Lögreglumál
126 127 128 129 130 131 132 133 134 … 274 ›
Vísuðu óvelkomnum manni út af heimili í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi til að vísa óvelkomnum manni út af heimili í póstnúmerinu 104 og nokkru síðar var maður handtekinn í sama hverfi vegna líkamsárásar. Innlent 1.12.2021 06:26
Heimatilbúin sprengja fannst í Mánatúni Torkennilegur hlutur sem fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík var heimatilbúin sprengja samkvæmt heimildum Vísis. Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu þar í nótt. Innlent 30.11.2021 23:00
Eltu smyglara á fund Íslendings og fundu verulegt magn af fíkniefnum Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrennt í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl í síðasta mánuði, eftir að tvær konur reyndu að smygla í gegnum Keflavíkurflugvöll töluverðu magni af metamfetamíni og meira en 6.000 töflum af hörðum ópíóðum. Innlent 30.11.2021 19:22
Þrír handteknir í aðgerðum sérsveitar í nótt Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. Innlent 30.11.2021 15:27
Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. Innlent 30.11.2021 15:15
Ökumaður stöðvaður með snjóþotu í eftirdragi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann um klukkan 1 í nótt sem var staðinn að því að draga snjóþotu sem ungmenni sat á. Var málið tilkynnt foreldrum og barnavernd. Innlent 30.11.2021 06:31
Ók á umferðarskilti og hafði í hótunum við lögreglumenn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning rétt fyrir miðnætti í nótt um að bifreið hefði verið ekið á umferðarskilti í Hlíðahverfi. Í tilkynningunni kom fram að ökumaðurinn hefði farið gangandi frá vettvangi. Innlent 29.11.2021 06:14
Enn ekið á gangandi og fólk á rafhlaupahjóli Ekið var á gangandi vegfaranda í Hlíðarbergi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Töluvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag og fólk flutt á slysadeild. Þetta kemur fram í skeyti lögreglu til fjölmiðla í kvöld. Innlent 28.11.2021 23:11
Sérsveitin aðstoðaði vegna heimilisofbeldis í Grafarvogi Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í útkalli vegna heimilisofbeldis í Grafarvogi í gærkvöldi. Meintur gerandi yfirgaf staðinn áður en lögregla kom á staðinn og er eftirlýstur. Innlent 28.11.2021 10:44
Töluvert um akstur undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt við að hafa afskipti af ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Innlent 28.11.2021 07:18
Ekkert reyndist að óttast í Leifsstöð Nokkur viðbúnaður lögreglu var við Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í kvöld þar sem ferðataska hafði verið skilin eftir. Innlent 27.11.2021 19:13
„Það virðist sem fólk sjái ekki hvert annað“ Of mörg alvarleg umferðarslys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum, að mati yfirlögregluþjóns. Skammdegið skapi hættuástand. Innlent 27.11.2021 13:44
Óku manni heim sem stóð öskrandi úti á götu Tveir voru handteknir þegar tilkynnt var um hópslagsmál í póstnúmerinu 108 í gærkvöldi. Þá var manni í annarlegu ástandi ekið heim af lögreglu eftir að tilkynning barst um að hann væri að öskra úti á götu í miðborginni. Innlent 26.11.2021 06:16
Kona lést í umferðarslysi í Reykjavík í morgun Kona lést í umferðarslysi á gatnamótum Gnoðavogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 25.11.2021 14:33
Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum til Alþingis, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Þór birtir á Vísi sem kærir Inga fyrir mögulegt kosningasvindl. Innlent 24.11.2021 13:09
Krefjast farbanns yfir lækninum: Fékk nýverið endurnýjað takmarkað starfsleyfi Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á farbann yfir fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í starfi, sem hafi leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 24.11.2021 11:50
Lögregla rannsakar sex andlát og mál fimm annarra sjúklinga á HSS Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú andlát sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hún telur mögulegt að hafi borið að með saknæmum hætti. Mál fimm annarra sjúklinga eru einnig í skoðun. Innlent 24.11.2021 10:32
