Kína

Kína

Höfuðborg: Peking. Mannfjöldi: 1.409,0 milljónir (2025). Flatarmál: 9.596.961 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hugsi yfir fram­lagi Krist­rúnar

Annar hlaðvarpsstjórnanda breska hlaðvarpsins Rest is Politics veltir því upp hvort skortur á forystu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hafi orðið til þess að ekki tókst að fá meirihluta Íslendinga til þess að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslu síðustu helgi. Hinn stjórnandinn segir ljóst að um mikinn sigur sé að ræða fyrir Vladimír Pútín forseta Rússlands. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Af TikTok á skjáinn

Skólinn eru nýir örþættir frá Sketsagerðinni, sem hefur notið vinsælda fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, sem hefja göngu sína á Sýn+ þann 15. september. Þættirnir verða þrjátíu talsins, hver á bilinu ein til þrjár mínútur að lengd og verða þeir sýndir yfir þrjátíu daga tímabil.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Fyrr­verandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífs­tíðar­fangelsi

Stofnandi kínverska fjárfestinga- og fasteignafélagsins Evergrande Group hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hui Ka Yan var um tíma auðugasti maður Asíu en fall Evergrande, sem var einn af hornsteinum kínverska hagkerfisins, hafði umfangsmikil áhrif á Kína og varð að eins konar táknmynd fyrir vandræði á fasteignamarkaði Kína.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Lentu geim­flaug í fyrsta sinn

Kínverjum tókst í fyrsta sinn í dag að lenda fyrsta þrepi geimflaugar aftur á jörðinni. Hingað til hafa Bandaríkjamenn og þá fyrirtækin SpaceX og Blue Origin verið einu aðilarnir sem hafa búið yfir slíkri tækni, sem dregið getur verulega úr kostnaði við að koma farmi á braut um jörðu.

Erlent
Fréttamynd

Efnt til æfinga í Taí­van fyrir um­fangs­mikið rof á fjar­skiptum

Stjórnvöld á Taívan stóðu í gær fyrir æfingu á fjarskiptatruflunum í kjölfar ímyndaðrar árásar eða innrásar af hálfu Kína. Æfingar vegna mögulegrar árása Kínverja eru reglubundin viðburður en þetta var fyrsta æfing Taívana þar sem gert var ráð fyrir umfangsmiklum fjarskiptatruflunum.

Erlent
Fréttamynd

Tollar kísilframleiðslu í Kína

Donald Trump tilkynnti í gærkvöldi tolla á fjölkristallaðan kísil og kísilafurðir frá Kína sem notaðar eru í framleiðslu sólarrafhlaðna og hálfleiðara. Markmiðið með þessum fimmtán prósenta tollum er að ýta undir innlenda framleiðslu í Bandaríkjunum en hann tekur þó ekki gildi fyrr en eftir þingkosningarnar í nóvember en kjósendur vestanhafs hafa ítrekað kvartað yfir hækkandi verðlagi í Bandaríkjunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

AGS og gengismálin: Enn er verk að vinna

Þótt besta leiðin til að takast á við slíkt ójafnvægi sé að laga undirliggjandi veikleika í innlendri efnahagsstefnu þýðir það ekki að mat á of- eða vanmati gjaldmiðla hafi ekki mikilvægt upplýsingagildi. Það verður ekki nægilega undirstrikað að renminbi er gjaldmiðill sem kínversk stjórnvöld stýra með mjög virkum hætti.

Umræðan
Fréttamynd

Vilja refsi­að­gerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kín­verja

Hópur bandarískra þingmanna hefur farið fram á við ríkisstjórn Donalds Trump að refsiaðgerðum verði beitt til að reyna að stöðva umfangsmiklar og oft ólöglegar veiðar Kínverja sem kallaðar eru „vistmorð“. Peningar sem áttu að fara í eftirlit með þessum veiðum fóru í allt annað.

Erlent
Fréttamynd

Óttast kín­verska gervi­greind

Forsvarsmenn bandarískra gervigreindarfyrirtækja eins og OpenAI og Anthropic hafa varað ráðamenn þar í landi við hraðri framþróun gervigreindar í Kína. Í Washington DC stendur nú yfir umræða um það hvort að mögulega eigi að banna bandarískum fyrirtækjum að nota kínverska gervigreind.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Auka þrýstinginn á Taí­van veru­lega

Yfirvöld í Taívan segja ferðum skipa Strandgæslu Kína og kínverskra rannsóknarskipa kringum eyjuna hafa fjölgað mjög. Kínverjar séu að auka þrýstinginn á eyríkið verulega og mögulega að undirbúa að setja Taívan í herkví, ef til átaka kemur.

Erlent
Fréttamynd

Tæki­færi fylgi flugi frá Kína en einnig hættur

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu

Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Innlent
Fréttamynd

Lýsa upp­götvuninni sem gríðar­stórum „hvalakirkjugarði“

Í suðaustanverðu Indlandshafi á um sjö kílómetra dýpi hafa vísindamenn uppgötvað eitthvað sem lýst er sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“. Þar hafa þegar verið taldar hátt í fimm hundruð hvalaleifar á svæði sem teygir sig yfir um tólf hundruð kílómetra. 

Erlent
Fréttamynd

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

Innlent
Fréttamynd

Taívanar líta til Úkraínu og Íran

Yfirvöld í Taívan ætla að fjölga verulega eldflaugum sem ætlað er að granda skipum. Markmiðið er að styrkja varnir eyríkisins gegn mögulegri innrás Kínverja á komandi árum og stendur til að fjölga eldflaugum og flugskeytum verulega. Ráðamenn í eyríkinu vilja læra af átökunum í bæði Úkraínu og Persaflóa, þar sem ríki hafa varist árásum mun öflugri andstæðinga.

Erlent
Fréttamynd

Hafnar á­sökunum um nýtt hernaðar­brölt Japana

Ráðamenn víða um Asíu hyggja á aukna hernaðaruppbyggingu og þá að miklu leyti vegna áhyggja af gífurlegri uppbyggingu í Kína. Kínverjar kalla eftir samstöðu gegn nýju hernaðarbrölti Japana, sem hafna slíkum ásökunum og benda á uppbygginguna í Kína.

Erlent