Bíó og sjónvarp
118 119 120 121 122 123 124 125 126 … 140 ›
Mynd fyrir týndu kynslóðina í íslenskri bíómenningu „Bæði bókin og leikverkið eru algjör snilld," segir handritshöfundurinn Ottó Geir Borg sem í félagi við leikstjórann Gunnar Björn Guðmundsson hefur fengið styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands til að gera handrit eftir unglingabók Ólafs Hauks Símonarsonar, Gauragangur. Bíó og sjónvarp 10.8.2007 04:45
Leikstjóri Star Trek til Íslands Miklar líkur eru á því að næsta Star Trek-mynd verði tekin hér á landi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins berjast Saga Film og Pegasus enn um að fá umsjón með tökunum hér á landi. Bíó og sjónvarp 10.8.2007 02:15
Draugar Milos Forman Goya`s Ghost, nýjasta kvikmynd hins tékkneska Milos Forman, verður meðal kvikmynda á Bíódögum Græna ljóssins sem hefjast eftir tæpa viku. Myndin segir frá ævi spænska málarans Francisco Goya og er stjörnum prýdd en meðal leikara eru þau Natalie Portman og Javier Bardem auk Stellan Skarsgaard sem fer með hlutverk Goya. Bíó og sjónvarp 10.8.2007 00:30
Þjóðsögur á mynddiskum Tvíeykið góða úr Stundinni okkar, þau Þóra Sigurðardóttir og Jóhann G. Jóhannsson, hafa nú gefið út DVD-diska sem innihalda þættina Sögurnar okkar. „Þetta eru þættir sem við gerðum fyrir RÚV og voru sýndir í fyrra,“ segir Þóra. Bíó og sjónvarp 10.8.2007 00:15
Umbreytingar líta dagsins ljós Kvikmyndin Transformers eða Umbreytingar var frumsýnd í gær hér á landi en hún þykir ein best heppnaða sumarmyndin. Myndin er byggð á frægum leikföngum frá 7. áratug síðustu aldar sem eiga rætur að rekja til Japans. Bíó og sjónvarp 9.8.2007 05:45
Harris leikstýrir Bandaríski leikarinn Ed Harris hyggst setjast aftur í leikstjórastólinn og að þessu sinni leikstýra alvöru vestra. Bíó og sjónvarp 9.8.2007 03:15
Baltasar Kormákur í Independent Nafn leikarans, leikstjórans og framleiðandans Baltasars Kormáks verður sífellt stærra í hinum alþjóðlega kvikmyndaheimi og í tilefni þess að mynd hans, A Little Trip to Heaven, kom út á DVD í Bretlandi í vikunni var hann í stuttu viðtali við hið virta blað Independent á þriðjudag. Bíó og sjónvarp 9.8.2007 00:30
Casablanca endurgerð á Indlandi Hin margrómaða kvikmynd Casablanca verður endurgerð á Indlandi. Gamla handritið verður þýtt og staðfært að suður-indverskum nútímaveruleika. Bíó og sjónvarp 8.8.2007 17:28
Pollack dregur sig í hlé vegna veikinda Hinn 73 ára kvikmyndaleikstjóri Sydney Pollack hefur dregið sig í hlé sem leikstjóri pólitískrar dramamyndar sem hann ætlaði að hefja vinnu við nú í haust. Myndin fjallar um líf fólks sem tók þátt í að endurtelja atkvæðin í Flórída í bandarísku forsetakosningunum árið 2000. Bíó og sjónvarp 7.8.2007 13:15
Tvöfalt verðmætari en Tom Cruise Hollywoodleikarinn Matt Damon er sá leikari sem skilar kvikmyndaframleiðendum hvað mestum hagnaði miðað við þau laun sem hann fær greidd, samkvæmt nýrri könnun Forbes tímaritsins. Bíó og sjónvarp 7.8.2007 09:33
