Viðskipti erlent
158 159 160 161 162 163 164 165 166 … 334 ›
Suzuki af markaði í Bandaríkjunum Suzuki bílar verða ekki seldir í Bandaríkjunum á næstunni. Ástæðan er sú að þrátt fyrir að bílarnir hafi verið seldir þar í þrjá áratugi virðast Bandaríkjamenn ekki vera spenntir fyrir þeim. Salan gengur illa og tekjurnar eru ekki nægjanlega miklar. Bifhjól og bátamótorar verða aftur á móti seldir áfram í Bandaríkjunum enda gengur sala þeirra mun betur. Viðskipti erlent 6.11.2012 08:03
Fróðleikur: Efnahagsstórveldið Bandaríkin Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru efnhagslegur stórviðburður, enda hefur stefna forseta Bandaríkjanna í efnahagsmálum afgerandi áhrif á ganga mála á alþjóðlegum fjármála- og verðbréfamörkuðum, sem og á sviði alþjóðastjórnmála. Hvort sem Demókratinn Barack Obama verður forseti áfram næstu fjögur ár, eða Repúblikaninn Mitt Romney verður nýr forseti landsins, er ljóst að krefjandi verkefni bíður nýs forseta þegar kemur að efnahagsmálum. Viðskipti erlent 6.11.2012 00:01
Seldu þrjár milljónir iPad mini á þremur dögum Apple tilkynnti í dag að yfir þrjár milljónir iPad mini og fjórðu kynslóðar iPad-spjaldtölva hefðu selst um opnunarhelgina en sala á þeim hófst 23. október. Þetta eru tvöfalt fleiri spjaldtölvur en seldust opnunarhelgina á iPad í mars síðastliðnum. Viðskipti erlent 5.11.2012 20:44
Georg Jensen var eigendum til vandræða Georg Jensen skartgripaverslanakeðjan hefur aldrei skilað eigendum sínum þeim hagnaði sem vænst var. Georg Jensen var í eigu fjárfestingasjóðsins Axcel í ellefu ár. Eins og greint var frá í morgun hefur keðjan síðan verið seld auðjöfrum frá Bahrain, en fyrirtækið sem heldur utan um eignarhlutann núna heitir Investcorp. Viðskipti erlent 5.11.2012 17:26
Danir selja Georg Jensen Danska hönnunar- og skatgripafyrirtækið Georg Jensen hefur verið selt auðjöfrum frá Bahrain fyrir um sextán milljarða íslenskra króna. Það er fjárfestafyrirtækið Investcorp sem kaupir Georg Jensen, en Financial Times segir að kaupin verði staðfest síðar í dag. Margir Íslendingar þekkja Georg Jensen vegna jólaskrautsins sem fyrirtækið framleiðir. Viðskipti erlent 5.11.2012 08:59
Toyota gerir ráð fyrir 1.230 milljarða hagnaði Forsvarsmenn japanska bílaframleiðandans Toyota gera ráð fyrir 9,7 milljarða dala hagnaði á rekstrarárinu sem sem lýkur í mars á næst ári. Það jafngildir um 1.230 milljörðum króna. Viðskipti erlent 5.11.2012 08:37
Tchenguiz vill að fyrrverandi forstjóri SFO sæti ábyrgð Robert Tchenguiz telur að Richard Alderman, fyrrverandi forstjóri efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar eigi að sæta ábyrgð fyrir að hafa handtekið sig og Vincent bróður sinn. Handtakan fór fram í tengslum við rannsókn á málum Kaupþings. Viðskipti erlent 4.11.2012 14:05
Ríflega 171 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum Ríflega 171 þúsund ný störf urðu til í Bandaríkjunum í október, sem er töluvert mikið meira en reiknað hafði verið með. Þrátt fyrir þetta jókst skráð atvinnuleysi í Bandaríkjunum úr 7,8 prósent frá því í september í 7,9 prósent í október. Atvinnuleysisskráin í Bandaríkjunum þykir um margt óáreiðanleg, en einungis þeir sem eru skráðir virkir í atvinnuleit eru á atvinnuleysisskrá í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 4.11.2012 12:24
