Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
63 64 65 66 67 68 69 … 69 ›
Nótt hinna röngu vísbendinga Nótt hinna röngu vísbendinga væri réttnefni á kosninganóttinni sem nú er að baki. Sjaldan eða aldrei hafa álitsgjafar og sérfræðingar oftúlkað og rangtúlkað þær vísbendingar sem þeir hafa haft til að vinna úr jafn mikið. Erlent 13.10.2005 14:54
Uppstokkun yfirvofandi í BNA George W. Bush fékk endurnýjað umboð hjá bandarísku þjóðinni til að gegna embætti forseta landsins. Þarlendur stjórnmálafræðingur telur að repúblikönum hafi gengið betur að fá fólk á kjörstað en demókrötum. Uppstokkun er í aðsigi í ríkisstjórn landsins. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush spáð sigri í Flórída George W. Bush sigrar í Flórída samkvæmt spá CBS og ABC og heldur þar með kjörmönnunum 27 sem hann fékk þar fyrir fjórum árum. CNN, Fox og NBC hafa hins vegar ekki enn spáð fyrir um sigurvegara í ríkinu sem Bush verður að halda til að ná endurkjöri. Erlent 13.10.2005 14:54
Kjörsókn aldrei meiri Kjörsókn í bandarískum forsetakosningum hefur aldrei verið meiri. Miklar raðir mynduðust við kjörstaði og þurftu sumir kjósendur að bíða í um níu klukkustundir. Talið er að allt að 120 milljónir kjósenda hafi nýtt sér kosningarétt sinn, sem er jafnmikið eða meira hlutfallslega en á metárinu 1960. Erlent 13.10.2005 14:54
271 öruggur og líklegur kjörmaður George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur tryggt sér 193 kjörmenn samkvæmt samantekt AP-fréttastofunnar og leiðir í ríkjum þar sem barist er um 78 kjörmenn. Samkvæmt þessu er hann með 271 öruggan og líklegan kjörmann og því á leið með að fá einum kjörmanni fleira en þarf til að tryggja sér sigur. Erlent 13.10.2005 14:54
Víða kosið fram yfir lokunartíma Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Flórída, Ohio og Pennsylvaníu er fólk enn að kjósa þrátt fyrir að kjörstaðir hafi átt að loka fyrir 45 og 75 mínútum síðan. Ástæðan er sú að langar biðraðir eru við kjörstaði, reglur kveða á um að þeir sem komnir eru í röð fái að kjósa og því getur verið að kjörstaðir loki nokkrum klukkutímum of seint Erlent 13.10.2005 14:54
New Hampshire skiptir um lit John Kerry virðist hafa tryggt sér sigur í New Hampshire. Þar með hefur það gerst í fyrsta skipti í þessum kosningum að ríki sem kaus George W. Bush fyrir fjórum árum hafi ekki kosið hann nú. Hins vegar hefur Bush enn sem komið er ekki tryggt sér sigur í neinu þeirra ríkja sem Al Gore sigraði í fyrir fjórum árum. Erlent 13.10.2005 14:54
Kerry spáð sigri í Wisconsin CNN-sjónvarpsstöðin spáði John Kerry sigri í Wisconsin-ríki nú fyrir stundu. Tíu kjörmenn eru þar í boði og ef rétt reynist er Kerry kominn með 252 kjörmenn en Bush 254. Hin ríkin þrjú þar sem enn er beðið niðurstöðu eru Ohio (20 kjörmenn), Iowa (7) og Nýja-Mexíkó (5). Erlent 13.10.2005 14:54
Ríkin sem Bush og Kerry unnu Þegar úrslit eru ráðin í öllum nema fjórum ríkjum er George W. Bush með 254 kjörmenn en John Kerry kominn með 242 kjörmenn. Úrslitin ráðast því af niðurstöðum í fjórum ríkjum, einkum því stærsta þeirra Ohio þar sem munurinn er minni en svo að flestir fjölmiðlar treysti sér til að spá Bush Bandaríkjaforseta sigri. Erlent 13.10.2005 14:54
Dregur saman með Bush og Kerry Eins og staðan er núna er George W. Bush talinn hafa tryggt sér áttatíu kjörmenn en John Kerry 77. Staðan í Flórída er svo jöfn að ekki er hægt að spá fyrir um sigurvegara, í Pennsylvaníu liggja ekki fyrir nægar upplýsingar. Því er enn óljóst hvernig fer í þremur stærstu óvissuríkjunum. Erlent 13.10.2005 14:54
