Innlent

Lýsa stuðningi við ráðherraval

Stjórnir allra Framsóknarfélaga í Reykjavíkurkjördæmi norður lýsa í ályktun stuðningi við þá niðurstöðu sem varð í ráðherravali Framsóknarflokksins. Í ályktun félaganna segir að formaður og þingflokkur Framsóknarflokksins hafi tekið erfiða en óhjákvæmilega ákvörðun, að skipa ráðherra í væntanlega ríkisstjórn undir forsæti Halldórs Ásgrímssonar. Framsóknarmenn eru hvattir til þess að vinna sameinaðir að stefnumálum flokksins og að þeim markmiðum sem fram komi í stjórnarsáttmálanum. Þá er lýst yfir fullum stuðningi við Árna Magnússon, þingmann kjördæmisins og ráðherra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×