Innlent

Skoða að út­vista rekstri Hús­dýragarðsins til einka­aðila

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hildur Björnsdóttir og Björg Magnúsdóttir leiða Sjálfstæðisflokk og Viðreisn í borgarstjórn.
Hildur Björnsdóttir og Björg Magnúsdóttir leiða Sjálfstæðisflokk og Viðreisn í borgarstjórn. Vísir/Vilhelm

Borgin ætlar að skoða að útvista rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins til einkaaðila. Forseti borgarstjórnar segir tækifærin fjölmörg og að borgin sé ekki alltaf best til þess fallin að gera allt ein. 

Á morgun tekur borgarstjórn Reykjavíkur fyrir tillögu borgarfulltrúa meirihlutans um að athuga útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Bein framlög borgarinnar til rekstursins hafa numið 3,6 milljörðum króna síðastliðin tíu ár og hleypur hallareksturinn á hundruðum milljóna ár hvert.

Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir að staða garðsins verði greind.

„Við ætlum að setja vinnu í gang við að kanna hvort það sé tilefni, ástæða og sniðugt að útvista rekstri garðsins í heild eða hluta. Tillagan gengur út á að byrja þessa vinnu og kanna hvort það séu einhverjir þarna úti, einkaaðilar eða atvinnulíf, sem sjá tækifæri í því að byggja áfram upp þennan ótrúlega verðmæta garð. Þetta er algjörlega einstök perla,“ segir Björg. 

Tækifærin séu fjölmörg.

„Nú hleypum við þeirri vinnu af stað að fá upp allar tölurnar og kanna og rýna til framtíðar hver tækifærin gætu verið,“ segir Björg. 

Hún vilji efla garðinn með aðstoð atvinnulífsins.

„Við vitum hversu verðmæta eign við erum með í höndunum. Mér finnst fullt tilefni til að hefja þetta samtal. Við vitum að Reykjavíkurborg er ekki best fallin til þess að gera allt ein,“ segir Björg. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×