13 stig í forgjöf hjá Keflvíkingum 8. desember 2004 00:01
Keflavík sækir portúgalska liðið CAB Madeira heim í bikarkeppni Evrópu í körfuknattleik í kvöld. Liðin mættust á heimavelli Keflvíkinga 10. nóvember sl. og unnu heimamenn öruggan sigur, 114-101. Madeira hefur ekki staðið undir væntingum í keppninni og aðeins unnið tvo leiki, tapað þremur og vermir botnsæti riðilsins fyrir leikinn í kvöld. Liðið tapaði mjög óvænt fyrir franska liðinu Reims í fyrrakvöld og minnkaði þar með möguleika sína á að komast áfram í úrslitakeppnina. Ef Keflavíkurliðið ber sigur úr býtum tryggir það sér annað sæti riðilsins og er öruggt áfram. Madeira þarf hins vegar að leggja Keflavík með meira en 13 stiga mun til að næla sér í annað sætið. Í síðasta leik mætti Keflavík besta liði riðilsins, hinu danska Bakken Bears, og hafði ekki erindi sem erfiði þar sem Bears vann öruggan sigur, 104-90. Þar voru lykilmenn á borð við Nick Bradford og Gunnar Einarsson langt frá sínu besta og munaði um minna fyrir Keflavík, sem missti þar með af fyrsta sæti riðilsins. Tapi Keflvíkingar með meira en 13 stiga mun í kvöld á liðið engu að síður möguleika á að komast áfram þar sem tvö bestu liðin í þriðja sæti riðlanna tryggja sér áframhaldandi þátttöku. Möguleikar liðsins eru því ágætir þó svo að á móti hafi blásið í síðasta leik. Hægt er að fylgjast með leiknum á heimasíðu Keflvíkinga.
Körfubolti Mest lesið Bruno til bjargar Enski boltinn Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira