Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau eiga flest rætur í hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í evrópskum borgum í Frakklandi, Ítalíu og í Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum. Erlent 20.10.2026 10:43
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. Erlent 19.10.2026 23:36
Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Emanuel Macron Frakklandsforseti neitaði að samþykkja afsögn innanríkisráðherrans Laurent Nunez í gær eftir gríðarleg mótmæli víða um landið um helgina. Alda skemmdarverka og rána hélt áfram í gærkvöldi og í nótt og yfir hundrað manns voru handteknir í höfuðborginni París í nótt. Erlent 19.10.2026 06:39
Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Tískurisinn Diesel vakti mikla athygli á tískuvikunni í Mílanó í gær fyrir óvanalega sýningu og ótal marga þátttakendur. Hátt í tvö hundruð manns voru fengnir til að dulbúa sig sem áhorfendur en byrjuðu svo hægt og rólega að stynja, snerta sig og hvert annað á miðri sýningu. Lífið 23. september 2026 14:22
Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Kona sem bar vitni gegn föður sínum í einu frægasta dómsmáli Ítalíu á síðustu árum, sem varðaði morðið á móður hennar, er látin. Konan, sem hét Denise Cosco, er talin hafa framið sjálfsvíg. Móðir hennar Lea Garofalo, var myrt árið 2009, þá 35 ára, jafngömul og Denise var þegar hún lést núna í vikunni. Erlent 12. september 2026 10:48
„Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Ástin sveif yfir ítölskum vötnum um helgina þegar Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Nóa Siríus giftist ástinni sinni Sverri Fali Björnssyni við glæsilega athöfn og veislu við Garda-vatnið. Lífið 7. september 2026 09:59
Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Kennarinn Una Sigurðardóttir og listfræðingurinn Ólafur Gíslason voru fararstjórar á Ítalíu í áratugi og þekkja landið betur en flestir. Nú þegar þau er komin á eftirlaun hefur Una fundið skotheldar leiðir til að borða, ferðast og búa ódýrt í landinu. Ferðalög 28. ágúst 2026 16:51
Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Plötusnúðurinn DJ Margeir varð innblásinn af stjörnulögfræðingnum Villa Vill og lét smella af sér mynd á skýlu og Versace-skyrtu í Hótel Keflavík. Ljósmyndin gat af sér lagið „Strike a Pose (I'm Wearing Versace)“ með rapparanum Magugu sem þeir frumfluttu á Menningarnótt. Margeir ætlar svo að taka lagið enn lengra og búa til skúlptúr eftir ljósmyndinni. Tónlist 24. ágúst 2026 15:00
Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Utanríkisráðherra Spánar segir að allir þeir sem fóru ólöglega inn í spænsku borgina Ceuta í Marokkó verði sendir til baka. Enginn þeirra hafi komist til meginlands Spánar og engin ógn steðji að Schengen-landamærasamstarfi Evrópuríkja. Erlent 11. ágúst 2026 13:22
Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Forsætisráðherrar Danmerkur og Ítalíu segjast ætla að standa vörð um kristna menningararfleið Evrópu og krefjast þess að innflytjendur virði þau gildi í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir vilja vísa fleiri innflytjendum á brott og halda hælisleitendum utan álfunnar. Erlent 10. ágúst 2026 08:41
Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Spánn hefur tekið upp landamæraeftirlit á ferðamenn sem koma til landsins frá Ítalíu í kjölfar svipaðra aðgerða Ítalíu gagnvart Spáni. Deilur á milli ríkjanna hafa harðnað eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó í síðustu viku. Erlent 8. ágúst 2026 10:14
Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Rauðar hitaviðvaranir eru í gildi í 27 stærstu borgum Ítalíu vegna mikillar hitabylgju í landinu. Þetta er fjórða hitabylgja sumarsins í landinu. Erlent 5. ágúst 2026 14:01
Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Ítalskir sorphirðustarfsmenn aðstoðuðu konu við að finna lottómiða sem hún hafði hent í ruslið. Eftir tveggja daga leit í ruslahaugi fannst miðinn. Á miðanum var vinningur að verðmæti einnar milljónar evra, sem samsvarar 142 milljónum íslenskra króna. Viðskipti erlent 5. ágúst 2026 13:52
Þúsundir syrgðu Baresi Þúsundir fólks komu saman til að votta knattspyrnugoðsögninni Franco Baresi virðingu sína í útför hans í Mílanó á Ítalíu í dag. Baresi lést í síðustu viku, 66 ára að aldri. Fótbolti 4. ágúst 2026 16:31
Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Gunnar Salvarsson fyrrverandi fjölmiðlamaður ritar grein á Vísi þar sem hann vekur athygli á því að hugsanlega gæti hið svala íslenska sumar reynst verðmæt auðlind. Innlent 22. júlí 2026 14:23
Stríðið um baðstrendur Ítalíu Meðan Íslendingar og aðrir ferðamenn úr öllum heimshornum flykkjast til Ítalíu geisar stríð um baðstrendur landsins. Átökin varða hvort ítalskar strendur eigi að vera undirlagðar strandklúbbum eða opnar almenningi. Ítalski sjóherinn og mafían eru bæði sögð viðloðin þennan bardaga. Lífið 20. júlí 2026 15:42
Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga sem hafa verið gerðar á bresku skattkerfi. Hann þyrfti nú að greiða skatt á tekjum sem hann aflar sér utan Bretlands. Innlent 19. júlí 2026 13:29
Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar Fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins sem rak Morandi-brúnna í Genóa fékk tólf ára fangelsisdóm vegna vanrækslu brúarinnar sem hrundi árið 2018. Fjörutíu og þrír létust í slysinu, einu versta samgönguslysi í sögu Ítalíu, en réttað var yfir fimmtíu og sjö manns í dag vegna málsins. Erlent 16. júlí 2026 16:00
Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum „Ég fór frá því að hafa búið í sama húsinu alla ævi yfir í að flytja til Mílanó án þess að þekkja nokkurn, en borgin varð furðufljótt kunnugleg,“ segir hin 23 ára gamla Fanney Birna fatahönnunarnemi í Mílanó sem var að fá spennandi atvinnutækifæri í Madríd. Blaðamaður ræddi við hana um lífið erlendis, ævintýrin, hversdagsleikann og fleira. Lífið 14. júlí 2026 07:00
Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leikarinn Björgvin Franz Gíslason hefur fundið ástina á ný í örmum Bryndísar Guðjónsdóttur, sópransöngkonu. Björgvin skildi við Berglindi Ólafsdóttur, eiginkonu sína til sextán ára, í fyrra. Lífið 8. júlí 2026 15:48
Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu „Ég næ einhvern veginn aldrei að loka þessu máli, þar sem það er alltaf eitthvað nýtt að gerast. Það eru núna komin sjö ár og þetta er ekki ennþá búið,“ segir Magnea Jónsdóttir. Innlent 6. júlí 2026 08:02
Allir og amma þeirra á Ítalíu Svakaleg hitabylgja hefur riðið yfir Ítalíu síðastliðnar tvær vikur en það hefur þó ekki stoppað íslenska ferðalanga sem flykkjast til landsins í massavís. Fjöldi Íslendinga hefur verið í sumarfríi á stígvélinu góða síðustu vikurnar, urmull leikara, poppstjörnur og annað gott fólk. Lífið 3. júlí 2026 12:01
Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir var að skruna á Íslendingabók þegar hún rakst á formóður sína í þrettánda ættlið, Skólastiku Gamalíelsdóttur, sem var uppi á sextándu öld. Una vakti athygli á nafninu á Fésbókinni og opnaði þar ormagryfju fyrir grínara landsins. Nafnið á langa sögu þó aðeins einn Íslendingur hafi borið það. Menning 2. júlí 2026 15:09
Lét drauminn rætast á Ítalíu „Þetta gerist þegar þú ert ekki að leita,“ segir Svana Símonardóttir sem fann draumahúsið sitt á Ítalíu í fyrra. Að koma í húsið var í fyrstu eins og að stíga í tímavél og ferðast beint aftur til ársins 1970. Kominn var tími á endurbætur sem Svana og eiginmaður hennar Ríkarð réðust í. Lífið 26. júní 2026 16:51