyrirtækja hafa losað um mikið fé og stuðlað að jöfnuði. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar hafa hins vegar orðið berir að miklum fordómum að hans mati.

Innlent
Fréttamynd

Vilja úttekt á flutningi flugs

Samgöngunefnd landsfundar Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til að gerð verði flugtæknileg, fjárhagsleg, öryggisleg og hagsmunaleg úttekt á því að hvort færa eigi miðstöð innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni og byggja upp flugvöll á stórhöfuðborgarsvæðinu, sem sátt gæti náðst um á landsvísu. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fundi nefndarinnar í dag.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn minnst í borginni

Framsóknarflokkurinn mælist minnstur allra flokka í borginni samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, en aðeins 2,9 prósent þeirra sem tóku afstöðu styðja hann. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur fylgis tæplega 46 prósenta en Samfylkingin er með næstmest fylgi, eða 30,8 prósent. Vinstri - grænir fengju 14,8 prósent ef kosið yrði nú en frjálslyndir 3,9 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Lýsir eftir baráttuanda

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og frambjóðandi til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins, segist undrast hversu fáir gefi kost á sér í forystusveit flokksins og spyr hvað sé orðið um grasrótina og baráttuandann.

Innlent
Fréttamynd

Viðræður í næstu viku

Viðræðum um framtíð bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli verður fram haldið í Washington í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Segir eftirlaunafrumvarpið dýrara

Umdeilt eftirlaunafrumvarp alþingis sem samþykkt var naumlega á þingi fyrir tveimur árum jók lífeyrrisskuldbindingu ríkisins um 650 milljónir á árinu 2004. Þetta segir Helgi Hjörvar alþingismaður á heimasíðu sinni í dag. Hann segir kostnaðinn orðinn miklu mun hærri en gert hafi verið ráð fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Atburðir kalla á fjölmiðlalög

Í fyrirspurnartíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær vísaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra til þverpólítískrar samstöðu sem náðs hefur í fjölmiðlanefnd á hennar vegum.

Innlent
Fréttamynd

Lóðaverð hækkar um fimmtíu prósent

Lóðaverð í Hafnarfirði hækkar um fimmtíu prósent með nýjum úthlutunarreglum og skilmálum sem samþykktir voru í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Bæjarstjórinn segir helstu ástæðuna vera brask þeirra sem hafa fengið úthlutað lóðum langt undir markaðsverði. Hafnfirðingar ganga ekki lengur fyrir um lóðir.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri vilja Vilhjálm í forystu

Rúm 62 prósent þeirra sem spurðir voru í skoðanakönnun IMG Gallups og tóku afstöðu vilja að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leiði lista Sjálfstæðsiflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Þá vilja tæp 38 prósent að Gísli Marteinn Baldursson geri það. Mjórra var á mununum þegar aðeins sjálfstæðismenn voru spurðir en þar vildu 53 prósent Vilhjálm og 47 prósent Gísla Martein.

Innlent
Fréttamynd

Hækka skatt þegar þeir sjá hann

Davíð Oddsson, fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi félagshyggju í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og kvað talsmenn hennar vilja skattahækkanir.

Innlent
Fréttamynd

Formaður kjörinn einróma

Ingólfur Sveinsson var einróma kjörinn formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld. Sigrún Jónsdóttir, fyrrum formaður félagsins, hafði ákveðið að gefa ekki kost á sér að þessu sinni.

Innlent
Fréttamynd

Engin kona forstjóri skráðu félagi

Engin kona er forstjóri í skráðu fyrirtæki í Kauphöll Íslands og konur eru aðeins sjö komma fjögur prósent stjórnarmanna. Nefnd, sem Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði, hefur kynnt tillögur um hvernig fjölga megi konum í stjórnum fyrirtækja.

Innlent
Fréttamynd

Útilokaði nánast Samfylkinguna

Davíð Oddsson fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins gerði það eitt af sínum síðustu verkum sem formaður, í setningaræðu sinni á landsfundinum í gær, að nánast útiloka stjórnarmyndun með Samfylkingunni, þegar þar að kemur.

