Chelsea burstaði City | Sjáðu mörkin Anton Ingi Leifsson skrifar 21. febrúar 2016 17:45 Diego Costa fagnar fyrsta marki Chelsea. vísir/getty
Það var ekki mikil spenna í stórleik 5. umferðarinnar í enska bikarnum þegar Chelsea burstaði Manchester City á heimavelli, 5-1, og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. City stillti upp hálfgerðu varaliði enda á liðið afar mikilvægan leik framundan í Meistaradeildinni á miðvikudag þegar liðið mætir Dynamo Kyiv í Kænugarði á miðvikudaginn. Diego Costa kom Chelsea yfir á 35. mínútu, en David Faupala jafnaði metin fyrir City og staðan jöfn í hálfleik, 1-1. Willian kom Chelsea aftur yfir á 48. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Gary Cahill og staðan orðin 3-1. Eden Hazard skoraði svo fjórða mark Chelsa úr aukaspyrnu, en markið má sjá, sem og öll önnur, hér neðst í fréttinni. Veislunni var ekki lokið á Brúnni því Bertrand Traore skoraði fimmta og síðasta mark laglegum skalla, en eins og í markinu á undan mátti setja spurningarmerki við Willy Caballero í marki City. Lokatölur 5-1. Chelsea er því komið í átta liða úrslit keppninnar, en City er úr leik. Manuel Pellgrini, stjóri City, var bersýnilega með hugann við leikinn á miðvikudag þegar hann stillti upp liði City í dag.Diego Costa kemur Chelsea í 1-0: David Faupala jafnar í 1-1 fyrir Manchester City: Willian kemur Chelsea í 2-1: Gary Cahill kemur Chelsea í 3-1: Eden Hazard kemur Chelsea í 4-1: Bertrand Traore kemur Chelsea í 5-1:
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira