Innlent

Glefsaði í veg­far­enda við mat­vöru­verslun

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Lögreglan hafði í nógu að snúast í dag sem aðra daga. Myndin er úr safni.
Lögreglan hafði í nógu að snúast í dag sem aðra daga. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Lögreglu barst tilkynning um að hundur hefði glefsað í vegfaranda framan við matvöruverslun í suðurhluta höfuðborgarsvæðisins. Hann slapp við meiðsli en buxurnar eru rifnar.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en um var að ræða matvöruverslun á varðsvæði lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.

Ekki kemur fram í dagbókinni hvort og hver eftirmál glefsanna yrðu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×