Viðskipti erlent
309 310 311 312 313 314 315 316 317 … 334 ›
Svínaflensan lokar Lego verksmiðju í Mexíkó Lego hefur gripið til aðgerða og sent 400 starfsmenn í verksmiðju sinni í Mexíkó heim til sín. Rekstur verksmiðjunnar mun liggja niðri a.m.k. fram til 4. maí n.k. Viðskipti erlent 28.4.2009 10:10
Hlutir í JJB Sports hækka um 41% eftir samninga Hlutir í íþróttavörukeðjunni JJB Sports hækkuðu um 41% á markaðinum í London eftir að tilkynnt var að keðjan hefði náð samkomulagi við leigusala sína um breytingar á húsleigu verslana keðjunnar. Kaupþing er meðal helstu lánadrottna JJB Sports. Viðskipti erlent 28.4.2009 09:04
Pontiac heyrir brátt sögunni til Bílategundin Pontiac heyrir brátt sögunni til en General Motors tilkynntu í dag að framleiðslu Pontiac yrði hætt fyrir árslok á næsta ári. Þetta þýðir að um 21.000 manns muni missa vinnuna. Viðskipti erlent 27.4.2009 14:51
Stjórar Kaupþings í Bretlandi með 3 milljarða í laun Ernst & Young stjórnendur Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hafa fengið tæpar 16 milljónir punda í laun, eða um 3 milljarða kr., á þeim sex mánuðum sem þeir hafa annast málefni bankans. Ofan á þessa upphæð leggst síðan 20% virðisaukaskattur. Viðskipti erlent 27.4.2009 11:13
Nær 140.000 danskar fjölskyldur eru tæknilega gjaldþrota Sökum þess hve fasteignaverð hefur lækkað mikið eru nær 140.000 danskar fjölskyldur nú tæknilega gjaldþrota. Þetta kemur fram á vefsíðunni dinepenge.dk. Þessar fjölskyldur eiga það sameiginlegt að hafa fjárfest í nýjum íbúðum/húsum þegar fasteignaverðið náði hámarki í Danmörku árin 2006 og 2007. Viðskipti erlent 27.4.2009 10:47
Óttinn við svínaflensuna veldur niðursveiflu á mörkuðum Flugfélög og félög í ferðamannaiðnaðinum víða um heim verða fyrir barðinu á óttanum við svínaflensuna. Hlutir í þessum félögum hrapa í verði á mörkuðum í dag. Viðskipti erlent 27.4.2009 08:51
Leigusalar með framtíð JJB Sports í höndunum Breska íþróttavöruverslunarkeðjan JJB Sports mun fara í greiðslustöðvun í dag ef henni tekst ekki að tryggja sér samþykki 75% leigusala sinna við breytingar á húsaleigusamningum verslanna keðjunnar. Viðskipti erlent 27.4.2009 08:40
Náðarstundin nálgast hjá Chrysler Chrysler-bílaverksmiðjurnar hafa nú aðeins þrjá daga til að ná samkomulagi við starfsfólk sitt og lánardrottna um hagræðingu sem nægir til að halda þeim á floti. Viðskipti erlent 27.4.2009 08:19
Milljarðamæringum Bretlands fækkar Kreppan hefur gengið nokkuð á auðæfi ríkustu manna Bretlands samkvæmt árlegum lista yfir ríka þar í landi sem birt er í sunnudagsútgáfu Lundúnablaðsins Times í morgun. Viðskipti erlent 26.4.2009 10:25
Kolsvart ár í bókum Nomura Nomura Holdings, umsvifamesta fjármálafyrirtæki Japans, tapaði 709,4 milljörðum jena, jafnvirði 950 milljarða íslenskra króna, í fyrra. Hrun á fjármálamörkuðum og kaup á þrotabúi bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers í Asíu, Evrópu og Mið-Austurlöndum skömmu eftir þrot bankans í september brenndu gat í bækur fyrirtækisins. Viðskipti erlent 25.4.2009 07:00
