Erlent

Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á morgun þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mikilli mótmælaöldu sem hefur á síðustu vikum farið vaxandi.
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á morgun þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mikilli mótmælaöldu sem hefur á síðustu vikum farið vaxandi. EPA

Boðað hefur verið til mótmæla bæði í Frakklandi og á Ítalíu síðdegis í dag. Mikill viðbúnaður lögreglu og herliða verður í ríkjunum tveimur til taks fari mótmælin úr böndunum. 

Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu vikum. Hún náði hámarki sínu um síðustu helgi þegar fjöldi fólks var handtekinn. 

Sjá einnig: Mótmælaalda í Evrópu 2026

Nú búa yfirvöld og landmenn sig fyrir aðra helgi mótmæla en víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana í miðborg Parísar og hefur Louvre-safninu verið lokað, að því er kemur fram á heimasíðu safnsins. Sömuleiðis hefur mörgum neðanjarðarlestarstöðvum í borginni verið lokað. 

Öll mótmæli hafa verið bönnuð á Bastillutorginu í París og hefur það verið rýmt af lögreglu, að því er kemur fram í vakt BBC um mótmælin. 

„Við munum sýna enga linkind gagnvart skemmdarvörgunum, gripdeildarmönnunum og öllum þeim sem beita ofbeldi,“ er haft eftir Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands í umfjöllun BBC.

Emanuel Macron Frakklandsforseti fyrirskipaði í vikunni að aðeins mótmæli skipulögð af viðurkenndum verkalýðsfélögum yrðu leyfð í dag en í öðrum borgum, þar á meðal Lyon, Nice og Montpellier, hafa allar samkomur verið bannaðar. 

Í miðju óeirðanna hefur Marie Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, boðað til landsfundar flokksins í Orléans sunnan við París bæði í dag og á morgun. Boðað hefur verið til mótmæla í tengslum við fundinn í Orléans klukkan hálf ellefu í dag segir í frétt DR um málið. Mótmælin séu gegn „kynþáttahatri, fasisma og heimsvaldastefnu.“

Útgöngubann og fresta stórleik

Yfirvöld í Orléans eru sögð á varðbergi og hefur borgarstjórinn Serge Grouard sett útgöngubann á börn yngri en 15 ára. Hefst það klukkan 21 í kvöld og stendur til klukkan sex í fyrramálið.

Þá hefur stórleik Paris Saint-Germain og Lyon í frönsku deildinni í knattspyrnu verið seinkað um sólarhring vegna mótmælanna. Leikurinn átti að fara fram annað kvöld á Parc des Princes-leikvanginum í París en verður þess í stað spilaður á mánudagskvöld. 

Herlið sent til Mílanó 

Á Ítalíu hefur verið boðað til mótmæla í átta borgum og hefjast þau klukkan 15 í dag. Fimm hundruð hermenn hafa verið sendir til Mílanóborgar vegna mótmælanna. Einnig er búist við mótmælum í Austurríki, Spáni, Portúgal, Albaníu og á Írlandi.

Viðbúnaður herliðs við Dómkirkjuna í Mílanó.EPA

Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í Frakklandi, Ítalíu og Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum.

Hér að neðan má lesa nánar um mótmælaölduna. 

Fréttin verður uppfærð. 


Tengdar fréttir

Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“

Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa.

Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“

Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 

Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt mótmælendur til stillingar og róar vegna óeirða víða um Frakkland um helgina. Ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×