Innlent

Skeljungur skammist sín

Ungir jafnaðarmenn skora á Skeljung að skammast sín fyrir það sem kallað er í ályktun ósvífnar hótanir í garð Kópavogsbæjar. Skeljungur gerði athugasemdir við að Atlantsolíu væri úthlutað lóð að Dalbraut í Kópavogi, við hlið bensínstöðvar Skeljungs, og sendi Kópavogsbæ erindi þess efnis. Ungir jafnaðarmenn hvetja í ályktun sinni sveitarfélög til að hraða skipulagi og úthlutun lóða til nýrra aðila á bensínmarkaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×