Innlent

Grunaður um íkveikju

Öryggisvörður er grunaður um að hafa kveikt í lyftara við Rúmfatalagerinn á Smáratorgi í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Maðurin tilkynnti sjálfur um eldinn og slökkti hann, en myndir úr eftirlitsmyndavél urðu til þess að maðurinn er grunaður um verknaðinn. Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kópavogi, staðfesti að maðurinn hefði legið undir grun en hann vildi ekki segja til um hvort öryggisvörðurinn sæist beinlínis kveikja í lyftaranum á eftirlitsmyndunum. Hann segir manninn neita sök en málið er enn í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×