Skoðun

Líf­æð Vest­fjarða hrunin

Oddur Jensson skrifar

Vestfjarðavegur 60 um Dalasýslu er lífæð Vestfjarða, en ástand vegarins er orðið með öllu óásættanlegt. Vegurinn er byggður á gömlum vegaslóðum frá síðustu öld. Þegar ráðist var í að breikka veginn var notað lélegt efni í vegkantana svo hægt væri að leggja á hann slitlag. Afleiðingin er að kantar sigu og eru nú sokknir niður í jörðina.

Klæðningin frá Bröttubrekku að Þorskafirði er ónýt. Það hefur verið fullt starf nokkurra einstaklinga undanfarin ár að holufylla eða skítamixa í veginn. Meðal annars hefur verið gripið til örþrifaráða með því að dæla viðgerðarmalbiki ofan í ósköpin og dreifa úr því með vegheflum eða snjótönnum. Ástandið er ekkert betra á veginum yfir Þröskulda, leiðinni til Hólmavíkur og Steingrímsfjarðarheiði. Þessir vegir eru á leið í sama farið ef ekkert verður að gert.

Það er marg oft búið að lofa úrbótum en ekkert gerist. Í umræðunni um hækkun veiðigjalda sögðu stjórnarliðar ítrekað að tekjurnar ættu að renna til uppbyggingar vega og samgöngukerfisins í heild. Nú er hins vegar verið að skerða fjárveitingar til Vegagerðarinnar um 2,4 milljarða króna. Á sama tíma er boðuð hækkun kílómetragjalds og aðrar álögur á ökutæki. Meðal annars hefur beinn virðisaukaskattur af Diesel hækkað um 89kr pr líter frá því kílómetragjaldið var tekið upp. Þessar tekjur eru ekki einu sinni eyrnamerktar samgöngum heldur hverfa beint í ríkissjóð.

Ég skora hér með á ráðamenn landsins og Vegagerðina að grípa strax til aðgerða. Við megum ekki við fleiri dauðsföllum í umferðinni. Spurningin er ekki hvort banaslys verði á þessum vegum, heldur hvenær.

Höfundur er framkvæmdastjóri Köggur ehf.




Skoðun

Sjá meira


×