Erlent

76 látnir eftir eldsvoðann í Tyrklandi
Tala látinna eftir brunann á skíðahótelinu í Tyrklandi aðfararnótt gærdagsins hefur hækkað og eru nú 76 taldir hafa látist og eru um fímmtíu slasaðir. Tyrklandsforseti hefur lýst yfir þjóðarsorg vegna málsins.

Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags
Ný stjórnvöld vestanhafs hafa fyrirskipað öllum yfirmönnum ráðuneyta og stofnana að setja alla starfsmenn sem hafa starfað að málum er varða fjölbreytni, jafnrétti, inngildingu og aðgengi (DEI eða DEIA) í leyfi, fyrir lok dagsins í dag.

Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist nú vera að íhuga að leggja tíu prósent viðbótartoll á allar vörur frá Kína frá og með næstu mánaðarmótum. Í ræðu sinni á setningarathöfninni í fyrradag fór fremur lítið fyrir tollatali en hann talaði fjálglega um tolla í kosningabaráttunni.

Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir
Donald Trump hefur tilkynnt um stofnun Stargate, nýs bandarísks fyrirtækis, sem er samstarfsverkefni fyrirtækjanna OpenAI, Softbank og Oracle, og áform þeirra um stórfellda uppbyggingu gagnavera fyrir gervigreind. Stefnt er að fjárfestingu upp á að minnsta kosti 500 milljarða bandaríkjadollara, sem samsvarar um 70 billjónum íslenskra króna.

Kæra ákvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki“
Ríkissaksóknarar í 22 ríkjum í Bandaríkjunum hafa lagt fram kæru til að koma í veg fyrir tilskipun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sem afnemur ríkisborgararétt barna innflytjenda.

Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka
Linda Fagan, yfirmaður bandarísku strandgæslunnar, hefur verið látin taka pokann sinn. Í uppsagnarbréfinu er sagt að henni hafi mistekist að tryggja öryggi á landamærunum og að framtíðarsýn nýrrar ríkisstjórnar samrýmist ekki áherslum hennar á fjölbreytileika og inngildingu. Trump segir að til standi að reka fleiri en þúsund embættismenn frá fyrri ríkisstjórn á næstu dögum.

„Við erum Grænlendingar, við erum ekki Bandaríkjamenn eða Danir“
Formaður landsstjórnar Grænlands hélt blaðamannafund fyrr í dag vegna nýlegra og endurtekinna ummæla nýs Bandaríkjaforseta sem girnist Grænland.

Tilnefning Hegseths samþykkt úr nefnd
Tilnefning sjónvarpsmannsins Petes Hegseth til embættis varnarmálaráðherra var samþykkt úr nefnd í öldungadeild Bandaríkjaþings í gærkvöldi. Atkvæðagreiðslan fylgdi flokkslínum, 14-13, og er búist við miklum deilum þegar tilnefningin fer fyrir öldungadeildina í heild.

Náðaði fólk sem beitti lögregluþjóna ofbeldi
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, náðaði í gærkvöldi alla sem hafa verið dæmdir eða felldi niður mál gegn þeim sem hafa verið ákærðir vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021. Þar á meðal eru menn sem dæmdir voru fyrir að ráðast á lögregluþjóna og meðlimir Proud boys og Oath keepers hópanna svokölluðu, sem voru meðal annars dæmdir fyrir uppreisnaráróður.

Yfir níu kílómetrum á sekúndu á vindasömustu plánetunni
Skotvindur á fjarlægri fjarreikistjörnu er sá sterkasti sem nokkru sinni hefur mælst, yfir níu kílómetrar á sekúndu. Ný tækni er sögð gera stjörnufræðingum kleift að gera nákvæmari athuganir á veðri á fjarreikistjörnum á næstu árum.

Gera umfangsmikið áhlaupa á Vesturbakkanum
Ísraelskir hermenn gerðu í morgun áhlaup á Jenin á Vesturbakkanum, sem talið er að muni standa yfir í að minnsta kosti nokkra daga. Áhlaupið hófst á nokkrum drónaárásum sem herinn segir að hafi beinst að innviðum hryðjuverkasamtaka.

Dularfullar kúlur innihalda ösku, mettaðar fitusýrur og saurgerla
Dularfullar kúlur sem urðu til þess að nokkrum ströndum í Sydney í Ástralíu var lokað í síðustu viku reyndust innihalda mettaðar fitusýrur, saurgerla og E. coli bakteríur.

Segir Hitler-samanburð þreyttan
Elon Musk, auðugasti maður heims, segir árásir Demókrata gegn sér vera orðnar þreyttar. Þeir þurfi að finna ný „óþrifabrögð“ því að það sé orðið þreytt að kalla fólk nasista eða Adolf Hitler.

Gera ráð fyrir að þúsundir líka sé að finna í húsarústunum
Viðbragðsaðilar á Gasa segjast gera ráð fyrir því að yfir 10 þúsund lík sé að finna í húsarústum á svæðinu. Vonir standa til að hægt verði að fjarlægja líkin á næstu 100 dögum en skortur á jarðýtum og öðrum búnaði mun líklega seinka aðgerðum.

66 látnir í bruna á tyrknesku skíðahóteli
Að minnsta kosti 66 eru látnir og á sjötta tug slasaðir eftir að eldur kom upp á skíðahóteli í tyrkneska bænum Kartalkaya í norðvesturhluta landsins í nótt.

