Lífið

„Því­lík gleði með þennan tíma“

Freyja Þórisdóttir skrifar
Pawel er greinilega margt til lista lagt en hann er í skýjunum með þennan nýja áfanga.
Pawel er greinilega margt til lista lagt en hann er í skýjunum með þennan nýja áfanga. Facebook/Pawl Bartoszek

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, greindi frá þeim tíðindum á dögunum að hann væri nú í hópi þeirra örfáu Íslendinga sem hafa leyst Rúbikskubb, einnig kallaður töfrateningur, blindandi í keppni. 

Í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær kemur fram að 3. sætið á Íslandsmóti sé í höfn en Pawel leysti kubb blindandi á rétt rúmum fimm mínútum og sautján sekúndum. Mótið fer fram alla helgina og er haldið í Háskólanum í Reykjavík en það var einnig keppt í því að leysa minni töfrateninga sem og svokallaðan Pyraminx sem er eins konar pýramídalaga töfrateningur.

Heimsmetið í því að leysa 3x3 töfratening blindandi er 11 sekúndur og 56 sekúndubrot en það var hinn bandaríski Tommy Cherry sem sló það í sumar. Það er í sífellu verið að slá metið um hraðasta tímann til að leysa Rúbikskubb en sá sem á núverandi met er hinn níu ára gamli Xuanyi Geng frá Kína.


Tengdar fréttir

Sex ára stúlka setti heimsmet

Lian Yunzhi, sex ára stúlka frá Kína, hefur sett nýtt heimsmet kvenna í að leysa Rubik's Cube. Hún æfir sig í nokkrar klukkustundir á hverjum degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.