„Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. október 2026 17:00 Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands. vísir/vilhelm „Við, eins og allir, höfum vissulega áhyggjur af því og það eru náttúrulega hin raunverulegu fórnarlömb í þessum máli öllu saman. Það eru ungmenninn sem láta glepjast í að kaupa og greiða fyrir svona lausnir. Auðvitað höfum við áhyggjur af því eins og aðrir. Við viljum beita okkur í upplýsingagjöf og öðru til að fyrirbyggja það.“
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar sem vakin var athygli á því að ekki sé hægt að treysta island.is í blindni til að sannreyna aldur viðkomandi. Óprúttnir aðilar hagnýti Ísland.is og banka Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varaði foreldra og forráðamenn barna og ungmenna við VPN-stillingu sem gerir óviðkomandi kleift að lesa og breyta netumferð þeirra. Yfir 300 ungmenni nota tæknina en lögreglan rannsakar nú sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins. „Nú hefur bæst við sala á snjallsímaforriti sem virðist vera island.is en er ekki hið eiginlega island.is. Þá var einnig til sölu vara, svokölluð VPN-stilling (e. VPN profile) sem heitir ,,Island Surge VPN“ sem gerir það að verkum að kennitölu notandans er breytt á island.is,“ sagði í tilkynningu lögreglu. Lögreglan beinir því til söluaðila ávanabindandi efna að sú leið að skoða einungis island.is sé ekki örugg til að staðfesta kennitölu viðkomandi. Birna segir að Ísland.is sé samt sem áður mikilvægur innviður með löggildum skilríkjum. Því fylgir auðvitað að sumir reyni að hagnýta sér það eða svindla með einhverjum hætti. „Við vitum náttúrulega að Ísland.is, okkar lausnir, hvort heldur sem er appið eða mínar síður eða vefurinn, verða líkt og bankar alltaf ákveðið skotmark fyrir óprúttna aðila. Bæði vegna útbreiðslu okkar lausna og notkunarinnar sem er náttúrulega mikil.“ Til skoðunar að auðvelda aðgengi að skanna Öryggisstjóri hjá OK sagði í samtali við fréttastofu í viðtali sem birtist í dag að island.is væri ekki til þess gert að sannreyna eitt né neitt. Hann kallaði eftir forriti fyrir þriðja aðila til að sannreyna það sem blasir við á island.is. Hann á þá við dyraverði og afgreiðslufólk í búðum. Birna Íris bendir á að sá möguleiki er nú þegar til staðar inni á island.is til að sannreyna gögn. „Það hefur verið aðgengilegt í appinu, alveg síðan 2021 eða 22. Í appinu er þessi skönnunarmöguleiki og það er hægt að skanna með honum og fá staðfestingu á því að þetta tiltekna skírteini er löglegt og að þarna séu réttar upplýsingar. Við erum með barkóða sem birtist með ökuskírteinunum og þessi barkóði endurnýjast mjög reglulega þegar þú ert með appið opið og þar af leiðandi er skilríkið alltaf rétt.“ Hún tekur sem dæmi að ÁTVR sé með sérstakan skanna til að sannreyna skilríki. Spurð hvort það komi til greina að aðrir aðilar fái aðgang að umræddum skanna segir hún: „Við erum að skoða leiðir til að hafa aðgengi að þessum skönnum betra og einfaldara. Ef ég starfa sem dyravörður og þarf að sannreyna ökuskírteini hjá einhverjum þá þarf ég í rauninni að fara inn á mitt Ísland.is app. Það má kannski gera það með betri hætti og það er klárlega eitthvað sem við skoðum útfærslur núna, til að auka aðgengi að þessum skanna. Þá verður hægt að nýta hann með víðtækari hætti,“ segir hún og heldur áfram: „Það sem ég hef heyrt að er að stundum eru ungmenni bara að skrá sig inn á mínar síður á Ísland.is og sýna það. En við segjum bara, það eru aldrei gild skilríki og við hvetjum í raun og veru alltaf þá sem eru að taka á móti, þá sem þurfa að sannreyna aldur, að skanna skilríki. Það er aldrei hægt að framvísa mínum síðum á Ísland.is sem gildu skilríki. Það er alveg skýrt.“ „Við þurfum að hlaupa hraðar“ Er einhver leið fyrir ykkur til að koma í veg fyrri að fólk noti til dæmis þessa VPN-þjónustu til að hagræða og breyta því sem birtist inni á Ísland.is? „Það er náttúrulega, eins og þú segir, tæknilega flókið. Ég segi bara fyrir okkur sem erum að þróa þessa lausn hjá Ísland.is að öryggi er númer eitt, tvö og þrjú. Við leggjum rosalega áherslu á öll öryggismál og í þessum málum sem upp hafa komið þá finnst mér mikilvægt að það sé tekið fram að gögn inn á Ísland.is hafa aldrei verið í neinni hættu.“ Hún segir það vera til skoðunar með hvaða hætti sé hægt að beita sér gegn VPN-misnotkuninni. „Það eru verkefni sem við munum skoða til að fyrirbyggja það að það sé hægt að nýta slíkt í okkar lausnum. Það hefur ekki áhrif á það þegar verið er að búa til forrit og lausnir sem líkja eftir Ísland.is. Við getum ekki fengist við það. Við fylgjumst vel með því ef það eru einhver lén sem svipa til Ísland.is þá fylgjumst við með því og bregðumst við því.“ Hún segist fagna allri umræðu um netöryggi. Það sé brýnt að mennta ungmenni og aðra um þá áhættu sem leynist í hinum stafræna heimi. Tæknin sé í stanslausri þróun sem kalli eftir sífellt betri öryggislausnum. „Við þurfum að hlaupa hraðar og tryggja að öryggislausnirnar reyni að halda í við þessar ógnir. Við reynum að gera okkar besta. Eins og ég segi þá er öryggið í brennidepli í okkar þróun á Ísland.is. Það er alltaf leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi. Lausnir okkar eru öruggar og við munum leggja mikið á okkur til að halda því þannig. “
Netöryggi Upplýsingatækni Börn og uppeldi Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Forystan sé búin að missa klefann Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Sjá meira