Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Frumkvæði þitt og dómgreind er vel metin um þessar mundir og þú skalt ekki láta öfundartóna slá þig út af laginu. Ferðalag er á döfinni.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú verður fyrir vonbrigðum með ákveðið fólk í dag en það er lítið sem þú getur gert í því. Ekki taka það nærri þér þó að fólk standi sig ekki sem skyldi.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú ert undir álagi, líklega er einhver að þrýsta á þig að taka ákvörðun. Gefðu þér góðan tíma og leitaðu ráða ef þú ætlar að ráðast í fjárfestingu.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Forðastu að baktala samstarfsfólk þitt. Það er aldrei að vita á hvers bandi fólkið í kringum þig er. Rómantíkin blómstrar.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Treystu á eðlishvötina í samskiptum þínum við aðra. Fjölskyldan verður þér efst í huga í dag og þú nærð góðu sambandi við þá sem eru þér eldri.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Mál sem þú hefur lengi beðið lausnar á leysist eins og af sjálfu sér. Þú þarft að sætta þig við eitthvað sem er þér ekki að skapi.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú ert heppinn í dag, bæði í vinnunni og einkalífinu. Þú átt í vændum skemmtilegt kvöld með góðum vinum.

Menning

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)

Eitthvað sem hefur farið úrskeiðis hjá vini þínum hefur truflandi áhrif á þig og áform þín. Þú þarft því að skipuleggja hlutina upp á nýtt.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Vinnan á hug þinn allan þessa dagana. Þú verður að gæta þess að særa engan þótt þú hafir lítinn tíma til að umgangast ástvini.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú ert undir einhverju álagi sem þú hefur ekki verið undir áður. Þú bregst skjótt við fréttum sem þú færð. Ekki láta neitt uppi um persónulegar áætlanir þínar.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú þarft að fara varlega í fjármálum og forðast alla óhóflega eyðslu. Þá er líklegt að þú getir látið gamlan draum rætast.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú þarft að vanda þig í samskiptum þínum við erfiða aðila og er samt ekki víst að það dugi til farsælla samskipta. Sumir eru bara svona.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér hættir til að eyða of miklu og það mun koma þér í koll. Þú virðst duglegri við að eyða fé en afla um þessar mundir.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ættir að hleypa meiri tilbreytingu inn í líf þitt. Það hefur verið helst til einhæft undanfarið. Hvernig væri að finna sér nýtt áhugamál?

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú hefur í mörg horn að líta og átt á hættu að vanrækja einhvern sem þér þykir þó afar vænt um. Vertu heima hjá þér í kvöld og slappaðu af.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú verður fyrir sífelldum truflunum í dag og kemst lítið áfram með það sem þú ert að gera. Þú ættir að fara út á lífið í kvöld.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú verður líklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dags og verður að gæta þess að halda ró þinni. Kvöldið notarðu til að slappa af.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þó að þetta verði venjulegur dagur á yfirborðinu ríkir mikil eining innan fjölskyldunnar og það veitir þér mikla gleði og ánægju.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Sjálfstraust þitt sem venjulega er í góðu lagi er með minna móti þessa dagana. Taktu fagnandi á móti þeim sem eru vinsamlegir í þinn garð.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú ert eitthvað eirðarlaus þessa dagana og sjálfum þér ónógur. Hvernig væri að finna sér nýtt áhugamál, úr nógu er að velja.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Þú verður að hafa stjórn á örlæti þínu og mátt ekki láta aðra komast upp með að nota sér hjálpsemi þína þannig að það skaði þig.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gamlar væringar gætu skotið upp kollinum ef farið er að ræða viðkvæm mál. Það væri skynsamlegt að vera ekkert að því.

Menning