Fastir pennar
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 245 ›
Jarðtengingin Magnús Halldórsson skrifar Ég lendi alltaf reglulega í nettum rifrildum við kollegga mína í blaðamannastétt um landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið, þar sem ég bý ásamt fjölskyldu minni og líður vel. Uppvaxtarár hjá foreldrum á Húsavík, þar sem pabbi hefur alla tíð verið rótfastur, og vopnfirskar rætur í móðurætt, eru líklega ástæðan fyrir því að ég finn mig alltaf knúinn til þess að taka til varna þegar landsbyggðin – oftast nær öll innpökkuð í sama orðið – er töluð niður af fólki sem býr á höfuðborgarsvæðinu. Uppspretta deilnanna er mismunandi, eins og gengur, og oft eru það jarðgöng sem vekja reiði og illdeilur. Stundum eitthvað annað, eins og umkvartanir fólks sem býr á landsbyggðinni yfir því að það sé verið að leggja niður grunnheilbrigðisþjónustu sem til þessa hefur verið svo til óumdeilt jafnréttismál í hugum Íslendinga. Fastir pennar 23.10.2012 12:36
Fullorðnir og ADHD Teitur Guðmundsson skrifar Töluverð umræða hefur myndast um þessa greiningu hjá fullorðnum eftir að nýtt fjárlagafrumvarp leit dagsins ljós, en þar kom fram að greiðsluþátttöku í slíkum lyfjum yrði hætt hjá fullorðnum. Þetta hefur nú verið leiðrétt og dregið til baka, voru þetta víst mistök í fyrstu útgáfu frumvarpsins. Ekki liggur þó endanlega fyrir hvernig greiðslum verður háttað. Það hefur komið fram að þessi lyf eru dýr og einnig að Íslendingar virðist nota meira af þeim en aðrir, en alþjóðaráð Sameinuðu þjóðanna gagnrýndi Íslendinga árið 2011 vegna mikillar notkunar Rítalíns. Fastir pennar 23.10.2012 06:00
Skilnaður fremur en girðingar Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ráðgjafahópur atvinnuvega- og fjármálaráðherra skilaði í síðustu viku tillögum um heildarumgjörð um fjármálastöðugleika á Íslandi. Þeirra á meðal eru margar tillögur um hvernig takmarka megi eða koma í veg fyrir áhættusækni í endurreistu bankakerfi, til þess auðvitað að mistökin sem leiddu til hrunsins fyrir fjórum árum endurtaki sig ekki. Fastir pennar 23.10.2012 06:00
Jákvætt ferli Guðmundur Andri Thorsson skrifar Kosningaþátttakan í fyrradag var ekki nógu léleg til að hægt sé að hundsa niðurstöðurnar. Hún var kannski ekki stórfengleg en nægileg til að taka verður kosningarnar alvarlega. Fastir pennar 22.10.2012 06:00
Falinn hópur Steinunn Stefánsdóttir skrifar Geðsjúkdómar eru yfirleitt miklu meira feimnismál en aðrir sjúkdómar þótt vissulega hafi undanfarin ár dregið úr þeirri leynd og skömm sem loðað hafa við geðsjúkdóma. Talsverður hluti fólks leitar sér þó aðstoðar fagfólks vegna geðrænna kvilla einhvern tíma á lífsleiðinni og enn fleiri myndu áreiðanlega gera það ef sjúkdómurinn væri ekki það feimnismál sem hann er. Talið er að um 23% verði geðsjúkir einhvern tíma á lífsleiðinni en um 2% verða öryrkjar af völdum geðsjúkdóma. Fastir pennar 20.10.2012 06:00
Fimm mínútna umhugsun = já Þorsteinn Pálsson skrifar Félagsskapur heitir Stjórnarskrárfélagið. Það tók að sér sókn og vörn í stjórnarskrármálinu. Á vegum þess hafa birst athyglisverðar auglýsingar sem varpa skýru ljósi á hugsunina að baki því verklagi sem ríkisstjórnin kaus í þessu stóra máli sem kjósendur eiga að lýsa áliti sínu á í dag. Í þeim er staðhæft að ekki taki lengri tíma en fimm mínútur að kynna sér málið. Jafnvel ekki meira en þrjár mínútur. Fastir pennar 20.10.2012 06:00
Kaliforníuvæðing Pawel Bartoszek skrifar Kalifornía væri áttunda stærsta hagkerfi heims væri hún sjálfstætt ríki. Með sinn blómlega hátækni- og afþreyingariðnað ætti fylkið að hafa allar forsendur til að vera í ágætum málum fjárhagslega. Reyndin er hins vegar önnur. Kalifornía veður í skuldafeni. Um það eru flestir sammála. Það eru ekki allir jafnsammála um ástæðurnar en beint lýðræði er þó oftar en ekki nefnt sem skýring. Fastir pennar 19.10.2012 06:00