Í lykilhlutverki í myndinni Baltasar Kormákur lagði af stað til Flateyjar á Breiðafirði í gær, ásamt fríðum flokki leikara og tökuliðs. Hann ætlar að dveljast í Flatey í mánuð eða svo, á meðan tökur standa yfir á kvikmynd hans, nýrri útgáfu af leikriti Antons Tsjekov, Ivanoff. Bíó og sjónvarp 4.8.2007 06:00
Planet Terror - Fjórar stjörnur Frábær skemmtun fyrir alla nema viðkvæmar sálir. Bíó og sjónvarp 4.8.2007 00:01
Styttist í kvikmyndaveislu Græna Ljóssins Fimm nýjar myndir hafa verið staðfestar á á bíódaga Græna ljóssins, en nú eru ekki nema tvær vikur í að þeir hefjist. Bíó og sjónvarp 2.8.2007 13:17
Meistari nútímans Ítalski leikstjórinn Michelangelo Antonioni, sem er þekktastur fyrir kvikmyndirnar Blow-Up og L"Avventure, er látinn. Lést hann á heimili sínu í Róm 94 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 1.8.2007 05:00
Ingmar Bergman er látinn Sænski leikstjórinn og rithöfundurinn Ingmar Bergman lést á heimili sínu á eyjunni Faro í Svíþjóð í gærmorgun. Hann var 89 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 31.7.2007 03:30
Einar Snorri með stuttmynd á Live Earth Leikstjórinn Einar Snorri Einarsson leikstýrði á dögunum stuttmynd í tilefni Live Earth-tónleikanna sem voru haldnir um allan heim þann 7. júlí síðastliðinn. Bíó og sjónvarp 31.7.2007 02:30
Heimildamynd um íslenskan plötusnúð í bígerð Verið er að leggja smiðshöggið á heimildamyndina From Oakland to Iceland: Hip Hop Homecoming. Myndin fjallar um þrítugan íslenskan plötusnúð, DJ Platurn, sem hefur verið búsettur í Kaliforníu frá sjö ára aldri, og lifir og hrærist í hip-hop og plötusnúða- menningunni þar. Honum er fylgt eftir í heimsókn á æskuslóðirnar haustið 2006 þar sem hann ferðast um landið, kynnist íslenskum plötusnúðum og röppurum og spilar, meðal annars á Iceland Airwaves hátíðinni. Bíó og sjónvarp 26.7.2007 11:57
Simpson frumsýnd á morgun Kvikmyndin um Simpson fjölskylduna verður frumsýnd hér á landi á morgun. Sama dag verður einnig sýndur á Stöð 2 tímamótaþáttur - sá fjögurhundruðasti í röðinni. Bíó og sjónvarp 26.7.2007 10:34
Í beinu sambandi við Jónas „Ég vil meina að Jónas sé að tala í gegnum mig,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Valdimar Leifsson sem er að ljúka tökum á sjónvarpsmynd í fullri lengd um Jónas Hallgrímsson, einn af Fjölnismönnum okkar á nítjándu öld. Myndin er samansett af leiknum atriðum og viðtölum og er að sögn leikstjórans eins konar ljóð til Jónasar í kabarettstíl. Bíó og sjónvarp 26.7.2007 05:45
Stærsta verkefni Hómers Simpson Simpson-fjölskyldan mætir í íslensk kvikmyndahús á morgun. Sú heimsókn á eflaust eftir að gleðja marga Íslendinga enda hafa þau Hómer, Marge, Bart, Lísa og Maggie verið heimilisvinir okkar síðustu 18 árin. Bíó og sjónvarp 26.7.2007 01:45
Alvöru aðdáendur sjá báðar „Það er nú alltaf svolítil tilhlökkun í manni fyrir frumsýningu en maður er orðinn svo sjóaður að maður lætur það ekki á sig fá lengur,“ segir Jakob Þór Einarsson sem leikstýrir íslensku talsetningunni á Simpsons-myndinni. Bíó og sjónvarp 26.7.2007 00:00
