Innlent

Blautur dagur í flestum lands­hlutum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Það stefnir í blautan dag í dag víða um landið.
Það stefnir í blautan dag í dag víða um landið. Vísir/Vilhelm

Búast má við því í dag að skil lægðar sem fer fyrir austan land, fari yfir landið og rignir í flestum landshlutum. Mest verður rigningin á norðan- og austanverðu landinu en á suðvesturhorni landsins má búast við vætu fram eftir degi.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að sums staðar megi búast við slyddu en líklega rigningu undir tvö hundruð metrum yfir hari eða þar um bil. Spár gera svo ráð fyrir því að úrkomanhaldist að mestu leiti fram til fyrramáls norðantil á landinu, en syðra verði víða þurrt.

Þá fer heldur hlýnandi. Síðan er búist við að næsta lægð komi aðfaranótt fimmtudags, með suðaustan hvassviðri og verður þá vætusamast um sunnanvert landið, en styttir upp að mestu fyrir norðan. Fremur hlýtt miðað við árstíma.

Norðaustanátt, víða 10-18, hvassast norðvestantil og einnig austan Öræfa um tíma fyrripartinn. Lengst af hægari um landið suðvestanvert. Talsverð rigning norðan- og austanlands, en úrkomuminna sunnantil og víða þurrt þar seinnipartinn. Hiti 4 til 10 stig, mildast suðaustanlands. Lægir í nótt og úrkomuminna, vestlæg átt 8-15 austantil á morgun, en annars mun hægari breytileg átt. Þurrt að kalla seinnipartinn. Vaxandi suðaustanátt sunnan- og suðvestanlands annað kvöld.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Breytileg átt 3-10 m/s, en hvassari á stöku stað í fyrstu. Rigning eða slydda norðantil, en styttir upp síðdegis. Annars úrkomulítið og bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 2 til 8 stig, mildast suðaustanlands.

Á fimmtudag:

Suðaustan 13-20 með talsverðri rigningu sunnantil, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hægari sunnanátt og skúrir vestantil undir kvöld. Hiti 6 til 11 stig.

Á föstudag:

Suðlæg átt 8-13 m/s og skúrir eða slydduél, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 8 stig.

Á laugardag:

Suðvestanátt og skúrir eða slydduél, en bjart norðan- og austanlands. Heldur svalara.

Á sunnudag:

Suðvestanátt með vætu, en úrkomulítið norðaustantil. Heldur hlýnandi.

Á mánudag:

Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu og mildu veðri, en þurrt að kalla fyrir norðan og austan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×