Veður

Von á úrkomubakka frá Ír­landi og hlýnandi veðri

Freyja Þórisdóttir skrifar
Í athugasemd veðurfræðings segir um morgundaginn: Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu í öðrum landshlutum.
Í athugasemd veðurfræðings segir um morgundaginn: Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Vísir/Vilhelm

Víðáttumikil hæð vestur af Írlandi stjórnar veðrinu hjá okkur hér á Íslandi í dag en það hlýnar smám saman og svo gengur úrkomubakki inn yfir vesturhluta landsins í kvöld með samfelldri rigningu. Áttin verður suðlæg eða suðvestlæg og víða 5 til 13 metrar á sekúndu.

Þá verður dálítil væta á köflum yfir daginn en lengst af þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 4 til 9 stig seinnipartinn. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að áfram hlýni.

Spákort klukkan tíu í kvöld.Veðurstofan

Á morgun er von á hlýrri suðlægri átt þegar lægð yfir Suður-Grænlandi og hæðin við Bretlandseyjar beina henni hingað. Útlit fyrir kalda eða strekking víða og allhvasst í vindstrengjum á norðaustanverðu landinu. Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands en þurrt að mestu í öðrum landshlutum, hiti 7 til 15 stig og hlýjast fyrir austan.

Framan af þriðjudegi er svo útlit fyrir áframhaldandi stífa sunnanátt með vætusömu veðri um landið sunnan- og vestanvert, en eftir hádegi dregur bæði úr vindi og úrkomu.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag: Sunnan 8 til 15 m/s, en hvassara í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, annars þurrt að mestu. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á þriðjudag: Sunnan 10 til 18 og rigning eða súld, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Áfram hlýtt. Snýst í hægari vestanátt vestanlands eftir hádegi, dregur úr vætu og kólnar.

Á miðvikudag: Suðvestan 5 til 13, en hægari eftir hádegi. Skýjað með köflum og líkur á smáskúrum, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti 1 til 8 stig að deginum.

Á fimmtudag: Suðlæg átt og rigning eða súld með köflum, en þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri.

Á föstudag: Suðvestanátt og skúrir, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 8 stig.

Á laugardag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með rigningu um landið vestanvert.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×