Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. október 2026 12:21 Meghan Markle hefur brugðist við fréttaflutningi um meinta vörslu Thomasar Markle á barnaníðsefni. Lögreglan í Lundúnum staðfestir að hafa fengið bréf árið 2019 um innihélt „ýmsar ásakanir“ á hendur föður Meghan Markle, hertogaynju af Sussex. Hertogahjónin hafi fengið að sjá bréfin en ekki aðrar lögreglustofnanir.
Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meghan. Sá yngri á að hafa uppgötvað efnið á heimili hins eldri í Filippseyjum og tilkynnt það til lögreglu. Meghan Markle er gift Harry prins sem er sonur Karls Bretakonungs. Breska ríkisútvarpið greinir nú frá því að Lögreglan í Lundúnum (Metropolitan Police) hafi fengið bréf um ásakanirnar árið 2019. Hún hafi komið upplýsingunum áleiðis til skrifstofu Harrys prins og Meghan hertogaynju en ekki deilt þeim með öðrum löggæslustofnunum. „Eftir ítarlega yfirferð á kerfum og gögnum lögreglunnar höfum við staðfest að í janúar 2019 barst okkur bréf sem innihélt ýmsar ásakanir um meint brot utan Bretlands. Það var sent til verndardeildar lögreglunnar til að vekja athygli á áhyggjum varðandi öryggi hertogaynjunnar af Sussex,“ segir í yfirlýsingu lögreglunnar. „Lögreglan er nú að endurskoða meðferð þessa máls og íhugar hvort nauðsynlegt sé að vísa því til IOPC, óháðrar eftirlitsstofnunar með lögreglu, til að fara yfir vinnubrögð okkar.“ Thomas Markle eldri er til rannsóknar hjá yfirvöldum í Filippseyjum vegna efnisins samkvæmt Sky News. Hann hefur neitað öllum ásökununum. Í kjölfar frétta gærdagsins sendi Meghan frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagðist hafa fengið upplýsingar um ásakanirnar árið 2018 og vegna þessa haldið börnunum sínum tveimur frá föður sínum.
Harry og Meghan Bretland Filippseyjar Ofbeldi gegn börnum Kóngafólk Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira