Fréttir
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 334 ›
Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Itamar Ben-Gvir, þjóðaröryggismálaráðherra Ísrael, hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði erlendis og heima fyrir, eftir að hann deildi myndskeiði sem sýnir hann lítilsvirða aðgerðasinna sem voru handteknir þegar þeir reyndu að komast til Gasa. Erlent 21.5.2026 10:15
Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust þrjár umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Einn dró umsókn sína til baka. Innlent 21.5.2026 10:00
Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, verður á ferðinni um um Suðurland í dag ásamt maka sínum Birni Skúlasyni. Innlent 21.5.2026 08:53
Eldur kom upp í vélarúmi báts Skipstjóri lítils fiskibáts óskaði eftir aðstoð eftir að eldur kom upp í vélarrúmi bátsins rétt norðaustur af Skagaströnd um klukkan fjögur í nótt. Innlent 21.5.2026 08:16
Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Guðjón Reykdal Óskarsson, doktor í líf- og læknavísindum og starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar, er látinn, 35 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastliðinn mánudag. Innlent 21.5.2026 07:51
Guðbjörg með flest atkvæði og flestir vilja sameinast Stykkishólmi Guðbjörg Gunnarsdóttir hlaut flest atkvæði til sveitarstjórnarkosninga í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi á laugardaginn. Þar fóru fram óbundnar kosningar og voru því allir íbúar í framboði. Samhliða kosningunum fór fram könnun til að kanna hug íbúa til mögulegrar sameiningar. Innlent 21.5.2026 07:38
Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Bandarísk yfirvöld hafa ákært Raúl Castro fyrrverandi þjóðhöfðingja Kúbu fyrir samsæri um að drepa bandaríska ríkisborgara þegar tveimur flugvélum var grandað á milli Kúbu og Bandaríkjanna árið1996. Erlent 21.5.2026 07:35
Trump segist munu ræða við forseta Taívan Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann hefði í hyggju að ræða við Lai Ching-te, forseta Taívan. „Ég mun tala við hann,“ sagði forsetinn. „Ég tala við alla... Við munum vinna í þessu; Taívan-vandamálinu.“ Erlent 21.5.2026 07:20
Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld Í dag má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt, líklega þremur til tíu metrum á sekúndu. Svo er spáð þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti á bilinu fjögur til 15 stig, svalast norðaustanlands. Veður 21.5.2026 07:19
Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Útlit er fyrir að rúmlega eitt þúsund íslenskir framhaldsskólanemar verði á grísku eynni Krít í byrjun júní. Stórt verkefni er að koma öllum til og frá eynni og þarf að nýta leiguflug til að ferja mannskapinn. Innlent 21.5.2026 06:47
Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Rússar hafa neyðst til draga úr framleiðslu eða jafnvel stöðva hana alveg í mörgum af helstu olíuvinnslum ríkisins. Það er vegna ítrekaðra drónaárása Úkraínumanna á olíuinnviði eins og vinnslur, dælustöðvar og geymslutanka en vegna þeirra hafa Rússar bannað alfarið útflutning á unnu eldsneyti í það minnsta út júlí. Erlent 20.5.2026 22:45
Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu. Innlent 20.5.2026 22:25
Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Maður sem sat í fangelsi í Tennessee í Bandaríkjunum vegna færslu sem hann skrifaði á Facebook um morðið á Charlie Kirk, sem var áhrifamikill áhrifavaldur á hægri væng stjórnmálanna í Bandaríkjunum, mun fá 835 þúsund dali í skaðabætur. Hann var handtekinn eftir að hann grínaðist með dauða Kirks. Erlent 20.5.2026 21:28
Ein breyting í sveitarstjórn Kaldrananeshrepps Finnur Ólafsson fékk flest atkvæði í sveitarstjórnarkosningunum í Kaldrananeshreppi. Gengið var til óhlutbundinna kosninga. Innlent 20.5.2026 21:14
Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Tveir lögregluþjónar sem voru að störfum í þinghúsi Bandaríkjanna þegar stuðningsmenn Donalds Trump forseta ruddu sér leið þar inn þann 6. janúar, hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni. Þeir vilja koma í veg fyrir að Trump-liðar geti greitt bandamönnum forsetans úr nýstofnuðum sjóði sem ætlað er að útvega fólki sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur. Erlent 20.5.2026 21:01
Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu La Datcha Marine X Ltd., sem á snekkjuna La Datcha sem siglt var inn Eyjafjörðinn í mars, hefur stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni. Skipverjum var meinuð koma til landsins á grundvelli þvingunaraðgerða varðandi Rússland. Innlent 20.5.2026 20:52
Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Ríflega helmingur kvenna í Rafiðnaðarsambandi Íslands og VM - Félagi vélstjóra og málmtæknimanna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu. Þá hefur rúmlega fjórðungur orðið fyrir einelti á vinnustað. Innlent 20.5.2026 20:02
Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn í Reykjanesbæ hafa náð samkomulagi um nýjan meirihluta. Samkomulagið verður undirritað á morgun. Innlent 20.5.2026 19:31
Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið. Innlent 20.5.2026 18:55
Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu er áfram á uppleið samkvæmt nýrri könnun Maskínu og fer úr átján prósentum í tæp tuttugu. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur frá áramótum aukist um ríflega sex prósentustig. Innlent 20.5.2026 18:51
Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Lögmaður manns á fimmtugsaldri sem var beittur rafbyssu eftir að hafa hellt yfir sig eldfimum vökva segir lögreglu hafa stórskaðað umbjóðanda sinn og gengið of harkalega fram. Maðurinn var fluttur til Noregs með sjúkraflugi og er með brunasár á um helmingi líkamans. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum og rætt við lögmanninn. Innlent 20.5.2026 18:07
Klemmdist undir rútu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag ósk um aðstoð vegna slyss í Hafnarfirði. Þar hafði maður klemmst undir rútu á verkstæði. Viðkomandi var fluttur í sjúkrabíl á bráðamóttöku. Innlent 20.5.2026 17:56
Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri Landsréttur hefur fellt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur úr gildi sem taldi Unni Lilju Hermannsdóttur vanhæfa til að gegna starfi skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Innlent 20.5.2026 17:37
„Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega. Innlent 20.5.2026 17:01
Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Réttarhöld yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur, sem er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, fara ekki fram fyrir luktum dyrum líkt og hún óskaði eftir. Innlent 20.5.2026 16:59
Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Mikil mildi er að ekki hafi farið enn verr þegar eldsvoði kom upp í eldhúsinu í íbúð þeirra Fanneyjar Dóru Veigarsdóttur og Arons Ólafssonar í Grafarvogi á miðvikudag í síðustu viku. Aron slapp með 2. stigs bruna á höndum eftir að hafa slökkt í eldinum en íbúðin er mikið skemmd vegna sóts. Þau vilja fyrst og fremst minna á mikilvægi eldvarna eftir ömurlega lífsreynslu. Innlent 20.5.2026 16:25
Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Berglind Ósk Guðmundsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er sögð verða næsti bæjarstjóri. Innlent 20.5.2026 16:02
Greiðvikni kom í bakið á fjórum Fjórir karlmenn, tveir Króatar, Pólverji og Íslendingur, hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Annar Króatinn, Antonio Kastellana, hlaut þyngstan dóm, þriggja ára fangelsi. Mennirnir sögðust einfaldlega hafa verið að gera félögum sínum greiða þegar þeir frömdu brotin. Innlent 20.5.2026 15:40
Ásthildur hættir sem bæjarstjóri á Akureyri Ásthildur Sturludóttir lætur af störfum um næstu mánaðarmót sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar eftir átta ár í starfi. Hún greinir frá þessu í tilkynningu á samfélagsmiðlum. Innlent 20.5.2026 15:14
Samningur í höfn á Akureyri: „Algjörlega, það er staðan“ Sjálfstæðisflokkur, L-listinn og Framsókn hafa náð saman um nýtt meirihlutasamstarf á Akureyri. Málefnasamningur liggur fyrir sem og skipting verkefna í bæjarstjórn. Málefnasamningurinn verður kynntur á föstudaginn. Innlent 20.5.2026 14:53