Óvíst hver vinnur í Ohio Of litlu munar á George W. Bush og John Kerry í Ohio til að spá fyrir um hvor þeirra fær þá 20 kjörmenn sem ríkið færir sigurvegaranum. Ríkið er eitt af þremur stærstu óvissuríkjunum sem talið er að komi til með að vega einna þyngst á munum þegar upp er staðið. Samkvæmt fyrstu tölum hefur Bush naumt forskot, 52 prósent gegn 48 prósentum hjá Kerry. Erlent 13.10.2005 14:54
Gæti tekið daga eða vikur að telja Það gæti tekið nokkra daga og jafnvel vikur að telja öll atkvæði sagði George Stephanopoulous, stjórnmálaskýrandi ABC sjónvarpsstöðvarinnar. Hann segir ástæðuna vera utankjörfundaratkvæði og vafaatkvæði sem ólíklegt sé að verði talin í nótt. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush sigurvegari George Bush, forseti Bandaríkjanna, mun flytja ræðu klukkan 20 í kvöld að íslenskum tíma, eða klukkan 15 að staðartíma í Washington, þar sem hann mun tilkynna sigur sinn í forsetakosningunum í gær. Erlent 13.10.2005 14:54
Berlusconi fagnar sigri Bush Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, fagnaði í dag sigri George Bush í kosningunum í Bandaríkjunum í gær, þrátt fyrir að endanleg úrslit liggi ekki fyrir. Berlusconi segir sigurinn tilkominn vegna efnahagsástands Bandaríkjanna og skattalækkana Bush. Erlent 13.10.2005 14:54
Barist um Ohio Þegar 91 prósent atkvæða í Ohio hefur verið talið og eftir á að telja hálfa milljón atkvæða munar 102 þúsund atkvæðum á George W. Bush og John Kerry sem þarf nauðsynlega að sigra í ríkinu ef hann ætlar sér að eiga einhvern möguleika á því að verða forseti. Tvær stöðvar hafa þegar spáð Bush sigri í ríkinu en aðrir fjölmiðlar segja það of snemmt. Erlent 13.10.2005 14:54
Verðum að græða sárin "Við getum ekki unnið þessar kosningar," sagði John Kerry öldungadeildarþingmaður þegar hann viðurkenndi ósigur sinn í bandarísku forsetakosningunum í gær. Hann lagði áherslu á að hefjast þyrfti handa við að sætta landsmenn eftir þær deilur sem hafa klofið þá undanfarin misseri. Erlent 13.10.2005 14:54
Lýsir Bush yfir sigri? Búist er við að George Bush muni lýsa yfir sigri í forsetakosningunum í Bandaríkjunum innan stundar og ríkir sigurgleði í herbúðum hans. Samkvæmt útgönguspám hefur hann sigrað í Nevada og því hlotið 254 kjörmenn af þeim 270 sem þarf til að sigra. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush aftur framúr George W. Bush er kominn með 102 kjörmenn og John Kerry 77 samkvæmt spám flestra stóru sjónvarpsstöðvanna vestanhafs. ABC, CNN, Fox og NBC spá þessu allar. NBC telur hins vegar að Bush sé kominn með 108 kjörmenn en er sammála spánni um 77 kjörmenn Kerrys. Búast má við breytingum á næstu mínútum þegar kjörstaðir loka í fimmtán ríkjum. Erlent 13.10.2005 14:54
Munar átta kjörmönnum Litlu munar á kjörmannafjölda George W. Bush og John Kerry eftir að Kerry tryggði sér sigur í Pennsylvaníu, einu óvissuríkjanna sem barist var um, og Kaliforníu, ríkisins sem gefur af sér flesta kjörmenn og Kerry var sigurstranglegur í. Samkvæmt síðustu tölum NBC er Bush búinn að tryggja sér 207 kjörmenn en Kerry 199 kjörmenn. Erlent 13.10.2005 14:54
Repúblikanar juku meirihluta sinn Repúblikanar tryggðu sér í fyrrinótt áframhaldandi meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og bættu við sig þingsætum bæði í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush fer mun betur af stað Ef litið er hvort tveggja til þeirra ríkja þar sem George W. Bush hefur verið spáð sigri og þeirra þar sem hann leiðir samkvæmt útgönguspám er hann kominn með 87 kjörmenn af þeim 270 sem þarf til að tryggja sér sigur. Kerry er spáð sigri í einu ríki og leiðir í öðru, og fengi samkvæmt því sjö kjörmenn. Lítið þarf þó að gerast til að þetta breytist. Erlent 13.10.2005 14:54
