Fréttir
253 254 255 256 257 258 259 260 261 … 334 ›
Sterkar vísbendingar um falsboð Sterkar vísbendingar eru um að tilkynning um að tveir ferðamenn hafi fests í helli sem barst neyðarlínu í gærkvöldi hafi verið falsboð. Tilkynningin varð til þess að viðbragðsaðilar fóru í umfangsmikla leit sem ekki hefur skilað árangri. Innlent 6.8.2024 18:42
Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Í kvöldfréttunum verðum við í beinni útsendingu frá Kerlingarfjöllum, þar sem umfangsmikil leit hefur staðið yfir síðan í gærkvöldi að tveimur erlendum feðramönnum, sem taldir eru sitja fastir í helli á svæðinu. Innlent 6.8.2024 18:00
Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum er ekki talinn vera á vegum ferðamannanna tveggja sem tilkynntu að þeir væru fastir í helli. Innlent 6.8.2024 17:36
Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur á hendur karlmanni á fimmtugsaldri sem er grunaður um tilraun til manndráps í janúar á þessu ári. Hann hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann af tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík. Innlent 6.8.2024 17:26
Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Hörður Torfason hefur beðið Auði Magndísi Auðardóttur og fyrrverandi stjórn Samtakanna 78 undir stjórn Hilmars Hildar Magnúsar afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við DV árið 2018. Í viðtalinu talaði hann um að Samtökin hefðu sætt yfirtöku og verið rænt af hópi BDSM fólks. Innlent 6.8.2024 16:48
Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Ekki er víst að bílaleigubíll sem fannst yfirgefinn á bílastæði við tjaldstæði í Kerlingarfjöllum sé á vegum ferðamanna sem tilkynntu Neyðarlínunni í netspjalli í gær að þeir væru fastir í helli. Innlent 6.8.2024 16:19
Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Nýrnaveiki hefur greinst í löxum í sjókví Arnarlax í Arnarfirði. Dýralæknir fisksjúkdóma hjá MAST segir smitið hafa borist í kvína úr villtum löxum, en þar sé nýrnaveiki útbreidd. Svona smit geti skilað sér í aðeins meiri afföllum en hafi engin alvarleg áhrif. Innlent 6.8.2024 15:43
Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Leitarsvæðið við Kerlingarfjöll er mjög torsótt og erfitt yfirferðar fyrir göngufólk, hjól og jeppa, en björgunarsveitir hafa sett mikinn kraft í leit með drónum. Landslagið er síbreytilegt vegna snjóa, rigningar og drullu. Leit hefur staðið yfir að ferðamönnum sem taldir eru fastir í helli við Kerlingarfjöll síðan í gærkvöldi. Innlent 6.8.2024 14:52
Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Karlmaður sem stunginn var með hnífi á Akureyri um helgina var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær. Einn hefur réttarstöðu sakbornings í málinu og miðar rannsókn ágætlega, að sögn lögreglu. Innlent 6.8.2024 13:56
Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Björgunarsveitir hafa fundið það sem þau telja fyrstu vísbendinguna sem hægt er að vinna eftir, í leit að tveimur ferðamönnum sem talið er að séu fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum. Bílaleigubíll sem skráður er á tvo ferðamenn fannst við tjaldstæði. Enginn á svæðinu kannast við að bera ábyrgð á bílnum. Kallað hefur verið til leitarhunda. Innlent 6.8.2024 13:51
Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, verður varaforsetaefni Kamölu Harris, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, fyrir bandarísku forsetakosningarnar í haust. Erlent 6.8.2024 13:05
Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Uppbygging líforkuvers á Dysnesi í Eyjafirði á að leysa þann vanda sem íslenska ríkið hefur staðið frammi fyrir við söfnun, móttöku og vinnslu dýraleifa. Ísland hefur um árabil fengið bágt fyrir að uppfylla ekki skyldur sínar í þeim efnum. Um milljarðaverkefni er að ræða sem gæti orðið fyrsti vísir að uppbyggingu stórhafnar á Dysnesi. Innlent 6.8.2024 12:32
Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Leitin að ferðamönnunum sem gengið var út frá að væru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum hefur enn engan árangur borið. Búið er að leita á þeirri staðsetningu sem gefin var upp í upphaflegu tilkynningunni án þess að nokkrar vísbendingar hafi fundist. Nú er verið að víkka út leitarsvæðið. Innlent 6.8.2024 12:29
Margir urðu brekkunni að bráð Þrátt fyrir ansi slæmt veður skemmtu langflestir sér vel á Þjóðhátíð í ár að sögn formanns Þjóðhátíðarnefndar. Fimmtán þúsund manns voru í Vestmannaeyjum um helgina og lenti brekkan í Herjólfsdal illa í því sunnudagskvöldið. Innlent 6.8.2024 11:52
Skjálftavirkni meiri en landris hægara Skjálftavirkni á Reykjanesi hefur aukist en hægt á landrisi. Enn eru taldar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á svæðinu á næstu dögum. Innlent 6.8.2024 11:36
Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum Í hádegisfréttum fjöllum við um viðamikla leit sem staðið hefur yfir í Kerlingarfjöllum frá því í gærkvöldi eftir að boð bárust um að ferðamenn væru fastir inni í helli á svæðinu. Innlent 6.8.2024 11:27
Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Forseti Bangladess sleit þingi í dag eftir að Sheikh Hasina, forsætisráðherra, flúði land í skugga harðra mótmæla gegn stjórn hennar. Jafnframt tilkynnti forsetinn að erkiandstæðingur Hasina hefði verið frelsaður úr stofufangelsi. Erlent 6.8.2024 11:26
„Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Umfangsmikil eignaspjöll voru unnin á Húnaskóla á Blönduósi í nótt. Allar rúður voru brotnar í eldhúsi og smíðastofu grunnskólans og þar framin töluverð skemmdarverk. Lögregla rannsakar nú málið. Innlent 6.8.2024 11:19
Hefur sakamálarannsókn á stjórnarandstöðunni Ríkissaksóknari Venesúela hóf sakamálarannsókn á leiðtoga og forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar fyrir að vefengja opinber úrslit forsetakosninganna og að hvetja lögreglu og her til lögbrota. Yfirvöld hafa enn ekki birt öll kjörgögn sem kallað hefur verið eftir. Erlent 6.8.2024 10:29
Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Ferðamenn sem leitað hefur verið að nærri Kerlingarfjöllum á miðhálendinu síðan í gærkvöldi höfðu samband við netspjall Neyðarlínunnar og gáfu upp staðsetningarhnit. Netspjallið lokaðist í framhaldinu og enginn hefur fundist nálægt þeirri staðsetningu sem gefin var upp. Innlent 6.8.2024 10:13
Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, tryggði sér formlega útnefningu Demókrataflokksins sem forsetaefni hans í gær. Hún hyggst kynna varaforsetaefni sitt á kosningafundi í Pennsylvaníu í dag. Erlent 6.8.2024 07:49
Rólegra veður en líkur á síðdegisskúrum Spáð er rólegra veðri í dag en undanfarna daga með hægri austlægri eða breytilegri átt. Bjart verður með köflum en líkur á síðdegisskúrum allvíða. Áfram er þó spáð leiðinlegu veðri á Suðausturlandi með norðaustan kalda eða strekkingi og rigningu öðru hverju. Veður 6.8.2024 07:26
Viðbúnaður aukinn vegna mögulegra átaka milli Íran og Ísrael Joe Biden Bandaríkjaforseti fundaði með þjóðaröryggisráði landsins í gær vegna mögulegra hefndaraðgerða Íran gegn Ísrael. Viðbúnaður Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum hefur verið aukinn. Erlent 6.8.2024 07:23
Níu starfsmenn UNRWA reknir vegna aðildar að árásunum 7. október Níu starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) kunna að hafa tekið þátt eða átt aðild að árásum Hamas á byggðir í Ísrael 7. október síðastliðinn. Erlent 6.8.2024 06:51
Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi vegna slasaðs ferðamanns á Baulu. Aðstæður voru erfiðar og þrátt fyrir að búið væri að finna manninn um klukkan tvö í nótt tókst þyrlu ekki að koma að fyrr en um klukkan fjögur. Innlent 6.8.2024 06:34
Ferðamennirnir ófundnir Ferðamennirnir sem taldir eru fastir í helli nærri Kerlingarfjöllum eru enn ófundnir. Leit stendur yfir og um 135 björgunarmenn á vettvangi eins og er. Innlent 6.8.2024 06:24
Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrr í kvöld vegna ferðamanns sem hafði slasast á fjallinu Baulu í Borgarfirði. Innlent 6.8.2024 00:11
Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Björgunarsveitir á Suðurlandi og rústabjörgunarhópar á höfuðborgarsvæði hafa verið kallaðar út vegna tilkynningar um ferðamenn sem hafi fest sig inni í helli á Suðurlandi. Um stórt útkall er að ræða en lélegt skyggni á svæðinu hjálpar ekki til. Innlent 5.8.2024 23:04
Fundinn heill á húfi Maðurinn, sem lögregla lýsti eftir fyrr í kvöld, er fundinn heill á húfi. Innlent 5.8.2024 22:11
Kennedy yngri losaði sig við bjarnarhúnshræ í Central Park Bandaríski forsetaframbjóðandinn Robert F. Kennedy yngri viðurkennir í myndbandi á X að hafa losað sig við bjarnarhúnshræ í almenningsgarðinum Central Park í New York fyrir tíu árum síðan. Atvikið vakti mikla athygli og furðu á sínum tíma. Erlent 5.8.2024 19:22