Var alveg biðarinnar virði „Það verður búið að skreyta Laugaveginn þegar ég kem heim,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason. Hann er nú loksins kominn til Berlínar þar sem undirbúningur fyrir hasarmyndina Stopping Power er kominn á fullt. Leikstjóri myndarinnar er enginn annar en hinn hollenski Jan de Bont sem sjálfur hóf feril sinn í kvikmyndatökustólnum. Bíó og sjónvarp 23.7.2007 04:15
Del Toro leikur Che Guevara Leikarinn Benecio del Toro hefur tekið að sér hlutverk argentínska byltingarsinnans Ernesto Che Guevara í nýrri kvikmynd eftir Steven Soderbergh. Myndin, sem nefnist Guerilla, verður tekin upp á níu vikum víðs vegar um Spán. Verður eingöngu töluð spænska í henni. Bíó og sjónvarp 22.7.2007 04:30
Cruise tekur upp í Þýskalandi Tökur eru hafnar í Þýskalandi á nýjustu kvikmynd Tom Cruise, Valkyrie, þrátt fyrir að framleiðendunum hafi verið meinaður aðgangur að fyrirhuguðum tökustað í Berlín. Bíó og sjónvarp 21.7.2007 05:45
Írak í nýju ljósi á RIFF Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík (RIFF) hyggst sýna fjórar nýjar heimildarmyndir sem varpa mismunandi ljósi á ástandið í Miðausturlöndum. Kastljósinu verður hins vegar fyrst og fremst beint að innrás bandamanna í Írak. Bíó og sjónvarp 18.7.2007 05:45
Ný X-Files kvikmynd væntanleg Ný X-Files kvikmynd sem mun byggja á X-Files sjónvarpsþáttunum vinsælu er væntanleg. David Duchovny, annar aðalleikari þáttanna, hefur greint frá því að hann muni fá handrit að myndinni afhent í næstu viku. Duchovny og mótleikkonan Gillian Anderson munu bæði leika í myndinni og fara með hlutverk einkaspæjaranna Mulders og Scully. Bíó og sjónvarp 16.7.2007 14:00
Leo vill vera Hefner Þær gerast nú enn háværari raddirnar sem segja að Leonardo DiCaprio muni leika félaga sinn Hugh Hefner í væntanlegri kvikmynd um líf Playboymógúlsins. Bíó og sjónvarp 12.7.2007 14:53
Gullmolinn Harry Potter Fimmta kvikmyndin um Harry Potter var frumsýnd í gærkvöldi. Þetta þýðir að einungis tvær myndir eru eftir um galdrastrákinn að þessu sinni þótt heimsbyggðin eigi eflaust eftir að sjá eina eða tvær endurgerðir eftir nokkra áratugi eða aldir enda hefur það sýnt sig að allt sem Harry Potter snertir verður að gulli. Bíó og sjónvarp 12.7.2007 09:45
Carell njósnar Hann er heldur skrautlegur leikhópurinn sem tekur þátt í næstu kvikmynd Steves Carell. Vefsíða Empire-tímaritsins greinir frá því að Alan Arkin sé búinn að ráða sig um borð en þeir Carell léku einnig saman í Little Miss Sunshine þar sem Arkin fékk Óskarsverðlaun. Bíó og sjónvarp 12.7.2007 06:45
Dularfullur Abrams Kvikmyndaframleiðandinn JJ Abrams hefur haldið bandarískum stórmyndaaðdáendum í heljargreipum eftir frumsýningu Transformers. Á undan myndinni hefur mátt sjá myndbrot úr kvikmynd sem gekk í fyrstu undir vinnuheitinu Cloverfield án þess að það sé upplýst einhvern tímann á sýningarferlinum. Bíó og sjónvarp 12.7.2007 06:00