Áfram eða aftur á byrjunarreit Steinunn Stefánsdóttir skrifar Frá stofnun lýðveldisins hefur endurskoðun stjórnarskrár verið á dagskrá. Ekki stóð enda annað til en að stjórnarskráin sem samþykkt var með miklum einhug samfara því að gengið var til atkvæða um stofnun lýðveldisins væri til bráðabirgða. Um það vitna fjöldamörg ummæli stjórnmálamanna úr öllum flokkum eins og Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur hefur dregið rækilega fram. Fastir pennar 19.10.2012 06:00
Spurningarnar sem vantar Ólafur Þ. Stephensen skrifar Í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn mun þjóðin ekki kjósa um nýja stjórnarskrá, sem hefur verið lögð fyrir hana í fullbúinni mynd. Atkvæðagreiðslan er eingöngu leiðbeinandi fyrir Alþingi, sem mun óhjákvæmilega þurfa að gera breytingar á þeim drögum stjórnlagaráðs sem nú liggja fyrir, sama hvernig atkvæðagreiðslan fer. Fastir pennar 18.10.2012 06:00
Stúlka sem breytir heiminum Steinunn Stefánsdóttir skrifar Enn er óljóst með öllu hver afdrif baráttukonunnar og skólastúlkunnar Malölu Yousafzai verða en hún var skotin í höfuðið í síðustu viku. Tilræðismenn, talibanar, skutu stúlkuna þegar hún var á leið heim úr skóla í bænum Mingora í Swat-dalnum sem er norðaustur af Islamabad í Pakistan. Talibönum tókst þó ekki ætlunarverk sitt að ráða Malölu af dögum. Fastir pennar 17.10.2012 06:00
Áminning um lærdóm sögunnar Veiting friðarverðlauna Nóbels er oftast nær umdeild – og á að vera það. Norska Nóbelsnefndin hefur oft komið á óvart og oft verið gagnrýnd fyrir val sitt á verðlaunahafa. Ein forsenda þess að Nóbelsverðlaunin eru þau friðarverðlaun sem vekja mesta athygli á heimsvísu er einmitt að valið er ekki alltaf fyrirsjáanlegt. Fastir pennar 16.10.2012 06:00
Læknar og tæknin Teitur Guðmundsson skrifar Það er merkilegt hversu hratt allri tækniþróun hefur fleygt fram á undanförnum árum og hún hefur sannarlega ekki farið fram hjá læknisfræðinni samhliða því sem hún umbyltir samfélaginu. Í dag erum við vön því að notast við Internetið til að afla okkur upplýsinga og að sjálfsögðu einnig um sjúkdóma, greiningu og horfur. Sjúklingar sem koma til læknis í dag eru vel að sér og búa jafnvel yfir þekkingu sem læknirinn hefur ekki haft ráðrúm til að afla sér. Í sumum tilvikum er einstaklingur með öflugan snjallsíma og 3G tengingu fljótari á netið á stofunni en læknirinn í borðtölvunni. Það eru breyttir tímar og þeir eru skemmtilegir. Fastir pennar 16.10.2012 06:00
Óður um þjóð Guðmundur Andri Thorsson skrifar Á dögunum voru hér norskir sveitastjórnarmenn þeirra erinda að kaupa Íslendinga. Þá vantaði gott fólk í álverið sitt – vinnusamt og vel menntað fólk eins og Íslendinga því að nú orðið vill fólkið þeirra víst frekar flytja í stóru borgirnar. ?Hjá okkur er nóg vinna,? sögðu þeir – sem hljómaði kunnuglega – en þeir bjóða líka upp á ýmislegt fleira þarna úti, skilst manni: Þar er líka nógur tími fyrir Fastir pennar 15.10.2012 06:00
Ekki ósnertanlegir Þórður Snær Júlíusson skrifar Fyrirliði íslensks landsliðs lét hafa eftir sér, hlæjandi, í viðtali í síðustu viku að albanska þjóðin væri mestmegnis glæpamenn og land þeirra væri ekki upp á marga fiska. Albanir voru eðlilega ekki sáttir og í kjölfarið þurftu margir að biðjast afsökunar á ótrúlegu dómgreindarleysi fyrirliðans, meðal annars hann sjálfur. Fastir pennar 15.10.2012 06:00
Nýtt fjármálakerfi slítur barnskónum Magnús Halldórsson skrifar Ef marka má síðustu yfirlýsingar valdamesta fólks heimsins, þegar kemur að fjármálakerfum og þróun efnahagsmála, þá er langt í að rekstur fjármálafyrirtækja í Evrópu fari að einkennast af stöðugleika og góðum rekstrarhorfum. Fastir pennar 15.10.2012 00:00
