
Innlent

Hvasst á landinu í dag
Áfram verður hvasst á landinu í dag og má búast við vindi 10-20 m/s.

Ekkert bann við skólaheimsóknum í Selfosskirkju
Um eitt þúsund skólabörn hafa heimsótt Selfosskirkju á aðventunni þar sem prestur og æskulýðsfulltrúi leika meðal annars jólaguðspjallið.

Nýtt pósthús opnað á Selfossi
Íslandspóstur hefur opnað nýtt pósthús á Selfossi við Larsenstræti 1. Húsið kostaði um þrjú hundruð milljónir króna í byggingu.

Nýir og betri gluggar í Skálholti
Skipt hefur verið um alla glugga í Skálholtsdómkirkju en þeir voru orðnir meira og minna ónýtir. Fagmenn frá Þýskalandi voru fengnir í verkið.

Dauðsföllum vegna eitrunar af völdum lyfseðilsskyldra lyfja fer fjölgandi
Það sem af er ári hefur landlæknisembættið fengið til skoðunar andlát 42 einstaklinga þar sem grunur leikur á að viðkomandi hafi látist af völdum eitrunar. Allt árið í fyrra hafði embættið 34 mál til skoðunar.

Maðurinn sem leitað var að er fundinn
Björgunarsveitir og lögreglan á Vesturlandi leita nú manns í Laxardál í Dölum á Vesturlandi.

Vitni fullyrða að skoti hafi verið hleypt af
Karl og kona eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar hennar á vopnaburði í Stangarhyl í Ártúnsholti á ellefta tímanum í morgun.

Blaðamaður Stundarinnar sýknaður í ærumeiðingarmáli
Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms þar sem blaðamaður á Stundinni var sýknaður af kröfum fyrrverandi ritstjóra Reykjavík Grapevine um ærumeiðingar í dag.

Formaður Lögmannafélagsins: „Hreinlega orða vant að lesa þessi ummæli“
Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands, segir samfélagið þjást af skorti á skilningi á störfum lögmanna. Berglind var viðmælandi Reykjavíkur síðdegis á Bylgjunni þar sem hún ræddi störf lögmanna í kjölfar umræðu um mál sem snýr að ummælum um Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmann í Facebook-hópnum "Karlar gera merkilega hluti.“

Persónuvernd krefur Tekjur.is um svör
Persónuvernd athugar nú birtingu félagsins Viskubrunns ehf. á skattskrárupplýsingum ársins 2016 á vefsíðunni Tekjur.is. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Persónuvernd.

Lögreglan varar við „inniveðri“ á morgun
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í kvöld færslu á Facebook-síðu sinni þar sem fólk er minnt á að ganga vel frá lausum munum en veðurspáin fyrir morgundaginn er ekki góð.

Formenn stjórnarflokkanna funduðu með fulltrúum sveitarfélaganna um fiskeldismál
Formenn stjórnarflokka ríkisstjórnarinnar funduðu í gær með bæjarstjóra Vesturbyggðar og oddvita Tálknafjarðarbæjar. Tilefni fundarins var að ræða stöðuna sem nú er uppi hjá fiskeldisfyrirtækjum í sveitarfélögunum tveimur en úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti fyrr í vikunni rekstrarleyfi fyrirtækjanna til fiskeldis á Vestfjörðum. Sveitarstjórnarmenn sveitarfélaganna sátu einnig fundinn.

Mosfellsheiði opnuð á ný
Bílvelta varð á Mosfellsheiði á fimmta tímanum í dag þar sem bifreið með fjórum farþegum hafnaði á hvolfi utan vegar.

Búið að opna Hellisheiði á ný
Hellisheiði var lokað í báðar áttir, við Þrengslaafleggjara annars vegar og Hveragerði hins vegar.

Kvensendiherrar í fyrsta sinn í meirihluta í tvíhliða sendiráðum Íslands
Næsta sumar munu konur í fyrsta sinn verða í meirihluta sendiherra í tvíhliða sendiráðum Íslands. Þessar hrókeringar koma í kjölfar skipunar Geirs H. Haarde í stjórn Alþjóðabankans. Geir hafði áður gegnt embætti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.

Svissneskt félag kaupir tæp 13 prósent í HS Orku
Svissneska fjárfestingafélagið DC Renewable Energy AG hefur skrifað undir kaupsamning á 12,7 prósenta hlut fagfjárfestasjóðsins ORK í HS Orku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Gul viðvörun á Hellisheiði og Mosfellsheiði síðdegis í dag
Vegagerðin sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem fram kom að á Hellisheiði og Mosfellsheiði er útlit fyrir talsverðri snjókomu og hvössum vindi allt að 18 m/s frá því upp úr kl. 13 og til 17. Gul viðvörun hefur verið gefin út á svæðinu vegna þessa.