Stórum bönkum gert að styrkja lausafjárstöðu sína Fjórir stórir alþjóðlegir bankar, Citigroup, HSBC, Deutsche Bank og JP Morgan, þurfa að fara varlega á næstu misserum og halda sterkri lausafjárstöðu, samkvæmt skilyrðum sem eftirlitstofnanir hafa sett bönkunum. Frá þessu var greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í morgun. Viðskipti erlent 2.11.2012 10:23
Apple hefur sölu á iPad mini Bandaríski tölvurisinn Apple hefur sölu á nýjum útgáfum af iPad-spjaldtölvunum um heim allan í dag. Íslenskar verslanir hefja einnig sölu á tölvunum í dag. Viðskipti erlent 2.11.2012 08:00
Ágóðinn af sölu Star Wars rennur í menntamál George Lucas, guðfaðir Star Wars söguheimsins, mun einblína á menntamál eftir að gengið verður frá sölu á fyrirtæki hans, Lucasfilm, til Walt Disney. Viðskipti erlent 1.11.2012 13:46
Staða Grikklands verri en búist var við Efnahagsstaða Grikklands hefur reynst enn verri en búist var við og var staðan þó ekki beysin fyrir. Viðskipti erlent 1.11.2012 06:12
Atvinnuleysið aldrei meira Atvinnuleysið á evrusvæðinu er nú í söglegu hámarki og mældist það tæp tólf prósent í september. Viðskipti erlent 31.10.2012 23:25
Stefnir í stríð á spjaldtölvumarkaði Samkeppni á spjaldtölvumarkaðinum mun harðna verulega á næstu mánuðum, þá sérstaklega þegar litið er til minni og nettari spjaldtölva. Viðskipti erlent 31.10.2012 13:30
Windows 8 slær í gegn Svo virðist sem að neytendur hafi tekið nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, með opnum örmum. Viðskipti erlent 31.10.2012 11:33
Salan hjá Panasonic hrynur - Um 1.200 milljarða tap Japanski raftækjaframleiðandinn Panasonic glímir nú við mikinn rekstrarvanda, en sala á vörum fyrirtækisins hefur hrunið undanfarin misseri og er gera spár fyrirtækisins, samkvæmt tilkynningu til kauphallar, ráð fyrir um 9,6 milljarða dala tapi á þessu ári, eða sem nemur um 1.200 milljörðum króna. Viðskipti erlent 31.10.2012 11:06
Hvítir með sexfaldar tekjur svartra í Suður Afríku Þrátt fyrir að aðskilnaðarstefnan hafi verið slegin af fyrir 18 árum í Suður Afríku er enn sláandi munur á tekjum hvítra og svartra þar í landi. Viðskipti erlent 31.10.2012 06:36
Fær yfir 500 milljarða króna fyrir Lucasfilm George Lucas átti 100% í Lucasfilms. Viðskipti erlent 30.10.2012 21:01
Fækka störfum um 3000 Danske bank, einn stærsti banki Danmerkur, ætlar að fækka störfum um 3000 allt til ársins 2015. Það er um 1000 fleiri störf en bankinn hafði áður gert ráð fyrir þurfa að leggja niður. Bankinn hyggst ýta úr vör nýrri aðgerðaráætlun, New Standard, og segja fjölmiðlar í Danmörku að bankinn sé með þeirri áætlun að viðurkenna að uppsveifla í danska hagkerfinu sé ekki á næsta leyti. Viðskipti erlent 30.10.2012 13:40
Háttsettir stjórnendur Apple reknir Vandræðagangur á kortakerfi Apple og slakar niðurstöður ársfjórðungsuppgjörs hafa orðið til þess að tveir háttsettir stjórnendur fyrirtækisins voru látnir taka pokann sinn í gær. Viðskipti erlent 30.10.2012 12:01
