Innlent

Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Öryggi íbúa Norðurlands vestra byggir á því að lögregla sé til staðar, þekki samfélagið og geti brugðist við þörfum þess, segir í umsögn starfsmanna Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. 
Öryggi íbúa Norðurlands vestra byggir á því að lögregla sé til staðar, þekki samfélagið og geti brugðist við þörfum þess, segir í umsögn starfsmanna Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra.  Vísir/Vilhelm

Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra leggjast gegn hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta. Að mati starfsmanna hefur ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.

Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að lögregluembættum verði fækkað um sex, úr níu í þrjú. Að mati starfsmanna hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn fækkunarinnar eða að fyrirhuguð breyting muni efla löggæslu á svæðinu.

Sjá einnig: Lög­reglu­em­bættum fækkað veru­lega

Í morgun var greint frá því að Lögreglufélag Vestfjarða hefði sömuleiðis gert athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar dómsmálaráðherra og telur það brýnt að endur­skoða fækkun lögregluembætta. Í samráðsgátt eru tólf umsagnir við frumvarpsdrögin en auk þeirra ofannefndu má finna þar umsagnir Ísafjarðarbæjar, Hvalfjarðarsveitar, Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra svo eitthvað sé nefnt. 

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra í sameiningu lögregluembætta en áður stóð til.Ívar

„Frumvarpsdrögin taka ekki nægilegt mið af eðli löggæslu í dreifbýli, mikilvægi staðbundinnar ábyrgðar og þeirri samfélagslöggæslu sem byggð hefur verið upp í landshlutanum. Almenn markmið um stærri og öflugri einingar koma ekki í stað rökstuddrar greiningar á því hvernig þjónusta við íbúa hvers svæðis verður tryggð og bætt,“ segir í umsögn starfsmanna Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. 

Starfsmennirnir leggja til að fallið verði frá fyrirliggjandi sameiningartillögum lögregluembætta og segja að markmið um stærri og öflugri einingar komi ekki í stað rökstuddrar greiningar á því hvernig þjónusta við íbúa verði tryggð og bætt. 

Telji þeir nauðsynlegt að endurskoða drögin í grundvallaratriðum „með svæðisbundinni þarfagreiningu, raunverulegu samráði, lögbundinni vernd nærþjónustunnar og tryggri fjármögnun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×