Nábrókin dregur til sín fé og seldist fljótt
Málverk af Bjarna Benediktssyni að klæða sig í nábrók, sem þjóðsagan segir að geti aflað mönnum fjár, átti ekki upp á pallborðið hjá húsráðendum í Hannesarholti þar sem myndlistarmaðurinn Þrándur Þórarinsson opnar sýningu á morgun. Myndin er hins vegar vinsæl og hefur nú þegar verið seld.

Einar Sæmundsen ráðinn í stöðu þjóðgarðsvarðar
Einar Á. E. Sæmundsen var í dag ráðinn í stöðu þjóðgarðsvarðar. Það var samþykkt á fundi Þingvallanefndar fyrr í dag. Einar hefur gegnt stöðu þjóðgarðsvarðar síðastliðið ár en Ólafur Örn Haraldsson, forveri hans í starfi, lét af störfum sökum aldurs.

Ný breiðfylking að myndast innan verkalýðshreyfingarinnar
Nítján félög innan Starfsgreinasambandsins munu leggja fram kröfur sínar fyrir komandi kjaraviðræður um miðja næstu viku. Félögin öll hafa ákveðið að fara sameinuð fram í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins en það hefur ekki áður gerst í sögu sambandsins.

Blendnar tilfinningar eftir sýknudóm
Erla Bolladóttir, sem var ein sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist glíma við blendnar tilfinningar eftir að dómur Hæstaréttar féll í málinu á fimmtudaginn. Hún segist fagna sýknudómi Hæstaréttar yfir mönnunum fimm sem ákærðir voru í málinu árið 1976 og dæmdir árið 1980. Erla var gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínu Stöðvar 2 í dag.

Guðlaugur lagði áherslu á verndun hafsins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hélt í gær ræðu þar sem hann ávarpaði 73. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar fór hann um víðan völl og snerti á hinum ýmsu málefnum sem brenna á alþjóðasamfélaginu um þessar mundir.

Umboðsmaður barna hefur áhyggjur af kvíða, þunglyndi og aukinni lyfjanotkun ungs fólks
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, mætti í útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni í dag. Þar lýsti hún yfir áhyggjum sínum á kvíða og þunglyndi barna auk þess sem hún sagði stigvaxandi notkun ungs fólks á geð- og kvíðalyfjum vera áhyggjuefni.

Guðmundur Árni nýr sendiherra á Indlandi
Guðmundur Árni Stefánsson var nýverið útnefndur nýr sendiherra Íslands á Indlandi og tók hann þar með við embættinu af Þóri Ibsen.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti mann við Skógafoss
Landhelgisgæslan brást á þriðja tímanum í dag við útkalli þar sem maður slasaðist við það að fjórhjól sem hann ók valt við Skógafoss.

Dyraverðir vilja fá betri búnað til að bregðast við ofbeldi
Dyraverðir skemmtistaða í miðbæ Reykjavíkur vilja njóta aukins frelsis og aukinna réttinda í starfi sínu. Meðal þess sem þeir vilja er víkkun á starfssvæði þeirra og heimild til þess að notast við handjárn við störf sín, sem fela oft í sér að yfirbuga eða taka niður þá gesti skemmtistaða sem þykja sýna af sér óæskilega eða ógnandi hegðun.

Karlkyns kennarar kenni strákum kynfræðslu
Ungmennaráð Árborgar vill að karlkynskennarar kenni líka strákum kynfræðslu.

Brynjar Níelsson óánægður: „Fjölmiðlamenn eru eins og hverjar aðrar klappstýrur í þessu ofstæki“
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði í dag ásakanir um kynferðisofbeldi og óviðeigandi hegðun að umfjöllunarefni sínu í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Barði mann með stálröri og henti honum upp á pallbíl
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi á þriðjudaginn mann á fertugsaldri í 18 mánaða fangelsi fyrir grófa handrukkun sem átti sér stað á Akureyri í apríl 2016. Annar maður sem ákærður var með hinum dæmda, var sýknaður.

Tveir menn handteknir grunaðir um þjófnað
Erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, tveir menn í annarlegu ástandi voru handteknir um kvöldmatarleytið í gær, grunaðir um þjófnað úr verslun,