Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hættir með stefnumótaþættina vin­sælu

Amelia Dimoldenberg hefur ákveðið að hætta með þættina geysivinsælu Chicken Shop Date. Hún hefur haldið úti þáttunum í rúman áratug og fengið til sín yfir hundrað gesti á „stefnumót.“ 

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Hvað veistu um… London?

London er ein fjölmennasta borg Evrópu og höfuðborg Bretlands. Borgin á sér langa og viðburðaríka sögu og má þar finna bæði sögufrægar byggingar og nýrri hverfi þar sem nútímaarkitektúr fær að njóta sín. London er einnig ein helsta menningar- og viðskiptamiðstöð álfunnar með fjölbreyttu mannlífi, söfnum, leikhúsum, verslunum og veitingastöðum.

Lífið
Fréttamynd

Fór á fimm tón­leika Ariönu Grande á viku

„Ég held þetta sé komið upp í sjötíu tónleika núna, allt á síðustu rúmu fjórum árum,“ segir Heimir Ingi Róbertsson, tónleikaáhugamaður með meiru og starfsmaður á hjúkrunarheimili. Heimir hefur flogið víða um heim til að sækja fjölbreytta tónleika og segir þetta klárlega mikla ástríðu hjá sér.

Tónlist
Fréttamynd

Færir Selenskí eldflaugateikningar

Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, ferðaðist í morgun til Kænugarðs í Úkraínu. Er það hans fyrsta opinbera heimsókn frá því hann tók við embætti í síðasta mánuði en þangað fór hann með teikningar af breskum og frönskum stýriflaugum sem hann ætlar að afhenda Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu.

Erlent
Fréttamynd

Tveir hinna látnu lög­reglu­menn

Sjö létust í bílslysi nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt þegar lögreglubíll og Volkswagen Passat-bifreið skullu saman. Tveir hinna látnu voru lögreglumenn.

Erlent
Fréttamynd

Stöðug­leiki í vaxtaþróun langra ríkis­bréfa merki um „seiglu“ ís­lenska markaðarins

Á meðan ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa hefur rokið upp beggja vegna Atlantshafsins að undanförnu hafa langtímavextir hér á landi haldist tiltölulega stöðugir þrátt fyrir mikla endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Seðlabankastjóri segir þróunina benda til góðs innra jafnvægis, en hækkun langra vaxta erlendis geti endurspeglað efasemdir um bæði peningastefnu og sjálfbærni ríkisfjármála hjá sumum ríkjum.

Innherji
Fréttamynd

Meghan snýr aftur á skjáinn

Meghan, hertogaynjan af Sussex, stendur nú í viðræðum um hlutverk í Netflix-þáttunum The Gentlemen. Leikkonan fyrrverandi hætti leiklistinni eftir að hún giftist Harry Bretaprinsi, hertoganum af Sussex, árið 2018.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Fannst hann ekki geta haldið á­fram

Forsætisráðherra Bretlands segir fráfall fræðimannsins Jason Arday kalla á umhugsun. Arday sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla vegna ásakana um ritstuld sem hann sagði sprottnar af kynþáttafordómum.

Erlent
Fréttamynd

„Ís­land breytti lífi mínu“

Skotinn David Winnie átti frábæran tíma hér á landi í kringum aldamót sem leikmaður KR. Ísland á sérstakan stað í hjarta hans og hann nýtur sín vel í sumarfríi hér þessi dægrin.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn

Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag.

Erlent
Fréttamynd

Önnur lestin af sporinu á innan við sólar­hring

Miklar tafir urðu á lestarsamgöngum í Essex á Englandi eftir að lest fór út af sporinu í dag, önnur á jafnmörgum dögum. Um borð voru tæplega 45 farþegar en enginn þeirra slasaðist og lestin hélst upprétt í hamaganginum.

Erlent
Fréttamynd

Robbie Williams ein­hverfur

Breski popparinn Robbie Williams segist nýlega hafa verið greindur með einhverfu. Hann fagnar greiningunni, segir hana útskýra margt í lífi sínu og noti hana reglulega sem afsökun í félagslegum aðstæðum. Williams hefður áður opnað sig um ADHD-greiningu sína, þunglyndi, víðáttufælni,  vímuefnaneyslu og slæma líkamsímynd.

Lífið
Fréttamynd

Gróður brennur beggja vegna Ermar­sunds

Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær.

Erlent
Fréttamynd

Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt

„Þegar ég var ung átti ég engar hinsegin fyrirmyndir og leitaði stöðugt eftir þeim í bókum, bíómyndum og tónlist, í von um að taka sjálfa mig í sátt. Draumurinn minn er að vera uppbyggjandi rödd fyrir meðlimi hinsegin samfélagsins,“ segir hin 25 ára gamla Hera Lind sem tók stökkið til London til að láta tónlistardrauminn rætast. 

Tónlist