Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Birgir Olgeirsson skrifar 20. október 2026 14:28 Flugeldasalan skilar 80 til 85 prósentum þess fjár sem Björgunarsveit Hafnarfjarðar aflar árlega. Sveitin segir fyrirhugaða íbúðablokk stefna sölunni í hættu. ja.is Fyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram.
Flugeldasalan skilar 80 til 85 prósentum þess fjár sem sveitin aflar árlega. Þetta kemur fram í bréfi sveitarinnar til bæjarráðs, dagsettu 7. september, sem tekið var fyrir 15. október. Segja íbúðirnar of nálægt Í bréfinu segir að strangari kröfur um flugeldasölu kveði meðal annars á um að minnst sextíu metrar séu að íbúðarhúsnæði. Fyrirhugaðar íbúðir verði of nálægt núverandi söluaðstöðu sveitarinnar við Hvaleyrarbraut 32. Sveitin kveðst hafa rætt við núverandi og fyrrverandi bæjarfulltrúa sem hafi tekið undir að bærinn liðsinni henni svo íbúðabyggingin bitni ekki á flugeldasölunni. Arkitektar og sérfræðingar í brunahönnun hafi unnið að lausn. Niðurstaðan sé steinsteypt viðbygging, tengd núverandi húsnæði, sem sveitin geti einnig nýtt utan sölutímans. Stálgrindarhús hafi verið skoðað en nauðsynlegt sé að hafa steyptan vegg að Hvaleyrarbraut vegna öryggis ef óhapp verður. Því hafi verið talið hagkvæmara að steypa alla bygginguna. Sveitin greiði frágang innanhúss Samkvæmt bréfinu hafa lóðastækkun og breyting á deiliskipulagi þegar verið samþykkt. Sveitin vill að bæjarsjóður greiði bygginguna en hyggst sjálf kosta frágang innanhúss. Í bréfinu er kostnaðurinn sagður um 125 milljónir króna. Meðfylgjandi frumkostnaðaráætlun hljóðar upp á 123,1 milljón. Þar af eru 24,6 milljónir vegna 25 prósenta óvissuálags. Áætlunin er sögð gróf og verður endurskoðuð eftir því sem hönnun og umfang framkvæmdarinnar skýrast. Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna málið áfram. Beiðnin um að bærinn greiði viðbygginguna bíður afgreiðslu.
Hafnarfjörður Flugeldar Björgunarsveitir Skipulagsmál Byggingariðnaður Fasteignamarkaður Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Fleiri fréttir Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Sjá meira