Enski boltinn

Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Fergu­son

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Samband Carlos Tevez og Sir Alex Ferguson var ekki gott undir það síðasta þar sem Argentínumaðurinn taldi sig vera svikinn.
Samband Carlos Tevez og Sir Alex Ferguson var ekki gott undir það síðasta þar sem Argentínumaðurinn taldi sig vera svikinn. EPA/MAGI HAROUN

Argentínska knattspyrnugoðsögnin Carlos Tevez hefur upplýst að hann hafi farið frá Manchester United til erkifjendanna í Manchester City á sínum tíma til að „hefna sín“ á Sir Alex Ferguson eftir að hann stóð ekki við loforð sem hann hafði gefið framherjanum.

Tevez gekk til liðs við City árið 2009 eftir tveggja ára lánsdvöl hjá United, þar sem hann skoraði 34 mörk í 99 leikjum.

Argentínski framherjinn gekk til liðs við City fyrir 47 milljónir punda, sem var breskt met í félagaskiptum á þeim tíma, og skoraði síðan 73 mörk í 148 leikjum fyrir City.

„Mér finnst ég hafa skilið mikið eftir, hjá báðum liðum. En ef þú lætur mig velja, segjum, þá átti ég frábæran tíma hjá United. Hitt liðið, City, var fyrir mig eins og hefnd fyrir, hvernig á ég að orða það? Ég fékk ekki til baka það sem ég gaf,“ sagði hann í þættinum Rio Ferdinand Presents.

Tevez varð tvisvar enskur meistari með Manchester United og einu sinni með Manchester City.

„Þeir sögðu við mig: Tvö ár á lánssamningi. Síðan, ef þú spilar vel, greiða þeir fyrir samninginn eftir eitt ár. Fergie sagði við mig: ‚Carlos, ég ætla að kaupa upp samninginn þinn og þú verður áfram í Manchester,“ sagði Tevez.

„Ég man eftir þessu samtali við Fergie. Hann sagði: ‚Ég ætla að borga fyrir Berbatov en hafðu engar áhyggjur, ég ætla að kaupa þig og við göngum frá samningnum þínum,“ sagði Tevez.

„Þetta var erfitt því mér fannst ég hafa gefið United hjarta mitt. Og ég fann ekki það sama á móti. Ég fann ekki það sama því, ef þið munið, við unnum Meistaradeildina. Við unnum deildina og, og síðan, til að lækka verðið á mér, fengu þeir inn leikmann og ég hélt áfram á sama hátt fyrstu mánuðina,“ sagði Tevez.

„Ég held að Ferguson hafi haft, frá deginum sem við töluðum saman í Los Angeles, allt að sex mánuði til að standa við orð sín. Og hann gerði það ekki,“ sagði Tevez.

„Þvert á móti fór hann að setja mig á bekkinn. Í mínum huga. Hann fór að ýta mér til hliðar svo hann gæti lækkað virði mitt. Og það var það sem særði mig mest,“ sagði Tevez sem skoraði yfir tuttugu deildarmörk á tveimur fyrstu tímabilum sínum með City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×