Áramót 31. desember 2005 00:01 Um þessi áramót geta Íslendingar fagnað velgengni á mörgum sviðum þjóðlífsins bæði til sjávar og sveita. Það er mikill uppgangur víða í þjóðfélaginu, þótt velmegunin nái að vísu ekki til allra, en þar getur margt komið til sem erfitt er að ráða við. Sumir vilja ætíð skella skuldinnni á aðra ef allt gengur ekki eins og æskilegt er, í stað þess að líta aðeins í eigin barm og leysa vandamálin sjálfir. Ef eitthvað er, þá má efnahagslegur uppgangur varla vera meiri svo allt fari ekki úr böndunum. Það er af sem áður var, þegar allt fór úr böndunum af öðrum og óskyldum orsökum. Það getur verið erfitt og vandasamt að halda um stjórntaumana þegar mikil uppsveifla er í þjóðfélaginu og miklar kröfur eru gerðar. Það leiðir af góðærinu, að þeir sem lakar eru settir láta meira til sín heyra, því þeir vilja að sjálfsögðu njóta þess eins og aðrir. Það er líka gott að fara yfir liðið ár og draga sinn lærdóm af þeirri reynslu sem einstaklingurinn öðlaðist þá. Það kemur dagur eftir þennan dag eins og sagt er,og ár eftir þetta ár en dagurinn í gær kemur ekki aftur, hvað þá árið sem nú er að líða, svo mikið er víst. En þótt velsældin sé víða áberandi, er ástæða til þess að menn gangi hægt um gleðinnar dyr, og veiti því meiri athygli sem er að gerast í umhverfinu. Við höfum nú á síðustu dögum ársins fengið margar sorglegar vísbendingar um örlög samborgara okkar í höfuðborginni. Þetta er að vísu sá tími ársins sem mörgum er erfiðastur, en engu að síður ætti þetta að kenna okkur að það þarf að huga betur að ungum og öldnum sem af einhverjum orsökum fylgja ekki hefðbundnu lífsmynstri, ekki aðeins nú þegar dagur er stystur heldur alla daga ársins. Þetta ár er senn að baki og nýtt ár með nýjum viðfangefnum blasir við. Það er alltaf erfitt að spá í framtíðina með öruggri vissu, en þó er ekkert að því að láta hugann reika fram á veginn, og heita einu og öðru sem ekki komst í verk á árinu sem er að líða. Það er líka gott að fara yfir liðið ár og draga sinn lærdóm af þeirri reynslu sem einstaklingurinn öðlaðist þá. Það kemur dagur eftir þennan dag eins og sagt er,og ár eftir þetta ár en dagurinn í gær kemur ekki aftur, hvað þá árið sem nú er að líða, svo mikið er víst. Þessvegna er sjóður minninganna mikilvægur, og hann getur hver og einn ávaxtað að vild, sé viljinn fyrir hendi. Á stjórnmálasviðinu hér á landi ber einn atburð hærra en aðra á því ári sem nú er að renna sitt skeið á enda, en það er brotthvarf Davíðs Oddssonar af því sviði. Hann hefur átt mjög beinan og óslitinn feril í íslenskum stjórnmálum, allt frá því hann tók við embætti borgarstjóra í Reykjavík. Stjórnmálasviðið mun breytast mikið með brotthvarfi hans. Framundan er ár sveitarstjórnarkosninga og mun athygli manna mjög beinast að úrslitunum í Reykjavík. Sjálfstæðismenn munu leggja allt í sölurnar til að vinna borgina á ný, ekki aðeins til að stjórna henni, heldur ekki síður til að öðlast pólitískt sjálfstraust langt út fyrir borgarmörkin. Árið hefur verið mjög hagstætt fyrir Fréttablaðið og útgáfufyrirtæki þess. Þar hefur mikið verið að gerast, og enn sér ekki fyrir endann á því . Gleðilegt ár.! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kári Jónasson Skoðanir Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun