Kærastinn var á staðnum Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2026 16:54 Hayden Panettiere á rauða dreglinum í Los Angeles árið 2022. AP/Jordan Strauss, Invision Kærasti Hayden Panettiere og bróðir hans voru í íbúðinni þegar hún lét lífið um helgina. Þeir tóku á móti fyrstu lögregluþjónunum sem mættu á staðinn, en um er að ræða íbúð í eigu fjölskyldu þeirra í Greenville í Suður-Karólínu. Bræðurnir fylgdust með endurlífgunartilraunum sjúkraflutningamanna.
Panettiere og Brian Hickerson höfðu átt í stormasömu sambandi í nokkur ár. Hann hafði verið sakaður um að beita hana ofbeldi. Hann var ákærður fyrir heimilisofbeldi árið 2020 og varði stuttum tíma í fangelsi, auk þess að vera dæmdur á skilorð til fjögurra ára. Ekki er talið að dauða hennar hafi borið að með saknæmum hætti en Panettiere hefði orðið 37 ára gömul á föstudaginn. Samkvæmt heimildum TMZ er talið að hún hafi tekið of stóran skammt af lyfseðilsskyldum lyfjum en verið er að rannsaka hvort eitthvað glæpsamlegt gæti hafa átt sér stað. Sjá einnig: Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Blaðamenn AP fréttaveitunnar hafa komið höndum yfir lögregluskýrslu vegna útkallsins til íbúðar leikkonunnar um helgina. Þar er búið að hylma yfir töluvert af upplýsingum en fram kemur að Zach Hickerson, bróðir Brians, talaði fyrstur við lögregluþjóna. Þá skrifaði lögregluþjónninn sem var fyrstur á vettvang að Zach hefði sýnt miklar tilfinningar á meðan endurlífgunartilraunir voru gerðar. Hann sagði Brian hafa verið rólegri í fyrstu en það hefði breyst þegar búið var að lýsa Panettiere látna. Lögregluþjónninn skrifaði að ekki hefði verið nein sýnileg ástæða fyrir ástandi leikkonunnar. Krufning hefur ekki leitt neina áverka í ljós, samkvæmt AP fréttaveitunni. Reyndi að fyrirgefa ofbeldið Eins og áður segir sat Hickerson stuttlega í fangelsi árið 2020 fyrir að hafa beitt Panettiere ofbeldi. Í sjálfsævisögu hennar, sem kom út í maí, skrifaði leikkonan að hún hefði viljað að Hickerson verði nægum tíma í fangelsi til að hræða hann en ekki svo löngum að hann yrði verri maður fyrir vikið. „Ég þarfnaðist þess að hann viðurkenndi mistök sín og breyttist vegna þeirra, en ég vildi ekki valda honum óafturkræfum skaða.“ Þá sagðist hún hafa reynt að fyrirgefa honum ofbeldið. Eftir að búið var að lýsa Panettiere látna ræddi lögregluþjónninn frekar við þá bræður en búið er að hylma yfir upplýsingarnar um þau samtöl í lögregluskýrslunni. Einnig er búið að hylma yfir upplýsingar um hvaða lyf leikkonan á að hafa tekið. Panettiere hefur talað um baráttu sína við áfengisfíkn og þunglyndi gegnum árin.
Hollywood Bandaríkin Andlát Hayden Panettiere Tengdar fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 18. ágúst 2026 08:24 Bestu hlutverk Hayden Panettiere Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar. 17. ágúst 2026 13:48 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Sjá meira
Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 18. ágúst 2026 08:24
Bestu hlutverk Hayden Panettiere Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar. 17. ágúst 2026 13:48