Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Birgir Olgeirsson skrifar 19. október 2026 13:30 Í nýrri skýrslu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra segir að enn hafi ekki verið tekin ákvörðun um næstu skref í brúun umönnunarbilsins, tíu mánuðum eftir að tillögur aðgerðahóps lágu fyrir. Vísir/Rafn Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, tíu mánuðum eftir að aðgerðahópur skilaði tillögum sínum. Hópurinn lagði til að viðræðum ríkis og sveitarfélaga lyki í maí og frumvarp um lögbundna ábyrgð sveitarfélaga á leikskólarekstri kæmi fram í haust.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis, sem lögð var fram 16. október. Þar segir að aðgerðahópurinn hafi skilað skýrslu í desember 2025 með tillögu að tímasettri áætlun um brúun umönnunarbilsins, en ekki hafi verið tekin ákvörðun um næstu skref. Vildu ljúka viðræðum í maí Umönnunarbilið er sá tími sem líður frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til barn fær leikskólapláss. Í tillögum aðgerðahópsins frá desember var gert ráð fyrir að viðræðunefnd ríkis og sveitarfélaga yrði sett á fót í ársbyrjun 2026 og lyki störfum eigi síðar en í maí. Viðræðurnar áttu að snúast um uppbyggingu, kostnaðarskiptingu og tekjustofna vegna brúunar bilsins. Forsætisráðuneytið skyldi hafa forgöngu um þær. Jafnframt lagði hópurinn til að frumvarp um að gera rekstur leikskóla að lögbundnu hlutverki sveitarfélaga yrði lagt fyrir Alþingi eigi síðar en á haustþingi 2026. Leikskólaréttur átján mánaða barna frá næsta ári Hópurinn lagði til að réttur barna til leikskóladvalar yrði lögfestur í áföngum. Fyrst yrði átján mánaða börnum tryggður rétturinn árið 2027. Síðan tæki hann til yngri barna, þar til öllum börnum væri tryggð leikskóladvöl að loknu fæðingarorlofi í síðasta lagi árið 2030. SA töldu lögfestingu ótímabæra Vísir fjallaði um tillögurnar og gagnrýni Samtaka atvinnulífsins í desember. Samtökin töldu skýrsluna ekki svara nægilega vel hvers vegna sveitarfélögum hefði ekki tekist að brúa bilið. SA töldu því ótímabært að lögfesta réttinn. Lögfesting ein og sér leysti ekki undirliggjandi vanda, meðal annars vegna rekstrarkostnaðar og krafna um menntun og mönnun leikskóla.
Alþingi Börn og uppeldi Fjölskyldumál Mest lesið Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Sjá meira