Lögreglan
1 2 3 4 5 6 … 42 ›
Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið Dómsmálaráðherra sakar Úlfar Lúðvíksson um að hengja bakara fyrir smið með því að saka ríkislögreglustjóra og ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins um að hafa brugðist skyldum sínum og með því kalla eftir afsögn þeirra. Ráðherra segir stjórnmálamenn bera alla ábyrgð á stöðunni á landamærum Íslands. Innlent 25.5.2025 12:12
Bensínbrúsar inni í íbúðinni Tveir karlmenn eru látnir eftir eldsvoða í kjallaraíbúð á Hjarðarhaga og sá þriðji er alvarlega slasaður. Samkvæmt heimildum voru bensínbrúsar inni í íbúðinni og lögregla rannsakar meðal annars hvort um íkveikju hafi verið að ræða. Innlent 23.5.2025 18:47
NEL tekur fyrir mál fjölskyldu Sigurðar Kristófers í júní Nefnd um eftirlit með lögreglu tekur fyrir í júní mál fjölskyldu sem hefur kvartað til nefndarinnar vegna framkomu lögreglumanns þegar þeir var tilkynnt um andlát sonar síns. Samkvæmt svörum frá nefndinni eru þau að bíða frekari gagna og stefni svo að því að taka málið fyrir í júní. Innlent 23.5.2025 06:41
Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á „Það eru auðvitað þessi ofbeldismál og stóru erfiðu mál sem valda álagi, sérstaklega á lögreglumenn sem eru á vaktinni,“ segir Sigurveig Helga Jónsdóttir mannauðsstjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH). Atvinnulíf 22.5.2025 07:00
Níðingarnir treysta á skömmina í kynlífskúgunarmálum Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar, áður yfirlögregluþjónn, gerði kynlífskúgun að umtalsefni í ræðustól Alþingis nú fyrir stundu. Innlent 21.5.2025 15:59
Varað við embætti sérstaks saksóknara Í ljósi umræðu síðustu daga um verkefni og verk embættis sérstaks saksóknara á árunum eftir bankahrunið 2008 finnst mér rétt að birta erindi sem ég hélt sem framsögumaður á málþingi sem ríkissaksóknari og Ákærendafélagið efndu til með dómsmálaráðherra, lagadeild HÍ, ákærendum og fulltrúum þeirra 18.mars 2011. Þetta geri ég til þess að sýna fram á að viðvörunarorð og alvarlegar athugasemdir komu fram við það ferli sem þá var hafið og reyndist illa grundað að mínu viti. Skoðun 21.5.2025 07:30
Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, sendi Úlfari Lúðvíkssyni , þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, bréf í kjölfar viðtals sem hann fór í janúar í fyrra um farþegaeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag og vísað til bréfsins sem miðillinn hefur undir höndum. Innlent 21.5.2025 06:32
Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi Einn gisti í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt fyrir að hafa reynt að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi. Fram kemur í dagbók að málið sé til rannsóknar en ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar hvaða hótel um ræðir. Atvikið á sér þó stað hjá stöð 1 sem sér um Austurbæ, miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Innlent 20.5.2025 06:20
Biggi ekki lengur lögga Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, er hættur í löggunni. Birgir hefur ráðið sig sem deildarstjóra hjá Barna- og fjölskyldustofu á nýju stuðningsheimili sem er í smíðum. Hann er þakklátur fyrir ár sín í einkennisbúningi lögreglunnar. Lífið 19.5.2025 14:28
Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Leki á gögnum frá sérstökum saksóknara er kominn til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi í máli sem má rekja allt aftur til falls bankanna haustið 2008. Hleranir, njósnir, vanhæfi, auðmenn og embættið sem enginn vildi stýra; allt er orðið að miklum graut og margir hættir að skilja málið. Jafnvel Namibíumál Samherja fléttast inn í það. Innlent 19.5.2025 07:00
Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, heldur fullum launum út skipunartíma sinn og í sex mánuði til viðbótar. Hann verður því á launum til og með 15. maí á næsta ári. Innlent 16.5.2025 14:51
Mál Margeirs til Landsréttar Ríkislögmaður hyggst áfrýja máli Margeirs Sveinssonar, yfirlögregluþjóns, gegn Íslenska ríkinu til Landsréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að því á dögunum að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefði ekki verið heimilt að breyta verksviði Margeirs. Innlent 16.5.2025 11:50
Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að breyta verksviði Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, hafi ekki verið málefnaleg. Ríkið þarf að greiða honum tvær milljónir í miskabætur og 1,6 milljónir í málskostnað. Innlent 16.5.2025 08:10
Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Úlfari Lúðvíkssyni var boðið starf lögreglustjórans á Austurlandi á fundi með ráðherra án þess að þurfa að sækja starfið gegn því að hann myndi láta af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Úlfar afþakkaði það á fundi og lét svo af störfum sem lögreglustjóri. Frá þessu er greint á vef mbl.is og er vísað í fundargerð af fundi ráðherra og lögreglustjórans. Innlent 15.5.2025 12:59
Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Þingmenn minnihlutans óskuðu eftir því við forseta þingsins að hann myndi skapa pláss í dagskránni svo hægt væri að ræða nánar hvað felst í hinni pólitísku stefnubreytingu sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur nefnt sem ástæðu þess að hún vill auglýsa starf Úlfars Lúðvíkssonar fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum. Innlent 14.5.2025 16:37
Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Prófessor í stjórnmálafræði við HA segir skiljanlegt að lögreglustjórinn á Suðurnesjum líti svo á að hann hafi verið rekinn í ljósi viðtekinnar venju. Lögreglustjórinn lét sjálfur af embætti á miðnætti eftir að dómsmálaráðherra sagði honum að staða lögreglustjórans yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embættið. Innlent 14.5.2025 13:32
„Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð tímabundið í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eftir að Úlfar Lúðvíksson baðst lausnar. Hún segir embættið víðamikið og áskoranirnar margar en er jafnframt þakklát fyrir traustið. Innlent 13.5.2025 20:35
„Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Fyrrverandi eigandi PPP segir að hann hafi haft aðgang að öllum gögnum hjá sérstökum saksóknara og lögreglu meðan hann vann fyrir þrotabú og slitastjórnir. Hann sakar héraðssaksóknara um að hafa lekið gögnum PPP til RÚV til að skaða hann. Saksóknarinn hafnar þessu. Innlent 13.5.2025 18:55
Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina „Það eru miklar breytingar framundan á skipulagi og stærð verkefna embættisins. Því fannst mér einfaldlega heiðarlegt og heilbrigt að auglýsa embætti lögreglustjórans og tilkynnti honum það í samræmi við lög og reglur að það stæði til.“ Innlent 13.5.2025 14:11
Úlfar hættir sem lögreglustjóri Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun láta af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum á miðnætti. Hann segir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hafi tjáð sér að staða lögreglustjórans á Suðurnesjum yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður. Innlent 13.5.2025 13:20
Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara og eigandi PPP njósnafyrirtækisins er sannfærður um að Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari vilji koma á sig höggi og hafi því komið gömlum kynningum PPP til Helga Seljan og Kveiks á RÚV. Ólafur Þór hafnar því alfarið. Innlent 13.5.2025 12:33
Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumaður, er sannfærður um að Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari vilji koma á sig höggi með því að koma gömlum kynningum PPP njósnafyrirtækis til Helga Seljan og Kveiks á RÚV. Innlent 13.5.2025 09:56
Skipulögð brotastarfsemi er komin til að vera Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, segir Ísland ekki undanskilið þróun skipulagðrar brotastarfsemi sem hefur átt sér stað í á Norðurlöndunum, þá sérstaklega í Svíþjóð. Skipulögð brotastarfsemi er komin til að vera. Innlent 9.5.2025 09:10
„Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Víðir Reynisson, þingmaður og fyrrverandi lögreglumaður, segir víðtækan gagnaþjófnað frá embætti Sérstaks saksókna slá sig mjög illa. Þeir sem stálu gögnunum hafi svikið lögreglumannastéttina og eyðilaggt það traust sem stéttin hafi byggt yfir langan tíma. Innlent 8.5.2025 22:45
Einn rólegur, annar afar ósáttur Ríkissaksóknari rannsakar tvö mál í tengslum við víðtækan gagnaþjófnað frá embætti Sérstaks saksóknara. Dómsmálaráðherra segir málið svik við almenning og réttarkerfið. Maður sem var hleraður er afar ósáttur við vinnubrögð saksóknara og íhugar að leita réttar síns. Innlent 8.5.2025 21:23
Þungt hugsi og í áfalli Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir áfall að trúnaðargögnum hafi verið stolið á sínum tíma af embætti sérstaks saksóknara. Grunsemdir embættisins frá árinu 2012 hafi hins vegar reynst réttar. Innlent 8.5.2025 14:36
Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Dómsmálaráðherra segist upplifa framferði forsvarsmanna PPP, sem lýst var í Ríkissjónvarpinu í gær, sem svik. Svik við almenning, kerfið og samstarfsmenn í réttarkerfinu. Innlent 8.5.2025 11:03
Sagðir hafa stolið viðkvæmum rannsóknargögnum frá lögreglu og saksóknara Fyrrverandi lögreglumenn sem njósnuðu um fólk fyrir hönd Björgólfs Thors Björgólfssonar eru einnig sagðir hafa stolið viðkæmum persónugögnum úr rannsóknum lögreglu og saksóknara. Gögnin eru þeir sagðir hafa notað til þess að selja þjónustu ráðgjafarfyrirtækis síns. Innlent 7.5.2025 15:19
Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Jón Daníelsson segir af skelfilegum aðstæðum í húsnæði Félagsbústaða við Bríetartún 20. Jón segir til standa að dóttur hans, sem er fíkill, verði hent þaðan út vegna vangreiddrar húsaleiguskuldar meðan nær væri að hún fengi greitt fyrir að sætta stöðugum ógnum annars leigjanda. Innlent 5.5.2025 11:18
„Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Grímur Grímsson alþingismaður og fyrrverandi lögreglumaður segir umfjöllun Kveiks um njósnir starfandi lögreglumanns að undirlagi Björgólfs Thors hafa verið sér mikil vonbrigði. Hann segir þáttinn hafa verið erfiðan að horfa á. Innlent 4.5.2025 12:18