Innlent

Hand­tekinn fyrir ólög­lega dvöl í landinu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Lögreglan, lögga, 112, Neyðarlínan, Hverfisgata, Nýr Audi lögreglubíll, Ásgeir Þór Ásgeirsson
Lögreglan, lögga, 112, Neyðarlínan, Hverfisgata, Nýr Audi lögreglubíll, Ásgeir Þór Ásgeirsson Vísir/Vilhelm

Þrír gista fangageymslur lögreglu eftir nóttina en lögreglan þurfti meðal annars að hafa afskipti af manni á veitingastað og þá voru nokkrir handteknir fyrir hraðakstur.

Um er að ræða mál sem komu upp á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17:00 til klukkan 05:00 í morgun. Á lögreglustöð 1 sem sinnir verkefnum í Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi var einn handtekinn fyrir fjársvik á veitingastað og þá var einstaklingur handtekinn fyrir sölu fíkniefna og ólöglega dvöl í landinu.

Á lögreglustöð 2 sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ voru þrír handteknir fyrir hraðakstur en meðal annars var ökumaður stöðvaður á 137 kílómetra hraða þar sem löglegur hraði er áttatíu kílómetrar á klukkustund.

Þá var tilkynnt um minniháttar umferðaróhapp á svæði lögreglustöðvar fjögur, sem sinnir verkefnum í norðanverðri borginni auk Mosfellsbæjar, auk þess sem tilkynnt var um einstakling sem var að reyna að stela grilli.

Þrír voru vistaðir í fangageymslu lögreglu eftir nóttina að því er segir í dagbók lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×