Innlent

Einkavæðing Símans hafin að nýju

Einkavæðingarnefnd kom saman til fundar í gær til að hefja undirbúning að sölu ríkisins á Landssímanum. Ólafur Davíðsson, formaður nefndarinnar segir að þetta hafi verið fyrsti fundur nefndarinnar frá því í byrjun sumars. Ákveðið hafi verið að taka upp þráðinn og koma málinu aftur á skrið. Engin ákvörðun liggi hins vegar fyrir um hvenær ljúka eigi sölunni. Hann segir að nýleg kaup Landssímans á hlut í Skjá einum hafi ekki verið rædd á fundi nefndarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×