Fréttir
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 334 ›
Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Gert er ráð fyrir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mæli fyrir samgönguáætlun á Alþingi í dag. Um er að ræða fyrstu samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar en hún er fyrir árin 2026 til 2040 og henni fylgir einnig fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Innlent 19.1.2026 07:30
Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Spænsk yfirvöld gáfu það út í morgun að tala látinna í lestarslysinu sem varð í suðurhluta landsins í gærkvöldi hafi hækkað upp í 39. Að minnsta kosti 73 voru fluttir á spítala og þar af voru 24 sagðir alvarlega slasaðir. Fjögur börn eru sögð á meðal þeirra slösuðu. Erlent 19.1.2026 07:20
Víða rigning og kólnar í veðri Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustlægri átt í dag þar sem verður allvíða átta til fimmtán metrar á sekúndu. Veður 19.1.2026 07:14
Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Donald Trump Bandaríkjaforseti tjáði sig um Grænland á samfélagsmiðli sínum Truth Social í morgun, eftir óvenjulanga þögn. Evrópuleiðtogar réðu ráðum sínum í gær og munu funda áfram í vikunni um viðbrögð við hótunum Trump um viðbótartolla á átta Evrópuríki. Erlent 19.1.2026 06:38
Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Ómögulegt er að segja til um það hvað varð ketti sem fannst í poka í hrauninu í Helguvík í Reykjanesbæ að aldurtila. Að sögn starfsmanns Dýralæknastofu Suðurnesja er allt eins líklegt að honum hafi verið komið þar fyrir af eigendum sínum. Innlent 19.1.2026 06:17
Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Að minnsta kosti 21 er látinn og tugir til viðbótar slasaðir eftir árekstur tveggja háhraðalesta á Suður-Spáni í kvöld, sunnudag, að sögn yfirvalda. Erlent 19.1.2026 00:02
Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Það kom Líf Magneudóttur, oddvita Vinstri grænna (VG) í Reykjavík, í opna skjöldu þegar hún heyrði frá fjölmiðlum að Sanna Magdalena Mörtudóttir myndi leiða sameiginlegt framboð VG og Vors til vinstri. Það hafi ekki verið það sem samþykkt var á fundi félags VG í Reykjavík í dag. Stjórnarformaður félagsins segir að viðræður framboðanna hafi byggt á því að Sanna myndi leiða listann, þótt það hafi ekki verið formlega samþykkt. Hann segir að hugmyndir um slíkt hafi verið kynntar félagsmönnum, en það hafi ekki verið samþykkt formlega. Innlent 18.1.2026 23:22
Minnir á hvernig Hitler komst til valda Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra birti færslu á Facebook í gærkvöldi þar sem hún minnti á hvernig Adolf Hitler komst til valda á sínum tíma. Innlent 18.1.2026 21:25
Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins hefur ákveðið að kalla saman ráðið vegna hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er varða innlimun Grænlands. Trump boðaði í gær tolla á átta NATO-ríki sem höfðu sent hermenn til landsins. Erlent 18.1.2026 20:41
Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Talsmaður Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að forsætisráðherrann hafi talað við Donald Trump Bandaríkjaforseta í síma í dag. Ráðherran hafi sagt að það væri „rangt“ að leggja tolla á bandamenn sína fyrir það eitt að reyna að tryggja öryggi á norðurslóðum. Erlent 18.1.2026 20:20
Þjóðverjar yfirgefa Grænland Eftir aðeins tvo daga á heræfingu á Grænlandi snúa þýskir hermenn aftur heim, en þeir millilentu á Íslandi síðdegis í dag. Talsmaður hersins segir að verkefni hermannana sé lokið. Fulltrúar íslensku landhelgisgæslunnar eru um kyrrt á Grænlandi, að sögn gæslunnar. Erlent 18.1.2026 19:51
Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, segist hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta vegna „öryggisástandsins“ á Grænlandi. Rutte segist hlakka til að sjá Trump á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsstofnunarinnar (World Economic Forum) sem hefst á morgun. Erlent 18.1.2026 18:14
VG og Sanna sameina krafta sína Vinstri græn í Reykjavík og Vor til vinstri munu hafa myndað framboðsbandalag fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi mun leiða listann. Innlent 18.1.2026 17:40
Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Íslenskir fánaframleiðendur taka eftir marktækri aukningu í áhuga Íslendinga á grænlenska fánanum, Erfalasorput eins og þeir kalla hann á sínu máli. Rekstrarstjóri Fánasmiðjunnar segir að 85 prósent aukning á pöntunum á milli mánaða. Innlent 18.1.2026 17:00
Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Lífið í Nuuk höfuðborg Grænlands hefur vægast sagt breyst undanfarna daga. Eftir enn ítrekaðar hótanir Bandaríkjaforseta um að innlima landið með valdi hrundu Danir af stað skyndilegu heræfingunni Arctic Endurance og þessi minnsta höfuðborg heims varð að virki á örskotsstundu. Erlent 18.1.2026 16:16
Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórn Félags akademískra starfsmanna Bifrastar (FAB) segir að stjórnendur bifrastar, þar með talið rektor, byggi á því fyrir stjórn skólans að ekki hafi verið staðið rétt að málunum á fundi félagsins á miðvikudag þegar vantrausti var lýst yfir á yfirstjórn skólans. FAB segir ekkert til í þeim málflutningi. Innlent 18.1.2026 15:57
Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Eftir linnulausa ofankomu í austurrísku Ölpunum síðustu vikuna féll í gær fjöldi snjóflóða og hafa átta manns látið þar lífið. Síðdegis í gær hreif snjóflóð þrjá tékkneska skíðamenn í Murtal-héraði í Steiermark. Þeir fundust síðar látnir. Erlent 18.1.2026 15:18
Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Köru Connect, segir stjórnvöld hafa verið í blindflugi í menntamálum í rúman áratug. Allir mælikvarðar hafi verið á niðurleið frá árinu 2012 og á sama tíma og önnur lönd í svipaðri stöðu hafi komið sér á strik hefur Íslendingum ekkert tekist að spyrna fótum. Innlent 18.1.2026 14:58
Miklar sviptingar í Sýrlandi Stjórnarher Sýrlands og aðrar sveitir hliðhollar stjórnvöldum hafa í dag og um helgina rekið sýrlenska Kúrda (SDF) og bandamenn þeirra á brott frá stórum svæðum í austurhluta Sýrlands. Harðir bardagar eru sagðir eiga sér stað í borginni Raqqa og er herinn sagður hafa náð mikilvægum olíulindum í austurhluta landsins. Erlent 18.1.2026 14:45
Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni „Ég verð að segja eins og er að þessi nýjustu skilaboð frá Bandaríkjaforseta eru mikil vonbrigði og áhyggjuefni. Ekki síst fyrir líkt þenkjandi þjóðir sem trúa á frelsi, lýðræði og alþjóðalög og virðingu fyrir þeim. Þetta eru mikil vonbrigði.“ Erlent 18.1.2026 14:03
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18.1.2026 13:58
Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Það verður mikið um að vera í Hveragerði á nýju ári því bæjarfélagið fagnar 80 ára afmæli sínu með fjölbreyttum afmælisviðburðum. Einn af hápunktum afmælisins verður heimsókn forseta Íslands í lok apríl. Innlent 18.1.2026 13:05
Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Sendiherrar Evrópusambandsins koma saman á neyðarfundi seinna í dag vegna Grænlandstolla Bandaríkjaforseta. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir samband Bandaríkjanna og Evrópu aldrei hafa verið verra. Hún útilokar ekki að Ísland bætist á lista forsetans. Innlent 18.1.2026 12:56
Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Nóbelsnefnd friðarverðlaunanna hefur gefið út yfirlýsingu vegna framsals Maríu Corinu Machado verðlaunahafa á medalíu sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Yfirlýsingin er stutt og afdráttarlaus og segir nefndin að verðlaunin séu verðlaunahafans eins, burtséð frá því hvar peningurinn sé niðurkominn. Erlent 18.1.2026 12:37
Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Íþróttakennari til 25 ára segir þátttöku barna í skólaleikfimi hafa dregist mjög saman á undanförnum árum. Almenn vanlíðan meðal nemenda hafi aukist og dæmi eru um að börn hafi verið í skólanum hans í nokkurn tíma án þess að hafa mætt í íþróttatíma. Innlent 18.1.2026 12:35
Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallar eftir því að Evrópusambandið beiti „ofurvopni“ sínu gegn Bandaríkjunum vegna aðgerða Donalds Trump varðandi Grænland. Utanríkisráðherra Danmerkur segir erfitt að átta sig á Bandaríkjamönnum og forsætisráherra Ítalíu segir Bandaríkjamenn ekki skilja Evrópumenn. Erlent 18.1.2026 12:10
Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur, alþjóðastjórnmálafræðing vegna grænlandstolla Bandaríkjaforseta. Einnig heyrum við frá utanríkisráðherra sem segir ákvörðunina vonbrigði og ítrekar stuðning við Danmörku og Grænland. Innlent 18.1.2026 11:49
Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Verðbólga gæti sprengt hina svokölluðu „stöðugleikasamninga“ strax í haust. Í lok árs mældist verðbólga 4,5 prósent og Landsbankinn spáir verðbólgu upp á 5,1 prósent í janúar og Arion spaír 4,9 prósent. Forsenduákvæði kjarasamninganna sem skrifað var undir 2024 miða við 4,7 prósent. Innlent 18.1.2026 11:47
Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 1.500 fallhlífarhermenn í viðbragðsstöðu vegna mögulegra aðgerða í Minnesota. Það er ef Donald Trump, forseti, stendur við hótun sína um að beita gömlum uppreisnarlögum til að siga hernum á mótmælendur í ríkinu en þar hafa umfangsmikil mótmæli gegn starfsemi Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) átt sér stað. Erlent 18.1.2026 10:01
Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Innlent 18.1.2026 09:32