Innlent
Fréttamynd

Eggert sækist eftir 7. sæti

Eggert Páll Ólason, héraðsdómslögmaður og formaður samtakanna Vinir einkabílsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjöunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor.

Innlent
Fréttamynd

Vilja banna kanínur í fuglaeyjum

Frjálslyndi flokkurinn ætlar að leggja fram þingmál þar sem gert verður ráð fyrir að lagt verði bann við kanínum í öllum fuglaeyjum umhverfis landið. Þetta kemur fram á heimasíðu Magnúar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns flokksins, þar sem hann vísar meðal annars í skýrslu um kanínupláguna í Heimaey. Þar segir að kanínurnar nagi rætur og grafi út lundaholur sem auki hættu á uppblæstri og jarðvegseyðingu.

Innlent
Fréttamynd

Barist um völdin hjá Framsókn

Búist er við átökum á aðalfundi Framsóknarfélagsins í syðra kjördæmi Reykjavíkur í kvöld. Rúmlega hundrað nýir félagsmenn hafa bæst í félagið fá mánaðamótum að því er Fréttablaðið greinir frá í dag og munu flestir þeirra stuðningsmenn Björn Inga Hrafnssonar, varaþingmanns og aðstoðarmanns forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Vísar „samsæriskenningum“ á bug

Í kvöld verður aðalfundur í Framsóknarfélagi Reykjavíkurkjördæmis suður og búist er við átökum um kjör í stjórn. Talið er að Björn Ingi Hrafnsson reyni að styrkja stöðu sína innan félagsins á fundinum og reyni að koma sínu fólki að í stjórn.

Innlent
Fréttamynd

Liðssöfnuður suðurnesjamanna

Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum safna nú liði á Landsfundi Sjálfstæðismanna í þeim tilgangi að fá umdeildum drögum að ályktun um innanlandsflug hnekkt. Í þeim er gert ráð fyrir því að verði innalandsflugið fært úr Vatnsmýrinni þá verði það ekki fært til Keflavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Vilja iðgjöld í heilbrigðiskerfinu

Um 1.200 manns eiga seturétt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í dag og stendur í fjóra daga. Davíð Oddsson flytur setningarræðu á sjötta tímanum og verður það í síðasta sinn sem hann gegnir þessu hlutverki en eftirmaður hans á formannsstóli verður kjörinn á sunnudag.

Innlent
Fréttamynd

Alltaf gaman að mæta

Ólafur G. Einarsson fyrrum þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins segir alltaf gaman að hitta gamla félaga á landsþingi Sjálfstæðisflokksins. Bæði hann og Guðmundur H. Garðarsson, fyrrum þingmaður, ætla að tala fyrir bættum kjörum aldraðra.

Innlent
Fréttamynd

Erfitt bú mætti Sjálfstæðismönnum

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hófst í Laugardalshöllinn í kvöld. Fjölmenni er á fundinum eins og venja er en vel á annað þúsund manns hvaðan af á landinu er á fundinum. Dagskráin hófst á því að Sinfoníuhljómsveit Íslands tók nokkur lög og svo hófst setningarræða Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin dótturfélag auðhrings

<font size="1"> </font>Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins var harðorður í garð 365 fjölmiðlasamsteypunnar í setningarræðu sinni á 36. landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær og sagði hana misnotaða af eigendum sínum. >

Innlent
Fréttamynd

Átta sækjast eftir fyrsta sætinu

Spennandi prófkjör er framundan vegna lista Framsóknarflokks í sveitarstjórnarkosningum í Kópavogi og sækjast átta eftir fyrsta sæti. Kosið verður um sex efstu sætin. Þar verða þrír af hvoru kyni samkvæmt reglum flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Síðasta Landsfundarræða Davíðs

Davíð Oddsson er þessa stundina að ávarpa flokksmenn sína í síðasta sinn á landsfundi í sæti formanns. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var settur í dag í Laugardalshöll líkt og fyrir 14 árum þegar Davíð var kosinn formaður flokksins og varð í kjölfarið forsætisráðherra.

Innlent