Enn djúp kreppa í Bretlandi Breska hagkerfið dróst saman um 1,9 prósent á fyrsta fjórungi ársins, samkvæmt gögnum bresku hagstofunnar. Niðurstaðan er 0,4 prósentustigum svartari en spáð var. Til samanburðar nam samdrátturinn 1,6 prósentum á síðasta fjórðungi í fyrra. Viðskipti erlent 25.4.2009 05:00
Hafa tapað 9 milljörðum á Debenhamshlutum Reikna má með að HSBC bankinn hafi tapað um 9 milljörðum kr. á því að bíða ekki tæpan mánuð með að setja rúmlega 13% fyrrum hlut Baugs í Debenhams í sölu. Bankinn setti hlutinn í sölu síðustu mánaðarmót með verðmiðann 40-45 pens. Viðskipti erlent 24.4.2009 10:00
Chrysler hefur viku til að semja um kaup á Fiat Bandaríski bílaframleiðandinn Chrysler hefur nú eina viku til að ná samningum um kaup á ítölsku Fiat-verksmiðjunum til að styrkja stöðu sína. Bandaríkjastjórn hefur veitt frest til mánaðamóta til að ganga frá kaupunum en verði ekki af þeim er hætt við að Chrysler glati opinberum styrkjum sínum sem haldið hafa verksmiðjunum gangandi síðan í fyrra. Viðskipti erlent 24.4.2009 07:25
Bretland ekki í jafnvægi fyrr en 2032 Skuldastaða Bretlands verður ekki komin í eðlilegt horf fyrr en árið 2032, eða eftir 23 ár. Þetta segja hagfræðingar bresku hagfræðistofnunarinnar IFS. Viðskipti erlent 24.4.2009 07:22
Halli á vöruskiptum í Japan Halli var á vöruskiptum Japana í mars, sá fyrsti sem sést hefur þar í landi í 28 ár. Þrátt fyrir þetta voru vöruskipti jákvæð um ellefu milljarða jena í mánuðinum. Það jafngildir 14,6 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 24.4.2009 06:00
Efnahagskerfi Rússa dregst saman Rússar neyðast til að draga einkaneyslu og rússnesk stjórnvöld þurfa draga gríðarlega úr útgjöldum vegna rekstrar ríkisins. Þetta segir Alexei Kudrin, fjármálaráðherra landsins. Efnahagskerfi Rússlands dróst saman um 9,5% fyrstu þrjá mánuði ársins. Viðskipti erlent 23.4.2009 17:13
Samdrætti spáð í Þýskalandi Von er á yfir 6% samdrætti í efnahagslífi Þýskalands ef spár helstu sérfræðinga og þýska fjármálaráðuneytisins ná fram að ganga. Talið er að samdrátturinn nái hámarki 2010. Þá er 10% atvinnuleysi spáð á sama tímabili. Viðskipti erlent 23.4.2009 14:15
Bresk stjórnvöld boða 50% hátekjuskatt Alistair Darling fjármálaráðherra Bretlands boðaði 50% hátekjuskatt í framsöguræðu sinni um bresku fjárlögin í dag. Á skatturinn að aðstoða breska ríkið við að ná endum saman en lántaka ríkisins í kreppunni hefur slegið öll met. Viðskipti erlent 22.4.2009 15:10
Morgan Stanley eyðilagði uppgjörsveisluna Eftir röð af góðum uppgjörum bandarísku stórbankanna í vikunni kom Morgan Stanley með sitt eftir fjórða ársfjóðung og eyðilagði veisluna. Viðskipti erlent 22.4.2009 12:56
Svörtustu fjárlög í sögu Breta Alastair Darling fjármálaráðherra Bretlands kynnir í hádeginu svörtustu fjárlög sem Bretar hafa séð í mannsaldur eða meira. Viðskipti erlent 22.4.2009 12:09
Líknarsamtök fá helming af fé sínu úr Kaupþingi Bresku barna líknarsamtökin Naomi House munu fá helming af þeim 5,7 milljónum punda sem þau áttu inn í Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi endurgreidd eða sem svarar til um 500 miljóna kr. Viðskipti erlent 22.4.2009 09:09
Yahoo boðar uppsagnir fimm prósenta Hugbúnaðarfyrirtækið Yahoo hefur boðað uppsagnir sem nema fimm prósentum starfsmanna þess. Ástæða þessa er fyrst og fremst samdráttur í auglýsingatekjum á fyrsta fjórðungi ársins en auk uppsagnanna hyggjast stjórnendur fyrirtækisins draga úr rekstrarkostnaði eins og kostur er. Hlutabréf í Yahoo hækkuðu um 4,5 prósent þegar fréttir bárust af væntanlegum niðurskurðaraðgerðum. Viðskipti erlent 22.4.2009 07:11
Bankastjórar og stjórn FIH með 400 milljónir í laun Laun bankastjóra og stjórnar FIH bankans í Danmörku námu 18,3 milljónum danskra kr. á síðasta ári eða rúmlega 400 milljónum kr. Sem kunnugt er af fréttum er FIH nú í eigu íslenska ríkisins í gegnum veð sem Seðlabankinn tók í bankanum fyrir láni til Kaupþings skömmu áður en Kaupþing komst í þrot s.l. haust. Viðskipti erlent 21.4.2009 15:19
Verðmiði AGS á bankatapinu er 500.000 milljarðar Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) mun tap bankanna í Vesturheimi í fjármálakreppunni nema um 4.000 milljörðum dollara eða vel rúmlega 500.000 milljörðum kr. Viðskipti erlent 21.4.2009 13:59
Samningur Bermúda og Norðurlandanna gleður OECD Samningur Bermúda við Norðurlöndin, þar á meðal Íslands, um skipti á upplýsingum til að koma í veg fyrir skattsvik hefur vakið gleði hjá OECD. Samtökin segja að þetta sé enn eitt skrefið til að styrkja alþjóðlega viðleitni þeirra til að setja samræmda stefnu í þessu málum. Viðskipti erlent 21.4.2009 11:21
Moody´s dregur úr lánstraustinu hjá Buffet Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunina hjá Berkshire Hathaway, fjárfestingarfélagi auðjöfursins Warren Buffet, úr AAA og niður í AA2 eða um tvö þrep. Viðskipti erlent 21.4.2009 10:12
Rússar of blankir til að kaupa ný jakkaföt á Lenin Fjármálakreppan hefur leikið Rússland svo grátt að stjórnvöld þar í landi hafa ekki lengur efni á nýjum jakkafötum handa Lenin þar sem hann liggur smurður í opinni líkkistu sinni við Rauða torgið. Viðskipti erlent 21.4.2009 09:41
Stýrivextir aldrei lægri í sögu Svíþjóðar Seðlabanki Svíþjóðar hefur lækkað stýrivexti úr 1% og niður í 0,5%. Hafa stýrivextir aldrei verið lægri í sögu landsins. Og seðlabankastjórinn gerir ráð fyrir að hugsanlega muni þetta vaxtastig gilda allt fram til ársins 2011. Viðskipti erlent 21.4.2009 09:00
Íslensku bankarnir ollu mettapi norska tryggingarsjóðsins Íslensku bankarnir, Kaupþing og Glitnir, ollu því að tryggingarsjóður bankainnistæðna í Noregi skilaði mettapi á síðasta ári. Alls nam tap sjóðsins á árinu 1,8 milljörðum norskra kr. eða sem svarar til rúmlega 34 milljarða kr. Viðskipti erlent 20.4.2009 15:43
BBC segir yfirtöku Straums á West Ham ólíklega Fram kemur í frétt á vefsíðu BBC í dag að ólíklegt þyki að Straumur muni yfirtaka fótboltafélagið West Ham sem er í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Samkvæmt BBC komu tveir kaupendur að félaginu fram á sjónarsviðið um helgina. Annar er frá Miðausturlöndum og hinn frá Austurlöndum fjær. Viðskipti erlent 20.4.2009 15:02