Innlent

Lækkar eigin laun

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þór Sigurgeirsson er bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.
Þór Sigurgeirsson er bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Vísir/Vilhelm

Bæjarstjóri Seltjarnarness hefur ákveðið að lækka eigin laun um tvö hundruð þúsund krónur á mánuði. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er sögð alvarleg. 

Vísir greindi frá því fyrir helgi að bæjarráð Seltjarnarness hefði samþykkt að lækka greiðslur til bæjarfulltrúa og setja á tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann. Rekstrarstaða bæjarins er þung, bærinn hefur skilað tapi af A-hluta níu ár í röð og samanlagt tap fyrstu sex mánaða þessa árs er meira en allt tapið í fyrra. 

Morgunblaðið greinir frá því að ofan á þessar aðgerðir sem fréttastofa fjallaði um hafi Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri ákveðið að lækka eigin laun um tvö hundruð þúsund krónur á mánuði. Þetta er í annað sinn sem Þór lækkar eigin laun síðan hann tók við sem bæjarstjóri 2022.

Stefnt er að því að þessar aðgerðir skili að lágmarki sextán prósenta hagræðingu. Þá er unnið að því að gera úttekt á stofnunum bæjarins og skoðað hvernig megi ná fram hagræðingu í rekstri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×