Innlent

Umhverfisvænna að sleppa ó­þarfa kurteisi

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Marín Jónsdóttir skoðaði hvað ein fyrirspurn til gervigreindar kostar.
Marín Jónsdóttir skoðaði hvað ein fyrirspurn til gervigreindar kostar. vísir

Það er umhverfisvænna að vera ókurteis við gervigreindina þar sem hver fyrirspurn kostar orku. Gervigreindarsérfræðingur segir óþarfi að bjóða spjallmenni góðan daginn – betra sé að koma sér beint að efninu í fyrirspurnum.

Það er oft sagt að kurteisi kosti ekki neitt, en stundum á þessi fallega fullyrðing ekki alveg við og þannig er það í tilfelli gervigreindar. Þegar fyrirspurn er send með aðstoð gervigreindar í gegnum til dæmis ChatGPT eða Gemini fer ákveðið ferli í gang. Fyrirspurnin er yfirleitt send til gagnavers í Bandaríkjunum þar sem úr henni er unnið, og vinnslan kostar orku.

Hvað kostar fyrirspurnin?

Marín Jónsdóttir, gervigreindarsérfræðingur og leiðtogi verkefnisins Glóð hjá Almannarómi, skrifaði nýlega grein þar sem hún velti umhverfisþáttum gervigreindar fyrir sér.

„Þannig ég fór aðeins að hugsa, hvað kostar ein fyrirspurn? Og það sem ég komst að var að ein fyrirspurn, þetta er rannsókn sem var gerð á Google og Gemini-mállíkaninu sem þau eru með, ein fyrirspurn til Gemini kostar jafn mikið rafmagn og ein sekúnda í örbylgjuofni.“

Sem hljómar ekkert svakalega mikið en Marín segir að setja verði hlutina í samhengi. Raunin sé sú að gervigreind er orðin stór hluti af daglegu lífi margra og telja daglegir notendur um milljarð.

„Þannig að þetta er orðið svo umfangsmikið þannig að auðvitað telur hver fyrirspurn.“

Þar sem hver fyrirspurn kostar orku er í raun umhverfisvænna að eyða ekki tíma í óþarfa kurteisi á borð við það að bjóða gervigreindinni góðan daginn eða þakka henni kærlega fyrir veitta aðstoð og vona að hún eigi góðan dag.

„Það er kannski óþarfi að byrja að tala við mállíkanið og segja: Hæ, hæ og senda það áfram af því að mállíkan virkar bara ekki þannig. Það er allt í lagi að skrifa bara það sem þig vantar að fá frá mállíkaninu. Það er alveg fín þumalputtaregla.“

Færri flugferðir og minna kjöt

Umhverfisspor gervigreindar séu þó ekki mikil í stóra samhenginu.

„Ef manni er rosalega annt um umhverfismál þá er líklega áhrifaríkara að fara í færri flugferðir og hætta að borða kjöt.“

Það sé þó munur á textafyrirspurn og fyrirspurn þar sem myndir og myndbönd eru búin til af mállíkani eða ef það er látið senda tölvupósta eða þróa kóða.

„Þá erum við náttúrulega að tala um allt annað en einhverja eina sekúndu í örbylgjuofni. Það er einn stór notandi á Claude Code sem segir að hans notkun noti meira rafmagn en tveir ísskápar noti á sólarhring, ef maður reynir að setja þetta í svona eitthvað samhengi. Þannig maður náttúrulega passar líka að gera ekki lítið úr þessari notkun.“


Tengdar fréttir

„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“

Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir áríðandi að fólk missi ekki móðinn í mannréttindabaráttu. Hann segir nauðsynlegt að ná böndum á þau 60 átök sem geisa víða um heim. Einræðisherrar heimsins vilji láta fólki líða eins og það sé hjálparvana og valdalaust en það sé ekki þannig. Hann segir að bregðast verði við bakslagi í mannréttindum og óttast verulega þróun gervigreindar. 

Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 

Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir

Gervigreindarrisinn OpenAI hefur sagt upp starfsmanni eftir að grunur kom upp um að hann hafi stundað iðnaðarnjósnir innan fyrirtækisins. Háþróaður hlerunarbúnaður fannst á skrifstofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×