Höfuðsafn á hrakhólum Steinunn Stefánsdóttir skrifar Eitt þriggja höfuðsafna þjóðarinnar er húsnæðislaust. Bæði Listasafn Íslands og Þjóðminjasafnið búa við glæsilegan húsakost sem mikill sómi er að meðan náttúrugripasafnið er húsnæðislaust, svo illa húsnæðislaust að hér hefur ekki staðið uppi sýning á safnkostinum síðan árið 2008, ári eftir að lög um Náttúruminjasafn Íslands, sem safnkosturinn heyrir undir, voru samþykkt. Fastir pennar 13.10.2012 06:00
Munur á valdi og viðhorfi Þorsteinn Pálsson skrifar Alþingi hefur ákveðið að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um nýja stjórnarskrá eftir viku. Sumir segja að það verði dagur mesta lýðræðissigurs þjóðarinnar frá upphafi vega. Aðrir halda því fram að Alþingi hafi ákveðið að efna til dýrustu skoðanakönnunar sem sögur fara af. Hvor fullyrðingin er rétt? Eða skiptir það engu máli? Fastir pennar 13.10.2012 06:00
Samfélagsleg áhrif kláms Róbert R. Spanó og Halla Gunnarsdóttir skrifar Innanríkisráðuneytið og lagadeild Háskóla Íslands hafa undanfarin misseri efnt til umræðu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu. Hófst þetta ferli haustið 2010 með stórum samráðsfundi þáverandi dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og í framhaldinu smærri fundum með fulltrúum réttarvörslukerfisins, fræðasamfélagsins, stofnana og frjálsra félagasamtaka. Í framhaldi af samráðinu hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða og má þar nefna lagabreytingar, ráðstefnuhald, aukið formlegt samráð varðandi rannsókn kynferðisbrota og gerð fræðilegrar rannsóknar sem nú stendur yfir. Fastir pennar 12.10.2012 00:01
Það verður ekkert lagað seinna Pawel Bartoszek skrifar Þorvaldur Gylfason hélt því fram í Kastljósinu á þriðjudag að verði fyrstu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni um drög stjórnlagaráðs svarað játandi af meirihluta kjósenda þá geti Alþingi ekki annað en samþykkt drögin óbreytt sem nýja stjórnarskrá. Þetta er auðvitað ekki þannig. En það er samt ansi líklegt að þetta verði þannig. Fastir pennar 12.10.2012 00:00
Andúð á erlendu Þórður Snær Júlíusson skrifar Þegar íslensku bankarnir hrundu var ákveðið að láta erlenda kröfuhafa þeirra "taka höggið“ með því að gera innstæður að forgangskröfum. Íslendingar ákváðu að breyta reglunum eftir á og því var sýndur skilningur á alþjóðavísu, enda blasti kerfishrun við þjóðinni ef önnur leið hefði verið valin. Erlendu kröfuhafarnir voru samt "brenndir“ og það kostaði þá þúsundir milljarða króna. Til viðbótar voru þeir sem settu peninga inn á Icesave-reikninga "brenndir“, enda innstæður útlendinga ekki taldar jafn mikilvægar og innstæður Íslendinga. Fastir pennar 12.10.2012 00:00
Út með pólitíkina Ólafur Þ. Stephensen skrifar Meginniðurstöður úttektarnefndar á rekstri Orkuveitu Reykjavíkur koma ekki stórlega á óvart; þær staðfesta margt sem áður var vitað. Þær setja hins vegar ýmsa þætti málsins í skýrara ljós. Fastir pennar 11.10.2012 00:00
Ímyndarherferð píkunnar Sigga Dögg skrifar Ég sá píkuna í nýju ljósi um daginn. Það var ekki svo að ég hefði spennt hana upp með goggi og stungið inn vasaljósi (þó vissulega sé það hugmynd fyrir áhugasama um leggöng). Ég sá hana í súkkulaðilíki. Í öllu sínu veldi sem smartan og girnilegan konfektmola. Við það að sjá hana svona tignarlega þá kviknaði hjá mér hugmynd. Fastir pennar 11.10.2012 00:00
Aðstöðulausir gjörgæslusjúklingar Steinunn Stefánsdóttir skrifar Engin sértæk úrræði eru fyrir hendi hér á landi fyrir fólk sem er bráðveikt á geði, engin gjörgæsla eða sérstök deild þar sem vakað er yfir þeim sem geta reynst sjálfum sér og jafnvel öðrum hættulegir. Þessi hópur dvelur nú með fólki sem er komið vel á veg í bata, jafnvel öldruðum eða ungum mæðrum. Fastir pennar 10.10.2012 00:00