Fóru um borð í flugvélina án leyfis og fengu lögreglufylgd út Lögreglan á Suðurnesjum fór í kvöld um borð í flugvél ungverska flugfélagsins Wizz Air á Keflavíkurflugvelli og fjarlægði þrjá menn úr vélinni. Mennirnir höfðu farið í vélina þrátt fyrir að hafa verið meinaður aðgangur um borð af áhöfn hennar. Innlent 23.11.2021 21:18
431 sóttvarnabrot skráð en sektað í 46 prósent tilvika 475 einstaklingar og 73 fyrirtæki koma við sögu í 431 sóttvarnabroti sem lögregla hefur skráð frá 1. mars 2020. Málin varða meðal annars brot á reglum um fjöldatakmarkanir og brot á reglum um lokun skemmtistaða. Innlent 23.11.2021 06:34
Rannsaka hvort reynt hafi verið að keyra á börn í Garðabæ Nokkrar kærur hafa borist lögreglu eftir að hópur krakka safnaðist saman fyrir utan heimili í Garðabæ á laugardagskvöld og hafði í hótunum við heimilisfólkið. Heimilisfaðirinn hefur einnig verið kærður en hluti krakkanna sakar hann um að hafa reynt að keyra á sig. Innlent 22.11.2021 19:32
Lögreglu borist kvartanir vegna vopnaðra veiðimanna á fjórhjólum Lögreglunni á Vestfjörðum hafa borist kvartanir vegna veiðimanna sem sótt hafi veiðisvæði innan umdæmisins á fjórhjólum. Umræddir veiðimenn hafi verið með skotvopn um hönd á hjólunum, sem brjóti í bága við lög. Innlent 22.11.2021 19:21
Byssumaðurinn á Egilsstöðum ákærður Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni, sem skaut á hús í Dalseli á Egilsstöðum í ágúst. Maðurinn var skotinn af lögreglu og fluttur á Landspítala þar sem hann lá á gjörgæslu í nokkurn tíma. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 22.11.2021 11:03
Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. Erlent 21.11.2021 23:31
Hópuðust saman við heimili samnemanda og ætluðu að taka lögin í sínar hendur Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að heimili í Garðabæ í gærkvöldi en stór hópur krakka hafði safnast saman fyrir utan það og haft í hótunum við heimilisfólkið. Aðstoðaryfirlögregluþjónn gerir ráð fyrir að heimilisfólkið leggi inn kærur á morgun og að málið verði í framhaldi unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld, enda séu krakkarnir ósakhæfir. Innlent 21.11.2021 19:07
Ráku um fimmtíu gesti út rétt fyrir eitt í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af starfsemi veitingastaðar í miðborg Reykjavíkur í nótt vegna brots á sóttvarnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar. Innlent 21.11.2021 07:28
Tekinn á 105 á 60-götu og kvaðst vera að flýta sér Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann bifreiðar í Hlíðunum fyrir of hraðan akstur, en viðkomandi ók langt yfir hámarkshraða. Samkvæmt dagbók lögreglu sagðist viðkomandi einfaldlega hafa verið að flýta sér. Innlent 20.11.2021 07:31
Neytti fíkniefna í verslun og heimtaði peninga af starfsmanni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann í annarlegu ástandi í aðstöðu starfsmanna verslunar í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan sex í gærkvöldi, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar. Innlent 20.11.2021 07:22
Óska eftir vitnum að umferðaróhappi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar miðvikudagsmorguninn 10. nóvember. Tilkynning um slysið barst lögreglu klukkan 7:12. Innlent 19.11.2021 13:35
Staðhæfingar Páls koma Páleyju spánskt fyrir sjónir Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari fullyrðir að rannsókn á hvarfi síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja sem og hvort og hvernig hafi verið eitrað fyrir skipstjóranum sé langt komin og niðurstaða liggi fyrir í drögum. Innlent 19.11.2021 11:16
Mega skoða gögn á síma meints fíkniefnasala Landsréttur staðfesti í vikunni úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mætti rannsaka gögn á síma manns sem grunaður er um sölu fíkniefna. Dómurinn segir lagaskilyrðum fullnægt og rökstuddur grunur sé fyrir því að eigandi símans sé fíkniefnasali og hafi gerst sekur um brot sem geti varðað fangelsisvist. Innlent 18.11.2021 18:33