Innlent

Bein út­sending: Kosningaveisla á Sprengi­sandi

Sprengisandur verður í kosningaham frá klukkan tíu þennan sunnudaginn eftir æsilega kosninganótt þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur. Lykiloddvitar mæta í heimsókn og fara yfir stöðuna nú þegar atkvæði eru komin upp úr kjörkössunum.

Innlent

Stefán Páls­son og Vinstrið sleikja sárin

Stefán Pálsson, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins í Reykjavík, sér fram á annað kjörtímabil á bekknum – sér til nokkurrar hrellingar. Framboðið náði tveimur mönnum inn í Reykjavík sem eru þá Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir. Stefán sleikir sárin. Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor telur að afskipti Kristrúnar Frostadóttur hafi verið mistök.

Innlent

Hildur með pálmann í höndunum

Sjálfstæðisflokkurinn situr í bílstjórasætinu eftir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í gær og getur ýmist myndað hægri meirihluta með Miðflokknum eða miðju hægri meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samfylkingin hefur aldrei fengið eins dræma kosningu í höfuðborginni og vinstri meirihluti er útilokaður.

Innlent

Mótframbjóðendur „hvísla ástar­orðum“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að oddvitar annarra flokka séu farnir að hvísla ástarorðum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í nótt, samkvæmt nýjustu tölum.

Innlent

Loka­tölur úr Fjalla­byggð: Meiri­hlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Innlent

Á­byrgð náði hreinum meiri­hluta

Á-listi Ábyrgðar náði fjórum mönnum kjörnum í sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í dag. Listinn náði fjórum mönnum inn og þar með hreinum meirihluta.

Innlent