Fjöldi fólks í óvissu og óöryggi eftir fyrsta dag Trump í embætti
Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði fjölda forsetatilskipana eftir að hann sór embættiseiðinn í gær, sem margar miðuðu að því að grafa undan arfleifð forvera hans.

Musk sakaður um að heilsa „að nasistasið“
Auðjöfurinn Elon Musk sætir gagnrýni vegna handahreyfinga sem hann gerði á samkomu Repúblikana í tilefni innsetningar Donalds Trump Bandaríkjaforseta í kvöld. Hreyfingar hans eru sagðar minna á nasistakveðju.

Donald Trump forseti Bandaríkjanna: „Gullöld Bandaríkjanna hefst núna“
Donald Trump, nýr forseti Bandaríkjanna, fór yfir víðan völl í innsetningarræðu sinni. Hann hrósaði bandarísku þjóðinni ítrekað og tilkynnti einnig ýmsar breytingar sem hann hyggst framkvæma.

Fetar í fótspor eiginmannsins og stofnar rafmynt
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur stofnað sína eigin rafmynt. Hún fetar í fótspor Donalds Trump, eiginmanns hennar.

Vopnahlé skref í rétta átt en varanlegur friður ekki í sjónmáli
Tæplega 90 palestínskum föngum í Ísrael var sleppt úr Ofer fangelsinu í Ramallah í morgunsárið. Í gær var þremur ísraelskum gíslum sleppt úr haldi Hamas vegna vopnahlés sem samið var um á dögunum. Prófessor í hagfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskólann á Akureyri segir vopnahlé skref í rétta átt en að engin varanleg pólitísk lausn sé í sjónmáli.

Biden náðar Fauci, Milley og Cheney í forvarnarskyni
Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur gripið til fordæmalausra aðgerða til að náða fyrirfram einstaklinga sem Donald Trump, verðandi forseti, hefur beint reiði sinni gegn.

Játaði að hafa myrt þrjár ungar stúlkur í Southport
Átján ára gamall karlmaður játaði að hann hefði stungið þrjár ungar stúlkur til bana og sært tíu aðra í árás í Southport á Englandi þegar réttarhöld hófust yfir honum í morgun. Hann viðurkenndi einnig að hafa eitrið rísín og bækling frá hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda í fórum sínum.

Nord Stream-skemmdarverkin stærsti metanlekinn sem sést hefur
Skemmdarverkin sem voru unnin á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti árið 2022 voru umfangsmesti leki gróðurhúsalofttegundarinnar metans sem um getur. Losunin var margfalt meiri en vísindamenn áætluðu fyrst eftir sprengingarnar.

Bein útsending: Trump sver embættiseið
Donald Trump mun sverja embættiseið sem 47. forseti Bandaríkjanna í dag, klukkan 17 að íslenskum tíma. Athöfnin fer fram í þinghúsinu í Washington D.C. og hefst hálftíma fyrr.

Níutíu Palestínumenn látnir lausir
Ísraelsmenn hafa látið 90 Palestínumenn lausa í staðinn fyrir gíslana þrjá sem Hamas samtökin leystu úr haldi um helgina. Flestum palestínsku fanganna var sleppt úr Ofer-fangelsinu í Ramallah nú í morgunsárið.

Heitir umfangsmestu brottvísunum í sögu Bandaríkjanna
Umfangsmiklar brottvísanir útlendinga, stórfelldur niðurskurður umhverfisreglugerða, stórsókn í gervigreindarmálum, og stofnun hagræðingarráðuneytis eru meðal áforma sem Donald Trump útlistaði í ræðu sem hann hélt fyrir stuðningsmenn sína í kvöld. Hann verður settur í embætti forseta Bandaríkjanna á morgun.

Fjölskyldur fögnuðu þegar gíslum var sleppt
Fjölskyldur fögnuðu þegar þremur konum var sleppt úr haldi Hamas samtakanna eftir fimmtán mánaða gíslingu. Vopnahlé tók gildi á Gasasvæðinu í morgun.

Opna fyrir Tiktok á nýjan leik
Opnað hefur verið fyrir Tiktok í Bandaríkjunum á nýjan leik eftir að lokað var fyrir forritið í gærkvöldi þegar formlegt bann tók gildi. Eigendur Tiktok segja að Donald Trump hafi lofað þeim að heimila starfsemina með forsetatilskipun á morgun þegar hann tekur við embætti forseta.

Reyndi að fá bóluefni gegn Covid úr umferð á versta tíma
Robert F. Kennedy yngri, sem Donald Trump hefur tilnefnt til að leiða heilbrigðisstofnanir Bandaríkjanna, fór fram á það við Lyfjaeftirlit ríkisins að bóluefni við Covid yrðu tekin úr dreifingu. Þess krafðist hann í maí 2021 þegar þúsundir Bandaríkjamanna voru enn að deyja í viku hverri.

Stofnaði eigin „meme“-rafmynt rétt fyrir embættistöku
Donald Trump, sem tekur við embætti forseta Bandaríkjanna á morgun, stofnaði í gær eigin rafmynt. Virði rafmyntarinnar hefur aukist mjög en hún hefur þó orðið fyrir töluverðri gagnrýni.