Enginn vafi á sigri Bush Andy Card, starfsmannastjóri Hvíta hússins, sagði fyrir stundu að enginn vafi væri á því að George Bush færi með sigur af hólmi í Ohio og ynni þar með forsetakosningarnar. Úrslitin í kosningunum í Bandaríkjunum munu líklega velta á úrslitum kosninganna í Ohio-ríki en staðfest niðurstaða liggur ekki enn fyrir þar. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush á erfitt verk fyrir höndum "Það verður erfitt verk forseta að skapa breiða og öfluga samstöðu bandarísku þjóðarinnar eftir þann djúpstæða ágreining sem hér hefur birst," segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti eftir úrslit kosninga í Bandaríkjunum. Erlent 13.10.2005 14:54
Banna hjónabönd samkynhneigðra Víst þykir að kjósendur í Kentucky og Ohio hafi samþykkt stjórnarskrárbann við hjónaböndum samkynhneigðra einstaklinga. Slíkar tillögur liggja fyrir í ellefu ríkjum og gefa skoðanakannanir til kynna að þær verði alls staðar samþykktar. Bannið var samþykkt með miklum mun í Ohio og kann það að gefa til kynna að Kerry eigi erfitt uppdráttar þar. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush með forystu í þremur ríkjum George W. Bush er á leið með að tryggja sér 34 kjörmenn en Kerry þrjá í þeim sex ríkjum sem hafa þegar lokað kjörstöðum samkvæmt útgönguspám. Þetta er niðurstaðan í þeim ríkjum þar sem nógu mikill munur er á þeim til að hægt sé að spá fyrir um hvor þeirra tryggir sér kjörmenn ríkisins. Erlent 13.10.2005 14:54
Kerry yfir í flestum spám Fjórar af fimm stóru sjónvarpsstöðunum í Bandaríkjunum spá John Kerry 74 eða 77 kjörmönnum miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir en George W. Bush 66 kjörmönnum. Ein stöð sker sig úr, það er CBS sjónvarpsstöðin sem spáir Bush 108 kjörmönnum en Kerry 77 kjörmönnum. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush með 44 kjörmanna forskot George W. Bush er spáð sigri í sex af fimmtán ríkjum þar sem kjörstaðir lokuðu klukkan tvö, John Kerry er spáð sigri í tveimur ríkjanna en í sjö þeirra er of snemmt að spá til um hvor þeirra fer með sigur af hólmi. Staðan nú er því sú að Bush virðist kominn með 156 kjörmenn en Kerry 112. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush fær líklega gott start Búast má við því að George W. Bush verði ofan á í fyrstu útgönguspám sem birtar verða fljótlega eftir miðnætti en þá loka kjörstaðir í sex ríkjum Bandaríkjanna. Kannanir gefa til kynna að Bush hafi betur í fimm ríkjanna en John Kerry í því sjötta. Erlent 13.10.2005 14:54
Landslagið í Massachussetts Það er mikill munur á pólitíska landslaginu í Massachussetts annars vegar og nágrannafylkinu New Hampshire hins vegar. Í því fyrrnefnda myndu demókratar vinna þótt þeir biðu fram blindan bavíana en í New Hampshire hefur gjarnan verið mjótt á munum og þar hafa kjósendur meiri tilhneigingu til að kjósa repúblikana heldur en í nágrannafylkjunum. Erlent 13.10.2005 14:54
Spennandi fram á síðustu stundu Nýjustu skoðanakannanir gefa til kynna að mjög mjótt verði á mununum í kosningunum vestanhafs í nótt. Litlu munar á fylgi George W. Bush og John Kerry í fjórum af fimm könnunum sem voru gerðar í gær en í einni þeirra, frá George Washington háskóla er George W. Bush með fjögurra prósenta forskot á Kerry. Erlent 13.10.2005 14:54