Sparlega farið með dagsektirnar Ólafur Þ. Stephensen skrifar Fréttablaðið sagði frá því í síðustu viku að dagsektir vegna trassaskapar húseigenda í Reykjavíkurborg næmu nú tugum milljóna, nánar tiltekið 32 milljónum, vegna sex húsa víða um borgina. Þar er um ólík tilvik að ræða, bæði gömul hús sem trassað hefur verið að halda við (til dæmis gamla Borgarbókasafnið við Þingholtsstræti), hús í ágætu viðhaldi sem óleyfilegar breytingar hafa verið gerðar á og nýbyggingar sem ekki hefur verið gengið frá sem skyldi. Fastir pennar 9.10.2012 06:00
Rislágir karlar Teitur Guðmundsson skrifar Þegar maður veltir fyrir sér karlmennsku og því sem hana skilgreinir þá fær hver og einn eflaust einhverja mynd upp í hugann. Sumir sjá fyrir sér sterkan, stæltan, jafnvel vel hærðan, eða vaxborinn hárlausan karlmann sem lætur engan bilbug á sér finna. Þá eru aðrir sem sjá fyrir sér föðurlegan, ábyrgan og traustan aðila sem tekur af skarið, veit sínu viti og lætur ekki hlaupa með sig í gönur. Svona mætti lengi telja í stereotýpiseringu, það sem þó flestir tengja við karlmennsku, að minnsta ko Fastir pennar 9.10.2012 06:00
Hvað finnst þér? Guðmundur Andri Thorsson skrifar Þjóðfélagið er alltaf að breytast. Með hverri breytingu á lögum og reglugerðum, hverju nýju frumvarpi sem samþykkt er, verður eitthvað öðruvísi en það var áður – betra eða verra eftir atvikum, því að breytingar eru ekki góðar eða slæmar í sjálfum sér. Við þurfum að vera vakandi. Þegar skólakerfinu er breytt þá breytast kjörin hjá börnunum okkar; þegar hætt er niðurgreiðslum á tilteknum lyfjum breytast kjörin hjá gamla fólkinu; þegar breytt er lögum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum þá breytast kjörin hjá okkur – þá höfum við fengið vopn, og getum vísað í viðkomandi reglugerð. Og svo framvegis. Þetta vitum við. Fastir pennar 8.10.2012 06:00
Af hverju "ótækt“? Ólafur Þ. Stephensen skrifar Undarleg deila um skólastarf á Tálknafirði komst í hámæli í síðustu viku. Þar var síðastliðið sumar ákveðið að semja við Hjallastefnuna, sem hefur rekið leik- og grunnskóla í nokkrum sveitarfélögum með góðum árangri, um að fyrirtækið tæki að sér rekstur grunnskóla sveitarfélagsins. Þessu var yfirgnæfandi meirihluti foreldra grunnskólabarna á staðnum samþykkur. Fastir pennar 8.10.2012 06:00
Styndu af hjartans þrá Sigga Dögg skrifar Spurning: Ég er ein af þeim konum sem eiga erfitt með að fá fullnægingu í kynlífi og ég held að það sé ekki út af þekkingarleysi kærastans. Hann kann alveg sitt, mér finnst ég bara oft vera að hugsa um eitthvað allt annað þegar við stundum kynlíf. Ég ræð ekkert við það og það er mjög pirrandi því oft dett ég úr stuði og stundum tekur hann eftir því og spyr hvort ekki sé allt í lagi. Og auðvitað er allt í lagi þó stundum pæli ég í hlutum eins og hvort honum finnist ég sæt og hvað hann sé að hugsa, gera það ekki allir? Fastir pennar 6.10.2012 19:00
Upprætum ógeðið Ólafur Þ. Stephensen skrifar Umfangsmikil aðgerð lögreglu og tollgæzlu gegn glæpasamtökunum Outlaws á miðvikudagskvöldið ber vott um að löggæzluyfirvöld hyggist ekki sýna þessum félagsskap neina linkind. Fastir pennar 6.10.2012 06:00
Upplyfting andans! Þorsteinn Pálsson skrifar Ímyndum okkur sem snöggvast verkalýðsfélag. Kjarasamningar þess eru lausir. Formaðurinn á í viðræðum við atvinnurekendur um hófsamar launahækkanir. Þær ganga vel. Varaformaðurinn styður formanninn til slíkra samtala en gerir honum um leið ljóst að hann muni standa í vegi hvers þess samnings sem út úr þeim komi. Hann telur vænlegra að fara gömlu leiðina með verkföllum og verðbólgu. Fastir pennar 6.10.2012 06:00
„Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir Skoðun