Engar leyniskyttur gættu Rubio Smári Jökull Jónsson skrifar 6. október 2026 18:02 Karl Steinar Valsson er yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra en til vinstri má sjá vopnaða lögregluþjóna við Höfða í morgun. Vísir/Anton Brink/Ívar Fannar Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni.
Töluverður viðbúnaður var vegna komu Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna til landsins. Rubio kom til landsins í gær en fór af landi brott um hádegi í dag eftir að hafa fundað með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra, segir Rubio dæmi um einstakling sem á rétt á því að fá svipaða öryggisumgjörð hér á landi og í sínu heimalandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra bíður komu Marco Rubio við safnahúsið en eins og sjá má eru öryggisverðir Rubio ekki langt undan.Vísir/Anton Brink „Hættumat er unnið og það sem við þurfum að gera er að teikna þá svolítið inn í íslenska umhverfið og í þessu tilviki þarf íslensk lögregla að búa til þá umgjörð sem tryggir öryggi viðkomandi. Hann er með vopnaða lífverði í kringum sig alla daga þannig að það er þá svipuð umgjörð sem við þurfum að búa til, ef við teljum ástæðu til þess sem við gerðum í þessu tilviki,“ segir Karl Steinar í samtali við Vísi. „Það er horft til þess hvar hann dvelur, hverjir fundarstaðirnir eru og ferðalögin þar á milli. Lögregla þarf í raun að teikna upp allar hans ferðir og ferðalög.“ Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu Hann viðurkennir að stuttur fyrirvari á fundinum hafi haft áhrif á undirbúninginn en Rubio þáði heimboð Þorgerðar Katrínar þegar þau hittust á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum. „Þetta er samt hlutur sem við gerum ansi oft og það er komin talsverð reynsla hjá okkur. Ríkislögreglustjóri er ábyrgur fyrir aðgerðunum en meginþorri þeirra hvílir á lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, umferðarfylgdir og svo eru aðrir í ytri gæslu tengt þeim stöðum þar sem fundir fara fram og á gististöðum,“ segir Karl Steinar og bætir við að einnig fylgi svona heimsókn ákveðin umgjörð á Keflavíkurflugvelli og að um samvinnuverkefni sé að ræða. Sprengjuleitarhundur á vegum sérsveitar ríkislögreglustjóra þefar af búnaði íslenskra fjölmiðlamanna við Höfða í morgun.Vísir/Sigurjón Hann telur að um hundrað manns á vegum íslensku lögreglunnar hafi komið að verkefninu en lögreglumennirnir voru örlítið fleiri í dag en í gær þegar Rubio kom til landsins. „Svo er þetta aðili sem er með mikla öryggisgæslu í grunninn, það kemur fólk með honum sem að hluta til eru þá öryggisverðir og síðan annað starfsfólk.“ Vopnaðir lögreglumenn og viðbúnaðarstig hækkað Mikil og löng bílalest fylgdi Rubio þegar hann keyrði á milli staða og þar á meðal voru brynvarðir bílar. „Bandaríkjamenn komu með ökutæki með sér og svo reyndar eiga þeir einhver hér á landi líka.“ Bæði við Höfða og Safnahúsið, þar sem fundir Rubio og íslenskra ráðherra fóru fram í morgun, mátti sjá vopnaða íslenska lögreglumenn við gæslu. Karl Steinar segir ákvörðun um vopnaburð lögreglumanna tekna af íslenskum yfirvöldum. Vopnaður lögreglumaður við Höfða.Vísir/Anton Brink „Það er ríkislögreglustjóri sem tekur ákvörðun um vopnaborð og í þessu tilviki var viðbúnaðarstigið hækkað tímabundið í sólarhring á meðan á heimsókninni stóð,“ segir Karl Steinar. „Það voru lögreglumenn sem tóku þátt í aðgerðunum sem voru vopnaðir og það er gert í ákveðnum tilvikum,“ segir Karl Steinar og bætir við að ekki hafi verið um almenna vopnun lögreglunnar að ræða heldur aðeins lögreglumenn sem tóku þátt í þessu verkefni og hafa þjálfun þar að lútandi. Ekkert atvik sem kom upp Við heimsókn Mike Pence, þáverandi varaforseta Bandaríkjanna, hingað til lands árið 2019 mátti sjá leyniskyttur á þökum við fundarstaði forsetans. Ekki var gripið til slíkra ráðstafana nú. „Nei, það var ekki svoleiðis. Þetta byggir á áhættumati sem lögreglan gerir á hverjum tíma og svo tekur viðbúnaðarstigið og útfærslan mið af því.“ Karl Steinar segir aðgerð lögreglunnar hafa gengið vel og ekkert atvik komið upp. „Hann er farinn af landi brott núna og verkefnið gekk ljómandi vel, okkar þáttur sem er náttúrulega öryggisþátturinn en ekki fundurinn sjálfur.“
Heimsókn Marco Rubio til Íslands Lögreglan Bandaríkin Reykjavík Utanríkismál Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira