Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Kjartan Kjartansson skrifar 22. október 2026 13:23 Sænska þinghúsið í Stokkhólmi. Vísir/EPA Þingmaður Vinstriflokksins í Svíþjóð segist engin áform hafa um að segja af sér þingmennsku vegna rannsóknar á kosningasvikum sem kunna að hafa tryggt honum kjör. Hann hafi ekki fengið neinar upplýsingar um að hann liggir sjálfur undir grun í rannsókninni.
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði. Fólk er sagt hafa fengið greitt eða umbunað fyrir að greiða Mohamed Ali, frambjóðanda Vinstriflokksins, atkvæði í persónukjöri. Ali var nánast óþekktur í kjördæminu áður en hann náði óvænt kjöri. Ali fór í leyfi á meðan lögregla rannsakar málið. Hann hefur því enn ekki tekið sæti sitt á sænska þinginu. Hann segir sænska ríkisútvarpinu að hann ætli ekki að gefa sætið eftir. „Kjósendur mínir vilja að ég komi fram fyrir þeirra hönd og geri mitt besta,“ segir Ali í sínu fyrsta viðtali eftir að upplýst var um rannsóknina á kosningasvikunum. Hann segist ekki hafa verið látin vita af því að hann liggi undir grun um nokkuð saknæmt. Kosningabarátta hans hafi verið háð heiðarlega. Sænskir fjölmiðlar hafa einnig fjallað um fjármál Ali en hann hefur undanfarið gengist undir greiðsluaðlögun hjá innheimtustofnun sænska ríkisins. Ali segist ætla að reyna að greiða skuldir sínar upp eins hratt og hann getur. Hann telji að fjölbreyttar raddir þurfi að heyrast á þingi og margir Svíar séu í sömu stöðu og hann fjárhagslega. Þingflokkur Vinstriflokksins stendur með Ali. Samuel Gonzalez Westling, þingflokksformaður, segir fortíð Ali flókna en hann hafi gert sitt besta til þess að vera uppbyggilegur þjóðfélagsþegn. „Fólk á skilið tækifæri til að sýna að það getur breyst,“ segir Westling. Engin ríkisstjórn hefur enn verið mynduð í Svíþjóð þrátt fyrir að um sex vikur séu liðnar frá kosningum. Leiðtogi Miðflokksins hefur nú stjórnarmyndunarumboð eftir að jafnaðarmönnum tókst ekki að mynda ríkisstjórn með vinstri- og miðflokkum.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Erlend sakamál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Sjá meira