UBS segir 10 þúsund manns upp Svissneski bankinn UBS ætlar að fækka störfum um 10 þúsund á starfstöðum bankans víðsvegar í heiminum. Bankinn mun draga úr viðskiptabankastarfsemi sinni. Störfunum verður fækkað á næstu þremur árum. Heildarfjöldi starfsmanna er 64 þúsund og því er um að ræða fækkun um 16%. UBS bankinn tapaði um 39 milljörðum svissneskra franka í fjármálakreppunni og ríkissjóður í Sviss þurfti að koma bankanum til bjargar svo hann færi ekki í þrot. Sergio Ermotti, forstjóri UBS, segir að ákvörðunin hafi verið erfið, því bankarekstur snúist að öllu leyti um fólkið sem vinnur hjá bankanum. Viðskipti erlent 30.10.2012 10:11
ESB vill stofna neyðarsjóð fyrir fátæka í Evrópu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill koma á fót neyðarsjóði fyrir það fólk sem hvorki á til hnífs né skeiðar í Evrópu vegna efnahagskreppunnar. Viðskipti erlent 30.10.2012 07:00
Markaðir á Wall Street lokaðir annan daginn í röð Fjármálamarkaðir á Wall Street verða áfram lokaðir í dag, annan daginn í röð vegna ofurstormsins Sandy. Þetta á við um öll viðskipti líka þau rafrænu. Viðskipti erlent 30.10.2012 06:30
Bókaforlögin Penguin og Random House sameinast Búið er að samþykkja sameiningu bókaforlaganna Penguin og Random House. Hið nýja forlag mun heita Penguin Random House. Viðskipti erlent 29.10.2012 09:47
Skyfall setti aðsóknarmet á Bretlandseyjum Nýjasta James Bond myndin Skyfall setti aðsóknarmet í Bretlandi þegar hún var frumsýnd um helgina. Raunar var myndin sú aðsóknarmesta í öllum þeim 25 löndum þar sem hún var sýnd. Viðskipti erlent 29.10.2012 06:33
Um 10% danskra heimila eru í greiðsluvandræðum Dönsk heimili eiga í sívaxandi erfiðleikum með að láta endana ná saman um hver mánaðarmót. Þetta sýnir ný úttekt á vegum dönsku hagstofunnar. Viðskipti erlent 29.10.2012 06:23
Markaðir opnir þrátt fyrir fellibylinn Til stendur að opna kauphöllina á Wall Street á morgun þrátt fyrir að búist sé við gríðarmiklum stormi á austurströnd Bandaríkjanna í nótt og á morgun. NYSE Euronext og Nasdaq verða starfandi á morgun. Stærstu bankarnir, eins og Goldman Sachs, Citigroup og JP Morgan verða líka starfandi. Viðskipti erlent 28.10.2012 22:16
Niðursveiflunni lokið í Bretlandi Nýjar hagtölur benda til þess að breska hagkerfið sé farið að vaxa á ný eftir níu mánaða niðursveiflu. Hagvöxtur er talinn hafa verið ríflega 1% á þriðja ársfjórðungi, en aukinn þrótt efnahagslífsins má að stórum hluta rekja til Ólympíuleikanna í London. Viðskipti erlent 27.10.2012 02:00
Faldir sjóðir Wen Jiabao koma upp á yfirborðið Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, er orðinn vellaugður og eru sjóðir upp á hundruðir milljóna dala geymdir í félögum sem eru skráð á fjölskyldumeðli hans, þar á meðal níræða móður hans, sem skráð er fyrir eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum sem eru 120 milljóna dala virði, eða sem nemur 15 milljörðum króna. Viðskipti erlent 26.10.2012 09:48
Windows sett í nýjan búning Microsoft setur í dag á markað nýja útgáfu af Windows, útbreiddasta tölvustýrikerfi heims. Nýja útgáfan nefnist Windows 8 og felur hún í sér mestu breytingar sem gerðar hafa verið á Windows-stýrikerfinu í 17 ár. Viðskipti erlent 26.10.2012 09:00