Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Kristján Már Unnarsson skrifar 26. október 2026 20:22 Bændurnir á Gerði í Suðursveit, þau Þórey Bjarnadóttir og Björn Borgþór Þorbergsson, eru meðal viðmælenda í þáttaröðinni „Um land allt“. Egill Aðalsteinsson Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið.
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi Suðursveitunga sem haslað hafa sér völl í ferðaþjónustu en halda þó enn í sauðfjárbúskap. Samfélagsbyltingin sem orðin er í Suðursveit með mikilli fjölgun ferðamanna er tekin fyrir og meðal annars heimsótt glæsihótel sem Skúli Gunnar Sigfússon, kenndur við Subway, hefur opnað í landi Reynivalla. Baðbomburnar á Þórshöfn komnar úr sjósundinu. Þáttaröðin Um land allt hóf fyrst göngu sína á Stöð 2 árið 2012 og hafa síðan verið framleiddir um 150 þættir. Núna bætist ný þáttaröð við með alls sex þáttum og verður sá fyrsti frumsýndur á Sýn+ næstkomandi miðvikudagskvöld, 28. október, klukkan 19:20. Sem fyrr eru samfélög heimsótt vítt og breitt um landið. Við kynnumst sögu, náttúru og mannlífi viðkomandi staða og héraða. Heilsað er upp á fólk í leik og starfi og hlýtt á sjónarmið sem helst brenna á fólki í ólíkum byggðum. Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum, segir frá aftöku Friðriks og Agnesar á Þrístöpum.Egill Aðalsteinsson Í fyrsta þættinum á miðvikudagskvöld verða helstu sögustaðir síðustu aftökunnar á Íslandi heimsóttir. Aftökustaðurinn var á Þrístöpum í Vatnsdalshólum en þar voru þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir hálshöggvin árið 1830 fyrir morð á tveimur mönnum. Morðin voru framin tveimur árum fyrr á jörðinni Illugastöðum á Vatnsnesi. Í þáttaröðinni verður einnig fjallað um sveitabyggðina á Vatnsnesi, farið í Vatnsdal og Þing, Þórshöfn og Langanes verða heimsótt sem og Suðursveit. Hér má sjá nokkur dæmi um viðfangsefni nýjustu þáttaraðarinnar Um land allt:
Um land allt Sýn Bíó og sjónvarp Húnabyggð Húnaþing vestra Langanesbyggð Sveitarfélagið Hornafjörður Landbúnaður Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Stjörnurnar syngja inn haustið Haustdagskrá Sýnar fer á fullt þessa dagana og innlend framleiðsla vegur þar þyngst. Sex nýir innlendir þættir eru á dagskrá á Sýn og Sýn+ í haust og dagskrárgerð í kringum Sýn Sport hefur aldrei verið sterkari. 28. ágúst 2026 13:40 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira
Stjörnurnar syngja inn haustið Haustdagskrá Sýnar fer á fullt þessa dagana og innlend framleiðsla vegur þar þyngst. Sex nýir innlendir þættir eru á dagskrá á Sýn og Sýn+ í haust og dagskrárgerð í kringum Sýn Sport hefur aldrei verið sterkari. 28. ágúst 2026 13:40