Innlent

Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi

Agnar Már Másson skrifar
Félags og húsnæðismálaráðuneytið stóð að námskeiðinu.
Félags og húsnæðismálaráðuneytið stóð að námskeiðinu. Stjórnarráðið

Félags- og húsnæðisráðuneytið og Ríkislögreglustjóri héldu á dögunum námskeið um einkenni og birtingarmyndir heiðursofbeldis. Um 25 manns, sem vinna meðal annars fyrir lögregluna, framhaldsskóla eða barnaverndaryfirvöld, sóttu námskeiðið.

Samkvæmt svörum frá ráðuneytinu við fyrirspurn Vísis var námskeiðið liður í eftirfylgd aðgerða sem lúta að heiðursofbeldi í þingsályktun um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026 – 2029 og Landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum 2026 – 2030. 

Námskeiðið var haldið í samstarfi við Ríkislögreglustjóra og fór fram í Reykjavík dagana 13.-15. október.

Dómsmálaráðuneytið fór með ábyrgð, umsjón og framkvæmd beggja áætlana en félags- og húsnæðismálaráðuneytið bar ábyrgð á aðgerðum um heiðursofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald, að því er fram kemur í svarinu.

Ráðuneytið segir að kennslan hafi verið í höndum Protect International sem sérhæfir sig í gerð áhættumats, áhættustjórnun og forvörnum gegn ofbeldi og kemur jafnframt að þjálfun starfsfólks og innleiðingu áhættumats.

Heildarkostnaður er áætlaður um 2,6 milljónir króna en ekki er gert ráð fyrir að námskeiðið verði haldið reglulega.

Í svari ráðuneytisins segir að námskeiðið hafi verið ætlað fagfólki sem vegna starfa sinna kunni að þurfa að framkvæma áhættumat þegar grunur vaknar um heiðursofbeldi. 

Alls sóttu 25 einstaklingar námskeiðið, að sögn ráðuneytisins.

„Eftirfarandi aðilum var boðið að senda fulltrúa á námskeiðið: Lögregluembætti (9 starfsstöðvar/11 fulltrúar), Reykjavíkurborg (skóla- og frístundasvið, barnavernd, félagsþjónusta), Reykjanesbær (menntasvið), Barnahús, Barna- og fjölskyldustofa, Barnavernd á Norðurlandi eystra, Barnavernd Akraness, Bjarkarhlíð, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landspítalinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Samtök um kvennaathvarf og Rauði krossinn,“ segir í svarinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×