Fréttir

„Í einu til­viki var talað um nauðgunar­leik“

Dósent við lagadeild HR sem gerði rannsókn á dómum í ofbeldismálum þar sem kyrkingartaki var beitt segir að algeng málsvörn gerenda sé að um harkalegt kynlíf hafi verið að ræða. Í einu tilviki hafi gerandi talað um nauðgunarleik sem leikinn hafi verið að frumkvæði brotaþola.

Innlent

Ó­sáttur við skil­yrðin

Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst enn ósáttur við þau samningsskilyrði sem Íranir og Bandaríkjamenn semja nú um. Íranskir ríkismiðlar hafa greint frá meintum samningsdrögum en Hvíta húsið kallar þau hreinan uppspuna.

Erlent

„Ég varð bara reiður, enda­laust reiður“

Íbúi við Álafoss í Mosfellsbæ segir fólk á svæðinu reitt vegna áhrifa sem borframkvæmdir í Skammadal hafa haft á lífríki Varmár. Veitur stöðvuðu í dag framkvæmdirnar á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum og ætla að kalla til óháða sérfræðinga til að meta áhrifin.

Innlent

Konan komin í leitirnar

Kona sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Lögreglan hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið.

Innlent

Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir

Stefnt er að því að nýi Arnarnesvegurinn um Vatnsendahæð verði opnaður að hluta í lok næsta mánaðar og vegurinn í heild í október í haust. Þetta tíu milljarða króna verkefni er stærsta vegagerð á höfuðborgarsvæðinu hin síðari ár.

Innlent

Meiri­hlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum

Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í pontu í þingsal í dag til að ræða þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ljóst þykir að meirihlutanum liggur á að koma málinu í gegnum þingið svo fyrirhuguð dagsetning atkvæðagreiðslu standist.

Innlent

„Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um er­lend á­hrif

„Það er augljóst að þetta kemur frá ákveðnum stöðum erlendis frá til þess að hafa áhrif á innlenda umfjöllun [um þjóðaratkvæðagreðislu um Evrópusambandið],“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um svokallaða „Viðreisnarbotta“.

Innlent

Hjónasjálfa, gleði og faðm­lög í Við­ey

Það dró til tíðinda í morgun þegar fréttamenn voru kallaðir út í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningar. Blaðamannafundurinn var boðaður með skömmum fyrirvara og þurfti fjölmiðlafólk að hafa snör handtök líkt og oft áður til að geta miðlað viðburðinum til landsmanna. Þétt var setið í Viðeyjarferjunni á ellefta tímanum og fylgdu svo fleiri borgarfulltrúar í kjölfarið.

Innlent

Nýr borgar­stjóri mætir í beina út­sendingu

Nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur í Viðey í dag. Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs í eitt ár og Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar. Einar og Björg munu svo eiga stólaskipti.

Innlent

Lands­net lagði land­eig­endur í Hæsta­rétti

Hæstiréttur dæmdi Landsneti í vil og hafnaði í dag kröfu nokkurra landeigenda um að ógilda ákvörðun umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra frá 21. júní 2024 um heimild Landsnets til eignarnáms réttinda vegna lagningar Suðurnesjalínu 2 í Sveitarfélaginu Vogum. Landsnet viðurkennir í tilkynningu að samtal við sveitarfélög, landeigendur og aðra hagaðila hefði klárlega mátt ganga betur.

Innlent

Býr sig undir það versta en vonar það besta

Bændur á Austurlandi og Norðurlandi hafa verið hvattir til að huga að lömbum sínum næstu daga vegna norðaustanhrets sem væntanlegt er á morgun. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Austurland að Glettingi og þá hefur lögreglan á Norðurlandi vestra beðið bændur um að huga að lambfé.

Innlent

Fótbolti.net legið niðri í á annan sólar­hring

Ein vinsælasta íþróttafréttasíða landsins, Fótbolti.net, hefur legið niðri í einn og hálfan sólarhring. Eigandi síðunnar segir ástæðuna vera bilun hjá hýsingaraðila í Þýskalandi, búist sé við því að vefurinn verði kominn aftur í loftið fyrir kvöldið þegar spilaðir verða leikir í Lengubikarnum og í Gatorade bikarnum.

Innlent

Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka

VR, LÍV og fagfélögin fordæma vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem tilkynntar voru fyrir helgi í kjölfar þess að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta og standa því í 7,75 prósentum. Þau krefjast þess að bankarnir dragi vaxtahækkanir til baka svo kjarasamningar haldist.

Innlent

Bók­stafir verði að tölu­stöfum

Áform mennta- og barnamálaráðuneytisins um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla sem miða að því að námsmat verði sett fram með tölum en ekki bókstöfum hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðgert er að allar lokaeinkunnir verði settar fram í tölum og að kvarðinn verði skyldubundinn við lok fjórða, sjöunda og tíunda bekkjar.

Innlent

Drauga­gangur, búrtíkur og öngull í rassi

Fólk bregst vægast sagt misvel við nýmynduðum borgarstjórnarmeirihluta á Facebook og ljóst að hægra megin við miðju þykja berin gallsúr en eins og Baldur Hermannsson bendir á þá er lífið nú einu sinni þannig að „oft kemur grátur eftir skellihlátur.“

Innlent

„Þetta vita Einar og Björg“

Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segist óttast að fyrirætlanir nýs meirihluta um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni fela í sér miklar tafir á framkvæmdum og viðhalda umferðarhnútum í borginni til næstu ára. Hann segist ekki sjá handbragð Viðreisnar í meirihlutasáttmálanum og furðar sig á því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar vilji nú endurskoða samgöngusáttmála sem hann hafi skrifað undir fyrir átján mánuðum síðan.

Innlent

Lenda þremur geim­förum á tunglinu á þessu ári

Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað.

Erlent

Skotið fór í gegnum hand­legg og endaði í öxl

Byssuskotið sem hæfði mann í íbúð við Hafnarbraut á Kársnesi á sunnudag er talið hafa farið í gegnum hægri framhandlegg hans og endað í vinstri öxl. Eitt og sama skotið virðist því hafa valdið áverkum á fleiri en einum stað á líkama mannsins. Hann var fluttur á sjúkrahús eftir árásina en var ekki talinn í lífshættu.

Innlent

Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann

Oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík hafa þegar átt samtal við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þeir segja ætlunina ekki að tefja framkvæmdir heldur þurfi að endurskoða tillögur um veggjöld og flýta Miklubrautargöngum.

Innlent

Taka á­sýnd Varmár al­var­lega og stöðva borframkvæmdir

Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið fái að njóta vafans. Þá verða óháðir sérfræðingar fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hefur verið veitt í ána og Varmárósa.

Innlent

Trump-liði vann og Demó­kratar fagna

Ken Paxton, dómsmálaráðherra Texas, velti í gær öldungadeildarþingmanninum John Cornyn úr sessi. Paxton bar sigur úr býtum í forvali Repúblikanaflokksins um tilnefningu til baráttunnar um þingsæti Cornyns en sigurinn ítrekar enn og aftur gífurleg áhrif Donalds Trump, forseta, innan flokksins.

Erlent